Fréttablaðið - 05.03.2016, Blaðsíða 134
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
27.02.16-
04.03.16
ManueLa á
tískuvikuna í París
„Mér hefur verið boðið fjór-
um sinnum og nú buðu þau
mér aftur, sem er geggjað.
Ég hef fengið að kynnast
öllum hjá merkinu vel svo
það að fara út er eins
og að hitta gamla vini
bara,“ sagði Manuela
Ósk Harðardóttir sem
heldur á tískuvikuna
í París á morgun og
kemur til með að
aðstoða við sýningu
Soniu Rykiel.
Die antwoorD og M.o.P.
á secret soLstice
31 nýtt nafn bættist í þann hóp
tónlistarmanna sem fram koma á
Secret Solstice-tónlistarhátíðinni
dagana 16.-19. júní. Meðal þeirra
sem bættust við voru suður-afríska
rapp tvíeykið Die
Antwoord og
rappdúetinn
M.O.P. Að
auki troða
Radiohead
og Deftones
upp á há-
tíðinni.
Herja á HróarskeLDu
Reykjavíkurdætur og Milkywhale
koma fram á tónlistarhátíðinni í
Hróarskeldu í ár en Reykjavíkur-
dætur er fyrsta íslenska rappsveitin
sem kemur fram á hátíðinni. Sextán
til tuttugu Reykjavíkurdætur munu
koma fram á hátíðinni en sveitin
gefur út sína fyrstu plötu í vor og er
tónleikaferðalag fyrirhugað í sumar.
HanDan okkar skiLnings
„Þetta er fyrst og fremst dramasería
þar sem ýmislegt dularfullt á sér stað.
Eitthvað handan okkar skilnings,“
segir Sigurjón Kjartansson, einn hand-
ritshöfunda sjónvarpsþáttanna Kötlu,
íslenskrar þáttaraðar sem framleidd
verður af RVK Studios, Baltasar Kor-
máki og Stöð 2. Auk
Sigurjóns sjá
þeir Ólafur
Egilsson og
Guðmundur
Oddur
Magnússon
um handrits-
skrifin.
„Það vildi svo skemmtilega til að ég
fékk lítið hlutverk í myndinni, ég
leik Diðrik en honum bregður fyrir
nokkrum sinnum og fær meira að
segja nokkrar línur, Diðrik er kvik-
myndanörd og fastagestur í verslun
aðalhetjunnar, Hrings, sem er leik-
inn af Atla Rafni Sigurðssyni,“ segir
Nilli stoltur og bætir við að þetta sé
lífsreynsla fyrir lífstíð og að hann
geti búið að þessari reynslu alla ævi.
Reykjavík er dramatísk kómedía
um sambönd og samskipti og ger-
ist í samtímanum. Þetta mun vera
frumraun Nilla á hvíta tjaldinu. Þó
að hann hafi verið með hlutverk í
myndinni var hann upprunalega
ráðinn til þess að sjá um leikmuni
en starf hans þróaðist heldur betur,
þar sem hann sá alfarið um leik-
myndina.
„Ég annaðist leik-
my n d i n a , e n é g
mundi ekki kalla
mig leikmynda-
hönnuð, ef ég
gerði það þá yrði
það móðgun við
leikmyndahönn-
uði í kvikmynda-
iðnaði þessa lands.
Ég reisti vídeóbúð á
Óðinstorgi og kom
heilli íbúð fyrir á Leifs-
götu á fimmtu hæð, þar
sem engin lyfta var. Ég er ekki frá
því að ég hafi lést um heil sjö kíló.
Framleiðandi myndarinnar, Söl-
mundur Ísak, Daníel Gylfason,
Haraldur, Dagur og kærasta mín,
hún Maríanna, hjálpuðu mér mjög
mikið,“ segir Nilli aðspurð-
ur hvort hann sé leik-
m y n d a h ö n n u ð u r
fyrir kvikmyndina
Reyk javí k e f t i r
Ásgrím Sverrisson.
„Margt af því
sem við sjáum í myndinni er reist
leikmynd, og það setti ég upp ásamt
kærustinni minni, Maríönnu Rún
Kristjánsdóttur, og góðum RÚV-
urum, meðal annars Sigga Óla
sem var okkar helsti klettur í fram-
kvæmdunum. Maríanna mín keyrði
mig svo út um allan bæ til að sanka
að mér alls konar hlutum til að nýta
í myndina, það var ómetanlegur
stuðningur því án hennar hefði mér
ekki tekist þetta,“ segir Nilli sem er
fullur þakklætis fyrir að eiga góða
að.
Í dag starfar Nilli sem sem sýn-
ingarstjóri hjá Íslensku óperunni í
Hörpu og líkar það mjög vel.
„Það er mjög gaman að vinna með
Íslensku óperunni, en um þessar
mundir er óperan að sýna verkið
Don Giovanni eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart sem er að vekja mikla
lukku hjá áhorfendum,“ segir Nilli.
gudrunjona@frettabladid.is
nilli í fyrsta skipti
á hvíta tjaldinu
Níels Thiebaud Girerd, sem er betur þekktur sem Nilli, bregður fyrir
í kvikmyndinni Reykjavík eftir Ásgrím Sverrisson sem frumsýnd
verður 11. mars næstkomandi. Nilli sér einnig um leikmyndina.
Nilli í hlutverki Diðriks, en hann er kvikmyndanörd.
Nilli sá um að rigga upp þessari flottu leikmynd.
Nilla begður
fyrir í kvikmyndinni
Reykjavík sem
frumsýnd verður
í lok næstu viku.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
F E R M I N G A R T I L B O Ð
H E I L S U R Ú M F Y R I R
U N G T , V A X A N D I F Ó L K
C & J G O L D
C &J G O L D H E I L S U R Ú M
� Fimm svæðaskipt
pokagormakerfi.
� Laserskorið heilsu- og
hægindalag tryggir réttan
stuðning.
� Vandaðar kantstyrkingar.
� Slitsterkt og mjúkt áklæði.
� Val um lit á botni og löppum.
5 ÁRA
ÁBYRGÐ
H E I L S U D Ý N A N S E M L Æ T U R Þ É R O G
Þ Í N U M L Í Ð A V E L
H E I L S U R Ú M
S TÆ R Ð F U L LT V E R Ð F E R M I N G A R-
M/COMFORT BOTNI T I L B O Ð
100X 200 116.800 K R. 89.900
120X 200 141 .460 K R. 99.900
140X 200 156.460 K R. 109.900
5 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r82 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð
0
5
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
3
6
s
_
P
1
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
1
8
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
A
E
-4
B
0
8
1
8
A
E
-4
9
C
C
1
8
A
E
-4
8
9
0
1
8
A
E
-4
7
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
3
6
s
_
4
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K