Fréttablaðið - 16.03.2016, Qupperneq 23
fólk
kynningarblað
Ég held að nánast
allir jazzleikarar á
Íslandi séu meira og minna
eðal „gourmet-kokkar“ eða
miklir mataráhugamenn.
1 6 . m a r s 2 0 1 6 m I Ð V I K U D a G U r
Gestir á tónleikum Tríós Krist-
jönu Stefáns í Hannesarholti
á föstudagskvöld eiga að sögn
söngkonunnar von á huggulegri
og afslappaðri stemningu. Boðið
verður upp á sérvalinn matseð-
il og mun tríóið leika valda jazz-
standarda fyrir gesti og spjalla
um matinn og tónlistina á pers-
ónulegum nótum. „Það verður
algerlega frábær matur og tón-
list í sérflokki, húmor og gleði.
Hannesarholt verður í sparigall-
anum, allt uppdekkað og fínt. Við
ætlum að spila alla okkar uppá-
halds jazz-standarda og ræða
sögurnar á bak við þá svo og af
hverju þeir urðu fyrir valinu,“
segir Kristjana.
Spurð að því hvort jazz og
matur eigi endilega saman segir
hún það tvímælalaust vera. „Það
er ekkert skemmtilegra en að
borða góðan mat og njóta góðr-
ar tónlistar um leið. Ég held að
nánast allir jazzleikarar á Ís-
landi séu meira og minna eðal
„gourmet-kokkar“ eða mikl-
ir mataráhugamenn. Ætli það
sé ekki út af spunanum. Maður
getur leikið sér og spunnið í
jazzinum og líka í eldhúsinu.
Allir góðir kokkar eru mjög hug-
myndaríkir og alltaf að finna upp
eitthvað nýtt og spennandi, líkt
og jazzleikarar sem eru alltaf að
spinna nýjar laglínur.“
Jazztengdir réttir
Réttirnir sem boðið verður upp
á í jazzveislunni á föstudag hafa
allir einhverja tengingu við jazz-
inn eða rætur hans. „Manhatt-
an kokteill er tengdur New York
sem er mikil jazzborg og svo er
til mjög skemmtilegur stand-
ard eftir Rodgers og Hart sem
heitir einmitt Manhattan. Ella
Fitzgerald gerði mjög fræga út-
gáfu af honum. New Orleans er
fæðingar staður jazzins í Banda-
ríkjunum og er því rétturinn
New Orleans Gumbo fullkominn
inn í þetta svo og pekanhnetu-
tertan sem er iðulega á borðum
á öllum helstu veitingastöðum í
New Orleans,“ útskýrir Kristjana
og brosir.
Spuni í bæði Jazzi og matargerð
Jazztríó Kristjönu Stefánsdóttur heldur sannkallaða jazzveislu fyrir öll vit í Hannesarholti á föstudagskvöld en boðið
verður upp á sérvalinn jazzaðan mat sem mun eflaust renna ljúflega niður undir tónlistinni.
Söngkonan Kristjana Stefánsdóttir kemur fram með tríói sínu í jazzveislu í Hannesarholti á föstudag. Þar verður boðið upp á jazzaðan mat undir jazztónunum.
MYND/ANTON BRINK
Hún er sjálf mikil áhugakona
um mat og segir félaga sína í
tríóinu, þá Kjartan Valdemars-
son píanóleikara og Gunnar
Hrafnsson kontrabassaleikara,
líka hafa mikinn áhuga á mat og
eldamennsku. „Ég fæ mikla útrás
í eldhúsinu og finnst það stundum
eins og hálfgerð hugleiðsla. Ég á
mjög erfitt með að fara nákvæm-
lega eftir uppskriftum.“
Þau Kristjana, Kjartan og
Gunnar hafa spilað mikið saman
í gegnum tíðina, bæði sem tríó
og stundum sem kvartett og þá
hefur trommuleikari verið með
þeim. Ef vel tekst til á föstudag
verður jazzveislan mögulega
endur tekin en annars hefur fram-
tíðin ekki mikið verið plönuð hjá
tríóinu. „Það er þó stór möguleiki
á að við komum fram einhvers
staðar í sumar, kannski á Jómfrú-
arjazzinum. Svo er ég sjálf að
taka upp sólóplötu þessa dagana
ásamt snillingnum Daða Birgis-
syni sem kemur út í sumar.“
Vertu vinur á
Facebook
Vertu vinur á
Facebook
Vertu vinur á
FacebookLaugavegi 63 • S: 551 4422
VORFRAKKAR
Í ÚRVALI
GLÆSIKJÓLAR
Skoðið
laxdal.is/yfirhafnir-kjólar
Vertu vinur
á Facebook
1
6
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
C
7
-E
5
9
0
1
8
C
7
-E
4
5
4
1
8
C
7
-E
3
1
8
1
8
C
7
-E
1
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K