Fréttablaðið - 05.03.2016, Side 130
l 1993 var sveitin
stofnuð í London
l Upphaflegt nafn
hennar var All
Saints 1.9.7.5
l 4 breiðskífur
l 1997 kom platan
All Saints út
l 2000 Saints &
Sinners
l 2006 kom platan
Studio 1 út
l 8. apríl næstkom-
andi kemur svo út
platan Red Flag
All Saints
½ bolli fersk brauðmylsna
2 msk. pressaður hvítlaukur
2 msk. hakkað ferskt rósmarín
1 tsk. Maldonsalt
¼ tsk. svartur pipar
2 msk. ólívuolía
1 tsk. salt
1 tsk. pipar
2 msk. ólívuolía
1 msk. Dijonsinnep
Hitið ofninn í 200°C. Ristið
brauðsneið og rífið niður í
matvinnsluvél eða með rifjárni.
Blandið saman brauðmylsnu,
hvítlauk, rósmaríni, salti og
pipar í skál. Hellið ólívuolíu
yfir og blandið vel. Setjið til
hliðar. Kryddið lambahrygginn
með salti og pipar. Nuddið með
ólívuolíu og burstið sinnepi
yfir hrygginn. Veltið hryggnum
upp úr brauðmylsnunni og
setjið hann í ofnskúffu þannig
að beinið snúi niður og kjötið
upp.
Eldið í miðjum ofni í um 20
mínútur, lækkið þá hitann í
160°C og eldið áfram í 30-45
mínútur, eftir því hversu mikið
kjötið á að vera steikt. Látið
hrygginn standa í 5-7 mínútur
áður en hann er skorinn.
SveppaSóSa
1 box af sveppum
¼-½ laukur
Smjör
Ólívuolía
3 dl rjómi
½ piparostur
½–1 grænmetiskraftur
Cayennepipar eftir smekk
Skerið 1 box af sveppum gróf-
lega og ¼-½ lauk fínlega niður
og steikið við miðlungshita
upp úr vænni klípu af smjöri
og smá ólívuolíu.
Leyfið að malla í góða stund.
Hellið um 3 dl af rjóma
eða matreiðslurjóma yfir
og bætið ½ niðurskornum
piparosti í pottinn. Látið sjóða
við vægan hita á meðan pipar-
osturinn bráðnar. Smakkið
til með grænmetiskrafti (½–1
teningur) og kryddið með smá
cayennepipar.
Uppskrift fengin af Ljufmeti.com.
Lambahryggur
með hvítlauks- og
rósmarínraspi
Bresk-kanadíska stúlknapopphljóm-
sveitin All Saints gaf í gær út sitt fyrsta
myndband í heil níu ár við lagið One
Strike.
Sveitin var stofnuð í London árið
1993 og eru upprunalegir meðlimir
hennar þær Melanie Blatt, Shaznay
Lewis og Simone Rainford en Rain-
ford hætti í sveitinni stuttu síðar og lést
úr krabbameini árið 2013. Árið 1995
bættust systurnar Nicole og Natalie
Appleton í hópinn og varð sveitin
ein sú vinsælasta á níunda áratugnum
og sló heldur betur í gegn með lögum
á borðum Never Ever og Pure Shoes
sem var meðal annars í kvikmyndinni
Beach þar sem hinn nú nýkrýndi Ósk-
arsverðlaunahafi Leonardo DiCaprio
fór með aðalhlutverkið.
Sveitinni var á níunda áratugnum
stillt upp á móti Spice Girls sem voru
þá á hátindi ferils síns. All Saints þótti
þó vera ögn meira ögrandi og voru
stuttir toppar og Cargo-buxur aðals-
merki stúlknanna en slíkur klæða-
burður varð mjög vinsæll í Bret-
landi eftir því sem vinsældir
sveitarinnar jukust.
Lagið One Strike er sagt hafa
verið samið undir áhrifum af
skilnaði Nicole við Liam Galla-
gher, söngvara Oasis, en mynd-
bandið er svarthvítt og þar sjást
þær stöllur sveifla sér saman og
er óhætt að segja að örlítilla næn-
tísáhrifa gæti í því.
Sveitin tók sér hlé árið 2001 en
hefur komið saman síðan þá. Hinn
27. janúar þessa árs var staðfest að
sveitin gæfi út sína fjórðu breið-
skífu, Red Flag, 8. apríl næstkomandi
og er lagið One Strike fyrsta lagið af
plötunni en aðdáendur hafa fagnað
endurkomu sveitarinnar ákaft á sam-
félagsmiðlum. – gló
Margir fagna endurkomu stúlknapoppsveitarinnar
Ég er Mjög Spennt-
ur að kynnaSt
fóLkinu þarna. Maður er að
fara að hitta fóLk SeM
Maður hefði aLdrei kynnSt
á LitLa ÍSLandi. það eru
aLLtaf einhver LocaL
LegendS að kenna þarna og
það er Mikið af frábæru
tónLiStarfóLki frá kanada.
Íslenski tónlistarmaðurinn Auð-
unn Lúthersson, sem margir kann-
ast við undir nafninu Auður, er
fyrsti Íslendingurinn sem valinn er
inn í Red Bull Music Academy. Um
er að ræða margverðlaunaða aka-
demíu sem heldur vinnustofur og
námskeið á sviði tónlistar í borgum
um allan heim. Hann var valinn inn
í akademíuna í fyrra og segir hana
hafa reynst sér vel. „Það eru ótrú-
lega margir sem sækja um þarna
og það er líka ótrúlega flott fólk að
koma út úr þessu eins og til dæmis
Hudson Mohawke sem var aðal-
númerið á Sónar,“ segir Auðunn.
Hann fór þó ekki út í akademí-
una sem átti að fara fram í París
eins og gert var ráð fyrir, vegna
hræðilegra atburða sem áttu sér
stað. „Daginn sem ég átti að fara út
þá var gerð þessi hræðilega hryðju-
verkaárás og þessu var frestað. Það
var mjög skrítið og sorglegt ferli,“
segir Auðunn. Þótt hann hafi ekki
farið út segist hann finna fyrir því
að vera kominn inn í það plögg sem
fylgir akademíunni.
Hann fer þó út til Montreal í
haust, þar sem akademían fer
fram í ár. „Ég er mjög spenntur að
kynnast fólkinu þarna. Maður er
að fara að hitta fólk sem maður
hefði aldrei kynnst á litla Íslandi.
Það eru alltaf einhver local legends
að kenna þarna og það er mikið af
frábæru tónlistarfólki frá Kanada.“
Vinnustofuhluti RBMA er hald-
inn árlega og stendur yfir í fimm
vikur. Af 500-600 umsóknum eru
oftast valdir um 60 þátttakendur
og fá þeir aðstöðu í húsi með stóru
upptökustúdíói, fyrirlestrasal,
útvarpsklefa og svefnherbergjum.
Aðilar frá Red Bull Music Aca-
demy voru staddir á Íslandi fyrir
skömmu í tengslum við Sónar-tón-
listarhátíðina, þar sem þeir voru
með sitt eigið svið ásamt því að
útvarpa beint frá hátíðinni.
Auðunn er staddur í Ósló þessa
dagana þar sem hann kemur fram
á tónlistarhátíðinni Bylarm en tón-
leika hans á hátíðinni má að hluta
rekja til Red Bull akademíunnar.
„Þetta gigg kemur í gegnum Red
Bull og Airwaves en ég er að spila
á Red Bull sviði hérna í Ósló. Þetta
er ótrúlega flott hátíð og hérna er
mikið af upprennandi artistum frá
Skandinavíu.“
Auðunn er að leggja lokahönd
á sína fyrstu breiðskífu um þessar
mundir en það má segja að þessi
væntanlega plata hafi komið
honum inn í akademíuna „Ástæðan
fyrir því að ég kemst inn í þennan
skóla er að ég sendi inn demó af
plötunni sem ég er að klára þessa
dagana.“
Þekktir tónlistarmenn sem hafa
útskrifast úr akademíunni eru Nina
Kraviz, Flying Lotus, og Lusine.
Umsóknareyðublað inn í aka-
demíuna er aðgengilegt á vef Red
Bull Music Academy, umsóknar-
fresturinn rennur út 7. mars og geta
áhugasamir kynnt sér akademíuna
nánar á vefsíðunni.
gunnarleofrettabladid.is
demóið af plötunni opnaði honum
aðgang að red bull Music academy
Auðunn Lúthersson tónlistarmaður er á leið í Red Bull Music Academy í haust.
fRéttABLAðið/viLheLM
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson er
staddur í Ósló þar sem hann kemur fram á
tónlistarhátíðinni Bylarm. Hann er að leggja
lokahönd á sína fyrstu breiðskífu og heldur í
Red Bull Music Academy í Montreal í haust.
5 . m A R S 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R78 L í F i ð ∙ F R É T T A B L A ð i ð
0
5
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
A
E
-7
2
8
8
1
8
A
E
-7
1
4
C
1
8
A
E
-7
0
1
0
1
8
A
E
-6
E
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
3
6
s
_
4
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K