Fréttablaðið - 05.03.2016, Page 46
Í fermingarblaði Fréttablaðsins
sem kom út í síðasta mánuði var
magn kakós í uppskrift Guðríð-
ar Margrétar Jóhannsdóttur mis-
ritað. Uppskriftin er birt rétt hér
að neðan.
Súkkulaðikaka
200 g sykur
200 g púðursykur
180 g smjör
3 egg
300 g hveiti
1 ½ tsk. matarsódi
1 ½ tsk. lyftiduft
40 g kakó
270 ml mjólk (svolítið eftir
tilfinningu líka)
Ef vill má bæta við kúlusúkki,
skera það niður í smærri bita og
setja í kökuna.
Hrærið saman sykri, púðursykri
og smjöri þar til ljóst og létt, eggj-
unum svo bætt út í. Öll þurrefni
sett út í skálina og hrært saman
og mjólkinni bætt rólega við.
Ef notað er kúlusúkk er best að
hræra það saman við deigið með
sleikju. Kakan er bökuð við 180°C
hita á blæstri í um það bil 25 mín-
útur (fylgist með og bætið við
tíma ef þarf).
krem
500 g flórsykur
50 g kakó
1 egg
90 g brætt smjör
2 tsk. vanilludropar
1 espresso-bolli (ef vill)
Ef kremið er of þykkt má þynna
smátt og smátt með mjólk (um
það bil 4 msk.)
Allt sett saman í skál nema kaffið.
Hrært smá saman og kaffinu svo
bætt við eftir smekk. Gott er að
skella kökunni aðeins inn í ís-
skap áður en kremið er sett á, í
svona fimmtán mínútur. Þá flagnar
hún ekki og það er auðveldara að
smyrja kreminu á og kakan verð-
ur fallegri. Best er að hafa kremið
þykkt og má bæta meiri flórsykri
í ef það er of þunnt en svo virkar
líka að láta það standa aðeins í um
fimm mínútur.
Dásamleg
súkkulaðikaka
Flestir ættu að geta fundið sér eitt
hvað við sitt hæfi um helgina til
að bardúsa enda nóg um að vera á
höfuð borgarsvæðinu. Ekki er verra
þegar hægt er að upplifa og njóta
án þess að þurfa að taka upp vesk
ið. Hér má sjá helstu viðburði sem
verða í gangi í dag og á morgun og
frítt er inn á.
Maginn Mettaður
Stærsti matarmarkaður landsins,
Matarmarkaður Búrsins, verður
haldinn í sjötta sinn í Hörpu í dag
og á morgun á milli klukkan ellefu
og fimm. Að sögn verður markað
urinn súr, sætur og safaríkur en
þar munu yfir 45 framleiðendur
koma víðsvegar að hlaðnir ljúfmeti
til sölu og smakks.
Matur verður í algjöru aðalhlut
verki í Hörpu í dag og þar verður
matreiðslumaður Food and Fun
hátíðarinnar krýndur en hátíðin
hefur staðið yfir síðan á miðviku
dag og nær hámarki í dag. Keppn
in er opin almenningi og allir eru
velkomnir til að fylgjast með kepp
endum undirbúa rétti sína. Marg
ir veitingastaðanna sem taka þátt
í Food and Fun verða með fulltrúa
í Hörpu og munu þeir bjóða upp á
smakk af þeim matseðli sem verð
ur í gangi á hverjum stað í tilefni
hátíðarinnar.
Bækur krydda lífið
Gestum matarhátíðarinnar í Hörpu
verður ekki einungis boðið upp á
mat heldur verður dagskráin þar
krydduð með upplestri og höfunda
spjalli á morgun á milli tvö og fjög
ur. Reykjavík Bókmenntaborg
UNESCO og Penninn Eymundsson
taka höndum saman og bjóða gest
um hússins að hlýða á átta rithöf
unda spjalla um verk sín við sjón
varpsmanninn Egil Helgason. Þetta
verður létt og skemmtilegt spjall og
upplestur og gott tækifæri til að sjá
hvað er í boði í bókaútgáfu fyrstu
mánuði ársins, hitta ný skáld sem
eru að stíga fram á ritvöllinn og
hlýða á fjölbreyttan upplestur.
Mynda- og ferMingarSýning
Þeir sem hafa fengið sig fullsadda
af mat geta kíkt á sýningu Blaða
ljósmyndarafélags Íslands á bestu
myndum ársins 2015 sem verður
opnuð í dag klukkan þrjú í Perlunni.
Á sýningunni eru að þessu sinni 82
myndir sem valdar hafa verið af
dómnefnd úr rúmlega níu hundruð
myndum 32 blaðaljósmyndara.
Fermingarbörn fyrr og síðar
gætu haft gaman af því að skoða
sýninguna „Í fullorðinna manna
tölu“ í Borgarbókasafninu Kringl
unni. Á sýningunni má sjá ýmis legt
tengt fermingunni eins og fatnað,
gjafir, skraut og annað. Auk þess
verður brugðið upp fermingar
myndum af rithöfundum sem tengj
ast hverfinu og orðum þeirra um
ferminguna.
HáSkóladagurinn
Fyrir þá sem langar að virkja heila
sellurnar er tilvalið að kíkja á Há
skóladaginn en sjö háskólar lands
ins kynna yfir fimm hundruð náms
brautir í Háskóla Íslands, Háskóla
Reykjavíkur og Listaháskóla Ís
lands í dag frá klukkan tólf til fjög
ur. Fyrir utan að geta kynnt sér
allt háskólanám í boði má finna sér
ýmis legt til skemmtunar á Háskóla
daginn. Meðal annars verður opið
hús í Vísindasmiðju HÍ en nú er
búið að stækka Vísindasmiðjuna og
bæta við myrkraherbergi. Þar verða
ljósaleikir, ljósalistir og ljósadýrð.
Einnig stendur börnum og ungling
um til boða að sækja örnámskeið í
tæknilegói, forritun og vefsíðugerð
í HR.
fyrir krakkana
Krakkarnir geta svo haft meira
fyrir stafni á morgun því hægt er
að taka þátt í tilraunanámskeiði
í tónlistarsköpun í Mengi og fara
í krakkajóga með leikkonunni og
jógakennaranum Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur á Kexi hosteli.
ókeypiS uM
Helgina
Það verður nóg um að vera um helgina fyrir
stóra sem smáa og hvort sem ætlunin er að
rækta líkama eða sál. Helgin ætti að verða
mataráhugafólki sérstaklega eftirminnileg.
Vel hefur verið mætt á Matarmarkaði Búrsins í gegnum tíðina og fólk látið vel af. MYND/HELGA BJÖRNSDÓTTIR
Einföld en ljúffeng súkkulaðikaka sem Guðríður Margrét gefur uppskrift að.
commaIceland
Smáralind
TILBOÐSDAGAR
TÖFF FYRIR VEISLUNA
5 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r4 F ó L k ∙ k y n n i n G a r b L a ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G a r b L a ð ∙ h e L G i n
0
5
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
E
-C
6
7
8
1
8
A
E
-C
5
3
C
1
8
A
E
-C
4
0
0
1
8
A
E
-C
2
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
3
6
s
_
4
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K