Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2007, Side 9
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2007 9
Finnski moröinginn í sambandi við nema í Bandaríkjunum:
Columbine sameig-
inlegt áhugamál
í ljós hefur komið að Finninn
Pekka-Eric Auvinen, sem framdi
fjöldamorðin í Jokela-skólanum í
Tuusulu í Finnlandi í síðustu viku,
hafði verið í sambandi við nemanda
í Bandaríkjunum sem hafði skipu-
lagt svipað ódæði í Fíladelfíu í síð-
asta mánuði. Lögfræðingur banda-
ríska drengsins staðfesti þetta
síðastliðinn mánudag.
Rannsóknarlögreglan í
Finnlandi sá fljótlega líkindin
milli myndskeiðsins sem Auvinen
hafði sett á vefsíðu YouTube fyrir
fjöldamorðin og þess sem Cho
Seung-hui, fjöldamorðinginn í
tækniháskólanum í Virginíu, hafði
tekið upp.
Pekka-Eric Auvinen og
bandaríski nemandinn, Dillon
Cossey, 14 ára, höfðu spjallað á
netinu og eitt af umræðuefnunum
var hin alræmdu fjöldamorð í
Columbine-skólanum í Kólóradó
árið 1999, en þá féllu þrettán
nemendur fyrir hendi tveggja
nemenda. Þessar upplýsingar hafa
vakið spurningu um hvort banda-
ríska lögreglan hefði getað varað
finnska starfsbræður sína við
um yfirvofandi ódæði Pekka, því
Cossey var handtekinn í október.
Reyndi að ráða félaga
Dillon Cossey ætlaði sér að fremja
fjöldamorð í Plymouth Whitemarsh-
skólanum í Pennsylvaníu, en upp
Perttu-skólinn íTuusula í Finnlandi
fjöldamorð í gær.
komst um áform hans þegar drengur
sem hann reyndi að fá til félags við
sig, sagði til hans. Á heimili Cossey
fundust vopn og myndbönd um
Columbine-fjöldamorðin. Lögfræð-
ingur Cosseys, David Farrell, sagði
að Cossey og Auvinen hefðu rætt
tölvuleiki og deilt myndböndum af
þeim sjálfum, en augljóst hafi verið
Lögreglumenn á vakt í kjölfar hótunar um
að Columbine hafi verið helsta
sameiginlega áhugamálið.
Móðir Cosseys, Michele, hefur
einnig verið ákærð. Hún er sökuð
um að hafa hjálpað honum að koma
sér upp vopnasafni og ákærð fyrir að
hafa keypt með ólöglegum hætti riffil
með leysisjónauka og .22 kalíbera
skammbyssu fyrir son sinn.
Flóð og aurskriður ekki það eina sem hrjáir íbúa flóðasvæða:
Herinn eltistvið krókódíla
Flóð og hvirfilbyljir hafa herjað
á norður- og miðhluta Víetnam
síðan snemma í október og kostað
tvö hundruð og ellefu manns lífið.
Þorpsbúar á flóðasvæðunum
þurfa ekki aðeins að glíma við
flóð og aurskriður af völdum
úrhellisrigninga. Að þeim steðjar
ný og ólík hætta því allt að fimm
þúsund krókódílar flýðu af býli um
helgina og leika nú lausum hala á
svæðinu. Vatnsflaumurinn reif með
sér girðingar á krókódílabýlinu með
þeim afleiðingum að krókódílarnir
gám hindrunarlítið dreift sér um
nágrennið sem er meira og minna
undir vami.
Vo Lam Phi, ríkisstjóri í Khanh
Hoa-héraði, sendi út viðvörun til
þorpsbúa þar sem þeir voru hvattir
Flóðin í Víetnam Krókódlll fangaður
til að verða skilað til síns heima.
til að vera á varðbergi og tilkynna
yfirvöldum tafarlaust ef vart yrði
ferða krókódílanna.
Herinn settur í málið
Yfirvöld hafa enn ekki getað
staðfest hve margir krókódílar af
býlinu hafa flúið, en þau taka enga
áhættu. Hermenn, þjóðvarðlið og
skógarverðir voru kallaðir út til
höfuðs skriðdýrunum og leita þeirra
nú vopnaðir hríðskotarifflum. Að
sögn talsmanns hersins hafði hon-
um tekist að koma fyrir kattarnef
ellefu dýrum þar sem þeir stefndu
ótrauðir að nálægum þorpum eftir
að hafa skriðið upp árbakka.
En betur má ef duga skal því
margir krókódílar frá þessu rílds-
rekna býli leika enn lausum haia,
því þeim tókst að komast að nálægri
á sem rennur í gegnum nokkur
þorp. Krókódílar eru ræktaðir vegna
húðarinnar og magurs kjöts sem
á miklum vinsældum að fagna í
veitingahúsum í Hanoi.
Níutíu sjálfsmorð á dag
Japönsk stjómvöld hvetja nú þjóðina
til að endurskoða viðhorf til sjálfs-
morða í viðleitni til að uppræta alda-
langa hefð og samfélagslegan þrýsting
vegna þeirra. Að mati stjórnvalda er
kominn tími til að hætta að upphefja
sjálfsmorð sem „virðingarverða leið út".
Um m'utíu manns fremja sjálfsmorð á
dag í Japan og yfirvöld telja að þau beri
að skoða sem afleiðingu örvinglunar
og jafnvel eitthvað sem hægt væri að
koma í veg fýrir.
Þvingaðar til sjálfsmorðs
Sjálfsmorðum tyrkneskra kvenna
hefur fjölgað gífurlega síðan yfirvöld
þar í land hertu refsingar vegna
heiðursdrápa. Talið er fullvíst að ungar
konur séu nú þvingaðar til sjálfsmorðs
til að koma í veg fyrir að hægt sé að
sækja einhvern til saka. Ástandið er
sérstaklega slæmt í suðausturhluta
landsins og hafa kvennastofnanir
tilkynnt um hundruð sjálfsmorða þar
um slóðir. Þó er talið að fjöldinn sé
mun meiri, en þeir sem hlut eigi að
máli haldi hlífiskildi hver yfir öðrum.
Birkiaska
Umboðs- og söluaöili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN