Fréttablaðið - 05.03.2016, Blaðsíða 90
„Sem tónlistarkennari og organisti í kirkju gefast ekki mörg tækifæri til að pönka,“
segir Valmar. mynd/daníel StarraSon
Valmar Väljaots með nikkuna ásamt félögum sínum í Hvanndalsbræðrum. Hljómsveitin spilar í tjarnarbíói í kvöld.
mynd/daníel StarraSon
„Ég kom hingað árið 1994 frá Tall-
inn í Eistlandi til að kenna á fiðlu í
tónlistarskólanum á Húsavík í eitt
ár. Það var framlengt um ár í við-
bót og aftur þegar ég fékk starf
sem organisti. Svo eignaðist ég ís-
lenskt Visa-kort og þá varð ekki
aftur snúið,“ segir Valmar Välja-
ots sposkur, en hann starfar sem
organisti í Glerárkirkju á Akur-
eyri og spilar í þjóðlagapopppönk-
sveitinni Hvanndalsbræðrum þess
á milli.
Það má kalla Valmar þúsund-
þjalasmið þegar kemur að tónlist
og tónlistarstefnum og hann leik-
ur á mörg hljóðfæri. Hann segir
lítið mál að sameina sálmaundir-
leik og pönk, hann hafi alltaf vas-
ast í ólíkri tónlist.
„Mér fannst Hvanndalsbræður
vera fyrirbæri sem ég hefði ekki
prófað áður en ég hef verið í band-
inu frá 2007. Hvanndalsbræður
þróuðust úr dægurlagapönksveit-
inni Húfu sem pönkaði íslensk lög.
Mér fannst ég verða að prófa þetta.
Sem tónlistarkennari og organisti
í kirkju gefast ekki mörg tækifæri
til að pönka og með þeim kemur
villidýrið fram,“ segir Valmar
hlæjandi
TónlisTarleg TugþrauT
„Ég hef gegnum árin alltaf blandað
alls konar tónlist saman, ég lærði
klassíska tónlist og er fiðluleik-
ari en spila á píanó, harmóníku,
hljómborð og strengjahljóðfæri
eins og gítar og mandólín. Ég hef
spilað keltneska tónlist, dixie land,
fusion og ýmiss konar stefnur. Ég
er í eins konar tónlistarlegri tug-
þraut. Þegar ég var í sovéska hern-
um spilaði ég meira að segja á bás-
únu,“ segir Valmar en hann ólst
upp í Tallinn á þeim tíma þegar
Eistland var undir stjórn Sovét-
ríkjanna.
„Það var herskylda í Eistlandi
og ég þurfti að gegna herskyldu í
tvö ár. Í hernum var lúðrasveit og
mér tókst að sannfæra þá um að
ég gæti leikið á básúnu. Ég hafði
aldrei verið í lúðrasveit, og básúnu-
leikur ekki mín köllun.“
Ísland orðið „heim“
Eftir tuttugu og tvö ár á Íslandi
segist Valmar kalla Ísland „heim“.
Fjölskyldan fer reglulega í heim-
sókn til gamla landsins en vill helst
eyða sumrunum á Íslandi.
„Ég fer út til að knúsa tengda-
mömmu. Sjálfur á ég ekki margt
að sækja til Eistlands en foreldrar
mínir eru báðir dánir. Nú í ár mun
ég reyndar fara tvisvar í kórferð-
ir til þangað. Á sumrin vil ég helst
vera heima á Íslandi. Þó ég breyt-
ist kannski aldrei alveg í Íslending,
út af móðurmálinu, þá á ég heima
hér, þetta er orðinn svo langur tími
og allir mínir bestu vinir mínir eru
hér á Íslandi.“
Valmar mun stíga á svið með
Hvanndalsbræðrum í kvöld í
Tjarnarbíói og segir hljómsveitina
hafa æft stíft undanfarið.
„Við æfum alltaf einu sinni í
viku, eins og alvöru bílskúrsbandi
sæmir. Ég hef reyndar skrópað
nokkrum sinnum, æfingarnar hafa
stangast á við bridsmót. En hinir
hafa æft vel, ég er bara rjóminn
ofan á kökuna. Ég trúi ekki öðru en
að þetta verði flott,“ segir Valmar.
tónleikarnir hefjast klukkan 21 í
kvöld.
Villidýrið sleppur
úT með bræðrunum
Milli þess sem Valmar Väljaots organisti í Glerárkirkju þenur
kirkjuorgelið spilar hann með þjóðlagapopppönksveitinni
Hvanndalsbræðrum. Þar segist hann frá útrás fyrir villidýrið í sér en
reynir að haga sér í messum. Hljómsveitin spilar í Tjarnarbíói í kvöld.
NÝTTGÓÐA
NÓTT
INNIHALDSEFNI:
L-tryptófan
Sítrónumelissa
Lindarblóm
Hafrar
B-vítamín
Magnesíum
Melatónín er
myndað úr
tryptófani
LUNAMINO
5 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r8 F ó L k ∙ k y n n i n G a r b L a ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G a r b L a ð ∙ h e L G i n
0
5
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
A
E
-D
5
4
8
1
8
A
E
-D
4
0
C
1
8
A
E
-D
2
D
0
1
8
A
E
-D
1
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
3
6
s
_
4
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K