Fréttablaðið - 16.03.2016, Side 38
kvikmyndir
13 minutes
HHHHH
Leikstjóri: Oliver Hirschbiegel
Handrit: Léonie-Claire Breiners-
dorfer og Fred Breinersdorfer
Aðalleikarar: Christian Friedel,
Katharina Schüttler, Burghart
Klaussner og Johann Von Bülow.
Opnunarmynd Þýskra daga þetta
árið er 13 Minutes (Elser á frummál
inu) eftir Oliver Hirschbiegel en hann
er líklega þekktastur fyrir mynd sína
Der Untergang sem fjallar um síð
ustu daga Hitlers. Eftir smá útúrdúr
í Hollywood er hann kominn aftur
til heimalandsins og á svipuðum
slóðum og í Der Untergang.
13 Minutes segir frá George Elser
nokkrum sem er lítt þekktur í mann
kynssögunni (utan Þýskalands
a.m.k.) þrátt fyrir að hafa gert tilraun
til að ráða sjálfan Hitler af dögum og
það í upphafi seinni heimsstyrjaldar
innar. Myndin byrjar á því að Elser
er gripinn glóðvolgur af nasistunum
og síðan er farið aftur í tímann og
við kynnumst sögu Elser og aðdrag
andanum að tilræðinu. Þetta er
sannarlega safaríkt viðfangsefni og
myndin er líka ágætis innsýn í lífið í
Þýskalandi nasismans áður en seinni
heimsstyrjöldin braust út, eitthvað
sem hefur í raun frekar lítið sést í
kvikmyndum. Hér koma gyðingar
lítið við sögu enda voru þeir alls ekki
einu fórnarlömbin og kominn tími á
að kynnast fleiri fórnarlömbum.
En þrátt fyrir þetta safaríka við
fangsefni nær 13 Minutes aldrei
almennilegu flugi þar sem hún er í
raun frekar hefðbundin. Myndin er
mjög áferðarfalleg, fagmannlega gerð
tæknilega og mjög vel leikin, Christi
an Friedel er t.d. frekar magnaður í
aðalhlutverkinu. En það er bara alls
ekki nóg þar sem matreiðslan á efn
inu er einkar klisjukennd og andlaus.
Hér kemur lítið á óvart og allt er á
yfirborðinu. Myndin spilar sig sem
djúpa en í raun er allt útskýrt, hlut
irnir yfirleitt sagðir berum orðum og
fátt fer á milli mála. Flestallt sem er
gert hérna hefur verið gert áður og
betur. Myndin er flott en karakter
laus, stílhrein en óeftirminnileg.
Uppbyggingin er líka alls ekki nógu
sterk þar sem byggt er upp á hlutum
sem eru augljósir frá upphafi.
13 Minutes nær þó að halda athygli
manns mestallan tímann, þar sem
efnið er það athyglisvert að erfitt væri
að gera leiðinlega mynd úr því. Þetta
virkar svosem sem hrein afþreying.
En hún ætlar sér stærri hluti en það
en tekst það bara hreint ekki. Það
hefði verið hægt að gera mun betri
mynd úr þessu efni.
13 Minutes er ein af þessum mynd
um sem virðast vera mun betri en
þær eru. Hún nær að blekkja mann
í smástund og byrjar vel en fljótt
kemur í ljós að þetta er bara enn ein
nasistamyndin. Hitler var vondur og
nasistarnir voru flestir heilaþvegnir,
þetta ristir í raun ekki mikið dýpra en
það. Líklega er málið að myndin er að
reyna að segja of mikið, fer yfir mörg
ár í ævi Elser og reynir að skýra bæði
nasistana, andspyrnuna og sjálfan
Elser sem og einkalíf hans. Kannski
fer það Hirschbiegel betur að ein
falda hlutina, eins og í Der Untergang
sem gerðist á nokkrum dögum og
fjallaði bara um nasistana.
Atli Sigurjónsson
niðurstaða: Myndin er mjög fag-
mannlega gerð og stórvel leikin en í
grunninn er þetta bara enn ein nas-
istamyndin og gerir lítið sem hefur
ekki verið gert áður og betur.
Enn ein nasistamyndin
Yfir 13.000 eignir á skrá
fasteignir.is á
Yfir 13.000 eignir á skrá
fasteignir.is á
„Helstu markmiðin með hátíðinni
eru að kynna klassíska gítarinn hjá
nýjum markhópi, efla kunnáttu hjá
nemendum og koma Íslandi á kort
ið á alþjóðlega gítarmarkaðinum,“
segir Ögmundur Þór Jóhannesson,
annar listrænna stjórnenda Mid
night Sun Guitar Festival sem haldin
er í fjórða sinn hér á landi á næstu
dögum.
Hátíðin er haldin í sam
starfi við Listaháskóla Íslands
og fer fram í salnum Sölvhóli að
Sölvhólsgötu 13. Auk Ögmundar
halda hin þýska Yvonne Zehner og
Spánverjinn Tomás Campos Crespo
þar tónleika og síðasta kvöldið
verða galatónleikar þar sem nem
endur og listamenn hátíðarinnar
koma fram.
Ögmundur grínast með að auð
vitað hefði verið nær að nefna
hátíðina eftir norðurljósunum að
þessu sinni vegna árstímans en hitt
nafnið hafi þegar fest í sessi. „Fyrri
hátíðir hafa verið haldnar að sumri
til en þá reyndist erfitt að ná saman
nemendum, þeir voru komnir í
garðvinnu og búnir að brjóta á sér
neglurnar!“ útskýrir hann.
Nemendur og kennarar í klassísk
um gítarleik eru mun færri en þeir
sem eru kringum rafmagnsgítarinn,
að sögn Ögmundar sem finnst að
samheldni milli þeirra mætti vera
meiri. „En það skapast mikil tengsl
og félagslíf á svona gítar hátíðum,“
segir hann og talar af reynslu því
hann hefur komið fram á mörgum
slíkum, meðal annars í Malasíu,
Víetnam, Indónesíu, Kína og Rúss
landi og er boðinn á tvær í Þýska
landi á þessu ári og fræga Shen
gyanghátíð í Kína. „Ég kem fram
sem listamaður, spila fyrir fólkið
og kenni gítarleik, sviðsframkomu,
undirbúning og skipulagningu
æfingartíma,“ lýsir hann.
Ögmundur vinnur aðallega í Asíu,
en kveðst hafa verið á flakki eins og
sígauni í þrjú ár. Í Asíu rekur hann
fyrirtækið Global Gitar Institute,
ásamt samstarfsmanni í Þýska
landi. Starfið snýst um að efla áhuga
á klassískum gítarleik og auðvelda
hæfileikaríkum nemendum í Asíu
að komast í nám til Evrópu og ná
í innblástur þangað sem þessi list
grein á rætur sínar að rekja. Einn
ig að skipuleggja menningarferðir
til Evrópu í bland við námskeiða
hald. „Það má segja að markmiðið
sé alls staðar svipað og með gít
arhátíðunum hér, að stækka mark
hópinn og styðja við þá sem eru nú
þegar í klassískum gítarleik, bæði
nemendur og kennara.“
gun@frettabladid.is
Nær að nefna hátíðina eftir norðurljósunum
Ögmundur Þór í yfirgefinni verksmiðju í Berlín, þar sem þessi rauði sófi hafði verið skilinn eftir. Mynd/Rut SiguRðARdóttiR
Fyrri hátíðir haFa
verið haldnar að
sumri til en þá reyndist
erFitt að ná saman nem-
endum, þeir voru komnir í
garðvinnu og búnir að
brjóta á sér neglurnar!
tónleikar og nám-
skeið verða
aðaluppistaða al-
þjóðlegu gítarhá-
tíðarinnar mid-
night sun guitar
Festival sem haldin
verður í sölvhóli
17. til 20. mars.
1 6 . m a r s 2 0 1 6 m i ð v i k u d a G u r22 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
menning
1
6
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
C
7
-D
B
B
0
1
8
C
7
-D
A
7
4
1
8
C
7
-D
9
3
8
1
8
C
7
-D
7
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K