Fréttablaðið - 05.03.2016, Side 40
Hvar er besti
brönsinn?
Það er tilvalið um helgar að gera sér glaðan
dag og fara með góðum vinum eða fjölskyldu í
bröns. Fréttablaðið leitaði til nokkurra álitsgjafa til
þess að varpa ljósi á það hvar besta brönsinn er að finna.
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
1. sæti
The CooCoo’s NesT
Litla hreiðrið úti á Granda hefur
vinninginn um besta brönsinn
samkvæmt álitsgjöfum Frétta
blaðsins. Þetta höfðu þeir
meðal annars að segja um
brönsinn þar:
„Egg Florentine er besti
einstaki brönsrétturinn í
bænum.“
„The Coocoo’s Nest á
þetta skuldlaust. Ég vakna
stundum um miðjar nætur
öskrandi á grænu eggin
þeirra. Skemmtilega öðru
vísi en allir brönsarnir í
bænum og líka sá bragðbesti.“
„Afslappaður fjölskyldurek
inn veitingastaður þar sem gott
hráefni fær að njóta sín. Besta
súrdeigsbrauð í bænum og ommi
lettan með heimagerðu salsa er
einfaldlega besti brönsréttur sem
ég hef bragðað.“
„Ég veit að ég er að gera stór
mistök að tilnefna staðinn, því
hann er lítill og nógu déskoti
erfitt er að fá borð þar nú þegar.
Súrdeigsbrauðið, blóðmarían og
hleyptu eggin … þetta er algjört
príma stöff.“
„Hrikalega skemmtilegur stað
ur úti á Granda með geðveikum
bröns, mæli með grænni vefju
með eggi og auka beikoni.“
Þar er besta súrdeigsbrauð á landinu,
æðisleg bloody mary og Þægileg af
slöppuð stemning. svo er tilvalið að fá
sér kökusneið frá 17 sortum eða ís frá
valdísi í desert svona á sparidögum.
2. sæti
sNaps
Næstbesta brönsinn er að finna á veitingastaðnum Snaps við Óðins
torg. „Þú færð hlýjar móttökur, góðan mat og bæjarins bestu Bloody
Mary!“ – „Þeir bjóða upp á svo trylltan bröns að mig dreymir hann
nánast á hverri nóttu. Eini gallinn er að hann er bara í boði um helgar
og á vissum tíma dags. Brioche er geggjað, eggjakakan er til að drepa
fyrir og beikonið er alltaf stökkt og fullkomlega eldað.“
„Fyrir lengra komna brönsaðdáendur þá er þann besta klárlega að
finna á veitingastaðnum Snaps á Óðinsgötu. Þar er hægt að fá Eggs
Benedict sem er án efa toppurinn á útfærslu eggja. Tvö „poached“ egg
ommilettan með camembert er sú allra besta
í bænum og svo er nauðsynlegt að fá sér
pönnukökur með karamelluðum eplum og kanil.
3. sæti
Geysir bisTro
Geysir Bistro var í þriðja sæti yfir þá staði sem bjóða upp á besta
brönsinn en álitsgjöfum þykir hann sérlega fjölskylduvænn.
„Fjölbreytnin er lykillinn – það er eggjahræra, pylsur og beik
on en svo er lítið boostglas, ferskir ávextir s.s. melóna, ananas
og epli, ristað brauð með upprúlluðum osti og hágæðaskinku,
pönnukaka með sírópi og rúsínan í pylsuendanum er svo djúp
steiktur camembert með sultu! Svo fylgir kaffibolli með!“
„Barnvænn og góður staður. Frábær bröns.“
4.-6. sæti
Sóley Kristjánsdóttir vörumerkjastjóri, Ólafur Arnarsson, Freyr Rögnvaldsson blaðamaður, Björn Teitsson, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, Ása Ottesen markaðsfulltrúi, Hörður Ágústsson,
eigandi Macland, Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri og matgæðingur, Álfrún Pálsdóttir ritstjóri, Þóra Hallgrímsdóttir lögfræðingur, Edda Sif Guðbrandsdóttir hárgreiðslukona, Lilja Katrín Gunnarsdóttir,
Gunnþórunn Jónsdóttir blaðamaður, Elísabet Gunnarsdóttir tískubloggari, Sölvi Snær Magnússon auglýsingastjóri, Margrét Erla Maack sjónvarpskona, Þorbjörg Marínósdóttir fjölmiðlakona, Sindri
Sindrason sjónvarpsmaður, Hildur Knútsdóttir rithöfundur, Jóhannes Þór Skúlason aðstoðarmaður, Karen Kjartansdóttir, Carmen Jóhannsdóttir, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Þór-
hildur Þorkelsdóttir fréttamaður, Júlíana Sól Sigurbjörnsdóttir, eigandi Norr11, Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður, Þórunn Antonía Magnúsdóttir söngkona, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Nína
Björk Gunnarsdóttir ljósmyndari, Hildur Sverrisdóttir borgarfulltrúi, Þórarinn Þórarinsson blaðamaður.
Álitsgjafar
Vox hilToN hóTel
„Vox er með besta brönshlaðborðið. Allt frá
bært hjá þeim og ferskt. Þar er yfirleitt allt á
fullu og maður þarf að standa í röð en það er
alveg þess virði.“
„Þar er hægt að fá ótrúlega mikið fyrir pen
inginn, þægileg stemmning og sannkölluð
veisla fyrir bragðlaukana.“
prikið
„Langbesti brönsinn í bænum er Vöru
bíllinn á Prikinu. Egg, beikon, amerískar
pönnukökur með sírópi, ristað brauð og
steiktar kartöflur. Þetta er beisikk, öll nær
ingarefni sem þú þarft. Kolvetni, prótín og
fita, sett saman í eina gómsæta og endur
nærandi heild. Svo er staffið á Prikinu besta
fólk í heimi og mun örugglega lauma til þín
verkjatöflu, ef á þarf að halda.“
„Prikið er leyndur fjársjóður í matarmenn
ingu Reykjavíkur. Beikon, egg, ristað brauð,
bakaðar baunir, jalapeños. Svo er hægt að fá
Cocoa Puffs á meðan maður bíður. Prikið er
furðulega góður veitingastaður.“
berGssoN MaThús
„Skemmtilegur lítill staður með hollum og
góðum bröns.“
VeGaMóT
„Allt sem maður þarf á einum diski."
kaffi VesT
„Þar getur maður alla jafna fengið þrjár
útgáfur af Eggs Benedict.“
Grái köTTuriNN
„Besti brönsinn er klárlega á Gráa kettinum
á góðum degi, vel útilátinn og góð samsetn
ing, fullkomlega saltaðar kartöflur og vel
steikt egg svo við tölum nú ekki um bragðið
af pönnukökunum. “
kaffi slippur
„Góður matur, afslöppuð stemning og fal
legt útsýni yfir höfnina.“
flóra í GrasaGarðiNuM
„Eitthvert best geymda leyndarmálið í Reyjavík.“
uppáhald fjölskyldunnar er á geysi bistro við ing
ólfstorg. kannski ekki mikið fjölmenni Þar en bröns
inn Þar er algjörlega falin perla.
með hollandaisesósu og reyktum laxi, ofan á enskri múffu. Ekki verra að panta sér ljúffenga mímósu
með. Bon appetit!“
The lauNdroMaT Café
„Svo sannarlega besti brunch Íslands.“
Aðrir sem voru nefndir
Tíu dropar
„Tíu dropar bjóða upp á brunch að mínu skapi.“ hóTel borG
„Hlaðborð þar sem maður fær átta rétti.“
bar aalTo í NorræNa húsiNu.
„Falinn og vannýttur brunchgimsteinn.“
kaffi reTró
„Besta kaffið í bænum og útsýnið yfir
höfnina er himneskt.“
5 . M a r s 2 0 1 6 l a u G a r d a G u r40 h e l G i N ∙ f r é T T a b l a ð i ð
0
5
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
E
-4
1
2
8
1
8
A
E
-3
F
E
C
1
8
A
E
-3
E
B
0
1
8
A
E
-3
D
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
3
6
s
_
4
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K