Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2007, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2007, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2007 Fréttir DV Ölvaður endaði á Ijósastaur Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu hafði hendur í hári manns sem eldð hafði á ljósastaur við gamamót Vesmrlandsvegar og Alafossvegar seint í fyrrinótt. Sá hafði misst stjóm á bifreið sinni og endað ems og fyrr segir á ljósastaur en hann er grunaður um að aka undir áhrifum áfengis. Maðurinn var nokkuð lemstraður eftir áreksmrinn og var fluttur á slysadeild. Hann er þó ekki talinn alvarlega slasaður. Þrír aðrir ökumenn vom stöðvaðir í fyrrinótt vegna gruns um að abt ölvaðir. Einn þeirra er einnig gmnaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefha við aksturinn. GPS í hörðum pakka „Sérstökdómnefnd, skipuð landsliðinu í smekkvísi, komst að þeirri niðurstöðu að GPS- staðsetning- artæki yrði jólagjöfin í ár," segir Emil B. Karlsson, for- stöðumaður Rannsóknar- semrs versl- unarinnar á Bifröst. Þessi niðurstaða nefndarinnar var kynnt í gær. Emil segir dómnefndina hafa komist að því að GPS-tæki féllu vel að tíðarandanum og notkun- armöguleikar hafi aukist á síðusm ámm. „Þessi tæki verða sífellt ódýrari og einfaldari í notkun og því vinsælli," segir Emil. Rannsóknar- tíminn hefur ekki áhrif Hróbjarmr Jónatansson hæstaréttarlögmaður telur ekki að langur rannsóknartími efnahagsbrotadeildar ríkis- lögreglustjóra muni hafa áhrif á framvindu málsins gegn mönnunum tíu fyrir dóm- stólum. „Ég reikna með því að dómurinn muni taka tíllit til umfangs rannsóknarinnar og að því marki sem þeir eru ákærðir fyrir ólögmæta dreif- ingu á höfundarréttarvörðu efni yrði dómur gegn þeim tíl þess að staðfesta það sem vitað er." Hann segist búast við því að aukinn þungi verði settur f rannsóknir slíkra mála í framtíðinni. „Þetta er ekkert annað en skipulögð glæpa- starfsemi." Fangelsisdóm- ar og fjársektir Forsvarsmenn finnskrar skráaskiptísíðu, hliðstæðrar íslenska vefnum torrent. is, voru nýlega dæmdir til þess að greiða tugi milljóna króna í skaðabætur eftir að lögregla handtók 21 mann í aðgerð svipaðri og þegar tíu menn voru handteknir haustið 2004 hér á landi. Finnarnir voru fundnir sekir um alvarleg og endurtekin brot á höfundarréttarlögum. Þá fengu mennirnir fjársektir og skilorðsbundna fangelsisdóma. f Bandaríkjunum féll nýlega dómur þar sem forsvarsmaður skráaskiptisvæðis var dæmdur í fimm mánaða fangelsisvist. Kosningabarátta Framsóknarflokksins í síðustu borgarstjórnarkosningu var riflega helmingi dýrari en barátta flokksins i borginni fyrir síðustu þingkosningar. Heildar- kostnaður kjördæmasambanda flokksins í Reykjavík voru nærri 55 milljónir og af því skuldar flokkurinn enn tæpan þriðjung. 55 MILLJÓNIR í BARÁTTUNA wm TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamadur skrifar: trausthdv.is Borgarstjórnarflokkur Framsóknar- flokksins skuldar 15 milljónir króna eftir kosningabaráttuna fyrir síðustu sveitarstjórnakosningar. Skuldin kom í ljós við sameiningu kjördæma- sambanda flokksins í Reykjavík og var kynnt á sameiningafundi þeirra í síðusm viku. Skuldin samsvarar þriðjungi alls þess sem kostað var til í baráttunni en samkvæmt heimildum DV kostaði kosningabaráttan nærri 55 milljónir króna. Sá kosmaður er töluvert meiri en það fé sem flokkurinn lagði út fyrir kosningabaráttu fyrir sfðustu alþingiskosningar. Sú barátta kostaði kjördæmasambönd Reykjavíkur rúmar 25 milljónir króna í heildina og sá kostnaður hefur að fullu verið greiddur. Kosmaður fyrir borgar- stjórnarkosningarnar var því næst- um tvöfalt meiri en fyrir þingkosn- ingarnar og enn skuldar flokkurinn tæpan þriðjung. 13.560 hvert atkvæði Kosninganiðurstöður skiluðu Framsóknarflokknum 4.056 at- kvæðum í borginni og einum „Menn höfðu tilfinn- ingu fyrir þessari skuld en hversu mikilhún er kom ekki í Ijós fyrr en nýlega. Nú er það okkar að leggja út í fjáröflun til að slátra þessari skuld." kjömum borgarfulltrúa, Birni Inga Hrafnssyni, formanni borgarráðs. Ef heildarkostnaðinum er deilt niður á atkvæðin kemur í ljós að hvert atkvæði kostaði flokkinn 13.560 krónur. Sævar Sigurgeirsson, fráfarandi formaður Kjördæmasambands fram- sóknarfélaganna í Reykjavík suður, segir skuldirnar nokkuð miklar og að unnið verði hörðum höndum að því að klára þær á næstunni. Hann staðfestir töluverðan kosmaðarmun milli kosningabaráttu sveitarstjóm- arkosninga annars vegar og þing- kosninga hins vegar. „Menn höfðu tílfinningu fyrir þessari skuld en hversu mikil hún er kom ekki í ljós fyrr en nýlega. Nú er það okkar að leggja út í fjáröflun til að slátra þessari skuld," segir Sævar. Óljós stuðningur Á haustfundi miðstjómar Fram- sóknarflokksins var lýst yfir stuðningi við nýjan meirihluta í borgarstjóm Reykjavíkur og við fulltrúa flokksins í borgarstjóm, þá Bjöm Inga og Óskar Bergsson. Athygli vekur að í orðalagi ályktunarinnar er þess hvergi getíð að fulltrúar flokksins styðji Bjöm Inga sérstaklega eða leggi blessun yfir störf hans undanfarið í málefrium Orkuveim Reykjavíkur og dótturfélags hennar, Reykjavíkur Energy Invest. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður vinstri grænna, telur nauðsynlegt að stjómmálaflokkar séu trúverðugir í reksm sínum. Hún segir ljóst að Framsóknarflokkurinn þurfi að huga að samstöðu innan flokksins. „Dýr myndi Hafliði allur. Þettaem svakalegar tölur. Mér finnst mjög nauðsynlegt að flokkamir getí verið nokkurs konar fyrirmyndir og trúverðugir í rekstri sínum. Árangurinn hjá flokknum er ansi rýr miðað við fjármoLstur og þetta færir öllum flokk- * en peningar sem skipta sköpum varðandi hylli kjósenda," segir Kol- brún. „Álykmn miðstjómarinnar lýsir erfiðleikum Framsóknarflokksins með sitt innra starf. Maður finnur ekki mikið fyrir baklandi Bjöms Inga í Reykjavík og ég tel verulega aðkall- andi fýrir flokldnn að fara í innri upp- byggingu." um sanrunn um það að það er eitthvað J annað Björn Ingi Hrafnsson Formaður borgarráðs er sá eini sem komst inn eftir tæpar 55 milljónir króna sem kjördæmasambönd Framsóknar- flokksins lögðu út í kosningabaráttunni. Flvert atkvæði kostaði rúmar 13 þúsund krónur. Mannekla leiðir til þess að Samskip leita til erlendra ráðningarstofa: íslendingar með réttindi finnast ekki Samskip hafa undanfarið leitað til erlendra ráðningarstofa til að manna flutningaskip sín. Erfiðlega gengur að finna tslendinga sem hafa réttindi til starfa um borð og því hafa erlendir starfsmenn verið ráðnir í staðinn. Einar Ingi Einarsson sér um ráðn- ingar á flutningaskipin og hefur aldrei áður lent í þeirri stöðu að fá ekki íslendinga til starfa. Hann úti- lokar alfarið að fyrirtækið sé vísvit- andi að losa sig við íslenska starfs- menn og ráða erlenda í staðinn. „Allir starfsmennirnir sem við höf- um ráðið undanfarið em útlending- ar. Það er bara út af manneklu því við fáum ekki íslenska starfsmenn með réttindi. Við emm alls ekki að losa okkur við fslendingana með því að ráða aðra í staðinn," segir Einar Ingi. Hann bendir á að samkvæmt alþjóð- legum kröfum þurfi hásetar að ljúka ákveðnu grunnnámi. Það felst í sex mánaða starfsþjálfun á sjó og nám- skeiði hjá Fjöltækniskólanum. Að því loknu fæst siglingaskírteini sem veit- ir réttindi sem háseti. Einar Ingi segir alla starfsmenn- ina um borð þurfa að hafa lokið grunnnáminu og vera með réttind- in. Hann bendir á að sömu vand- ræði sé með að manna vöruhúsin og löndunarþjónustu við hafnarbakka. „Menn þurfa að hafa skírteinið. Að fá það kostar hins vegar tugi þús- unda og menn em ekkert tilbúnir í að hlaupa í það. Ég hef undanfarið þurft að elta uppi fólk en það gengur erfiðlega að fá fólk með réttindi. Fyrir vikið höfum við þurft að ráða útlend- inga og því miður er þetta þróunin," segir Einar Ingi. tmusti@dv.is Ráða útlendinga Samskip eiga í erfiðleikum að finna íslenska starfsmenn með réttindi til starfa á flutningaskipum sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.