Fréttablaðið - 05.03.2016, Page 90

Fréttablaðið - 05.03.2016, Page 90
„Sem tónlistarkennari og organisti í kirkju gefast ekki mörg tækifæri til að pönka,“ segir Valmar. mynd/daníel StarraSon Valmar Väljaots með nikkuna ásamt félögum sínum í Hvanndalsbræðrum. Hljómsveitin spilar í tjarnarbíói í kvöld. mynd/daníel StarraSon „Ég kom hingað árið 1994 frá Tall- inn í Eistlandi til að kenna á fiðlu í tónlistarskólanum á Húsavík í eitt ár. Það var framlengt um ár í við- bót og aftur þegar ég fékk starf sem organisti. Svo eignaðist ég ís- lenskt Visa-kort og þá varð ekki aftur snúið,“ segir Valmar Välja- ots sposkur, en hann starfar sem organisti í Glerárkirkju á Akur- eyri og spilar í þjóðlagapopppönk- sveitinni Hvanndalsbræðrum þess á milli. Það má kalla Valmar þúsund- þjalasmið þegar kemur að tónlist og tónlistarstefnum og hann leik- ur á mörg hljóðfæri. Hann segir lítið mál að sameina sálmaundir- leik og pönk, hann hafi alltaf vas- ast í ólíkri tónlist. „Mér fannst Hvanndalsbræður vera fyrirbæri sem ég hefði ekki prófað áður en ég hef verið í band- inu frá 2007. Hvanndalsbræður þróuðust úr dægurlagapönksveit- inni Húfu sem pönkaði íslensk lög. Mér fannst ég verða að prófa þetta. Sem tónlistarkennari og organisti í kirkju gefast ekki mörg tækifæri til að pönka og með þeim kemur villidýrið fram,“ segir Valmar hlæjandi TónlisTarleg TugþrauT „Ég hef gegnum árin alltaf blandað alls konar tónlist saman, ég lærði klassíska tónlist og er fiðluleik- ari en spila á píanó, harmóníku, hljómborð og strengjahljóðfæri eins og gítar og mandólín. Ég hef spilað keltneska tónlist, dixie land, fusion og ýmiss konar stefnur. Ég er í eins konar tónlistarlegri tug- þraut. Þegar ég var í sovéska hern- um spilaði ég meira að segja á bás- únu,“ segir Valmar en hann ólst upp í Tallinn á þeim tíma þegar Eistland var undir stjórn Sovét- ríkjanna. „Það var herskylda í Eistlandi og ég þurfti að gegna herskyldu í tvö ár. Í hernum var lúðrasveit og mér tókst að sannfæra þá um að ég gæti leikið á básúnu. Ég hafði aldrei verið í lúðrasveit, og básúnu- leikur ekki mín köllun.“ Ísland orðið „heim“ Eftir tuttugu og tvö ár á Íslandi segist Valmar kalla Ísland „heim“. Fjölskyldan fer reglulega í heim- sókn til gamla landsins en vill helst eyða sumrunum á Íslandi. „Ég fer út til að knúsa tengda- mömmu. Sjálfur á ég ekki margt að sækja til Eistlands en foreldrar mínir eru báðir dánir. Nú í ár mun ég reyndar fara tvisvar í kórferð- ir til þangað. Á sumrin vil ég helst vera heima á Íslandi. Þó ég breyt- ist kannski aldrei alveg í Íslending, út af móðurmálinu, þá á ég heima hér, þetta er orðinn svo langur tími og allir mínir bestu vinir mínir eru hér á Íslandi.“ Valmar mun stíga á svið með Hvanndalsbræðrum í kvöld í Tjarnarbíói og segir hljómsveitina hafa æft stíft undanfarið. „Við æfum alltaf einu sinni í viku, eins og alvöru bílskúrsbandi sæmir. Ég hef reyndar skrópað nokkrum sinnum, æfingarnar hafa stangast á við bridsmót. En hinir hafa æft vel, ég er bara rjóminn ofan á kökuna. Ég trúi ekki öðru en að þetta verði flott,“ segir Valmar. tónleikarnir hefjast klukkan 21 í kvöld. Villidýrið sleppur úT með bræðrunum Milli þess sem Valmar Väljaots organisti í Glerárkirkju þenur kirkjuorgelið spilar hann með þjóðlagapopppönksveitinni Hvanndalsbræðrum. Þar segist hann frá útrás fyrir villidýrið í sér en reynir að haga sér í messum. Hljómsveitin spilar í Tjarnarbíói í kvöld. NÝTTGÓÐA NÓTT INNIHALDSEFNI: L-tryptófan Sítrónumelissa Lindarblóm Hafrar B-vítamín Magnesíum Melatónín er myndað úr tryptófani LUNAMINO 5 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r8 F ó L k ∙ k y n n i n G a r b L a ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G a r b L a ð ∙ h e L G i n 0 5 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 3 6 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 A E -D 5 4 8 1 8 A E -D 4 0 C 1 8 A E -D 2 D 0 1 8 A E -D 1 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 3 6 s _ 4 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.