Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2007, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2007
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
ReynirTraustason og Sigurjón M. Egilsson ébm.
FULLTRÚIRITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viötöl blaösins eru hljóörituö.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ÁSKRIFTARSlMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40.
SANDKORN
■ Spenna ríkir vegna
óútkominnar lífssögu Guðna
Ágústssonar, formanns
Framsóknar-
flokksins,
semvæntan-
leg er á
næstunni.
Vonast er
til að Guðni
geri þar upp
við Halldór
Ásgríinsson
fyrrverandi formann en
samband þeirra var á
köflum stormasamt. Einnig
er þess vænst að Valgerður
Sverrisdóttir, varaformaður
Guðna, fái sinn skammt.
En víst er að Guðni mun
fara mjúkum höndum um
Davíð Oddsson, fyrrverandi
forsætisráðherra, en þeirra á
milli ríkir góður vinskapur.
■ Misjöfnviðbrögðhafa
orðið við þjóðargjöf Björgólfs
Guðmunds-
sonar sem
á móti Rík-
isútvarp-
inu hefur
ákveðið að
leggja fram
krónu á
móti krónu
í leiknar
kvikmyndir sem yrðu sýndar
á RÚV. Andmælendur þessa
fyrirkomulags benda á að
þarna sé ríkisfyrirtæki í
samkrulli við einkaaðila sem
meðal annars stendur að
rekstri Árvakurs, útgefanda
Moggans og 24 stunda. Páll
Magnússon útvarpsstjóri
mætti í Kastíjós til að svara
fyrir samninginn og það
vakti mikla athygli hve
óvæginn undirmaður hans
Siginar Guðmundsson var í
spurningum sínum.
■ Samningur Björgólfs
Guðmunds-
sonar færir
Þórhalli
Gunnars-
syni dag-
skrárstjóra
meiri völd
yfir íslenskri
sjónvarps-
myndagerð
en áður hafa sést hér á landi.
Víst er að Þórhallur þarf
virkilega að taka á allri sinni
sanngirni til að forðast þær
gryfjur sem því fylgja að vera
nánast einvaldur á þessu
sviði. En það kann einnig að
fara svo að samningurinn
verði dæmdur ólögmætur
og kaleikurinn tekinn frá
dagskrárstjóranum.
■ Skartgripahönnuðurinn
og fyrirsætan Brynja Sverris
hefur ákveðið að fyrirgefa húð-
flúraranum Fjölni Bragasyni
og sjónvarpskokldnum Jóa Fel
fyrir að hafa flúrað munstur
af friðararmbandi sem hún
hannaði á upphandlegg þess
síðarnefnda. Frá þessu segir
á mannlif.is. Brynja brást illa
við því að hönnun hennar var
færð á líkama kokksins og um
tíma leit út fyrir að í hart stefndi.
Brynja mun hafa komist að þeirri
niðurstöðu að fyrirgefa eftir
íhugun í Dómkirkjunni.
Við biðjumst vægðar
LEIÐARI
SIGURJÓN M. EGILSSON RITSTJÓRI SKRIFAR.
Eigendur audsins og þjánarþeirra liafa gengid of langt.
Hinn venjulegi fslendingur biðst vægðar. Ekki er lengur
unandi við að skuldir heimilanna stórhækki við það
eitt að olíuverð á heimsmarkaði stighækki. Ekki er
lengur unandi við að skuldir okkar hækki vegna
þess óróa sem er á fasteignamarkaði. Hér viðgengst svívirðileg
tilfærsla á peningum, frá fólkinu til bankanna, með velþóknun
stjórnvalda. Þetta hefur verið látið viðgangast allt of lengi. Nú er
nóg komið. Við höfúm engin áhrif á heimsmarkaðsverð á olíu og
það er ekki okkur að kenna hvað hefur gerst á fasteignamarkaði.
Þið, stjórnmálamennirnir, berið ábyrgðina og það er
ykkar að aflétta nauðunginni af okkur. Við biðjumst
vægðar.
ísland er meðal fárra þjóða innan OECD sem reiknar
fasteignaverð í vísitöluna af svo miklu afli. Flestar
þjóðir innan OECD miða við leiguverð til að meta
fasteignaþáttinn í vísitöluna. Þeirra á meðal eru
Bandaríkin, Danmörk og Noregur. Svo eru aðrar
þjóðir sem styðjast ekkert við fasteignaverð. Það
er til að mynda gert við útreikninga á samræmdri
vísitölu Evrópusambandsins.
Uppi er ákall til þeirra sem ráða um að leggja af
fantaskapinn, líta niður til fólksins og reyna að
skilja að það er komið nóg. Eigendur auðsins
ogþjónarþeirrahafagengið oflangt. Þjóðin er upplýst oghún veit
hvað býðst í öðrum löndum. Svo kann að fara að almenningur
leiti til annarra landa með viðskipti sín verði ekki gerð breyting.
Gengisáhætta kann að vera nokkur, en hún verður sennilega
aldrei meiri en sú þröng sem við búum við hér. Við íslendingar
erum leiðir á okrinu, við erum leiðir á að vera þrælar ráðamanna
og peningamanna. Okkur er gert að borga heimsins hæstu vexti,
borga hæsta matarverðið. Allt vegna þess að hagsmunir fárra
eru teknir fram yflr hagsmuni fjöldans. Víðsýni fólks eykst og nú
er svo komið að við getum fylgst með því sem er að gerast
í öðrum löndum. Með kjörum fólks og afkomu. Það er
komið nóg af ofbeldi.
Rökin um að afnám eða breyting á verðtryggingunni leiki
lífeyrissjóðina illa eru haldlítil. Hlutir þeirra í verðtryggðum
údánum er ekki mikill og til að halda þeim lánum með bæði
háum vöxtum og verðtryggingu er fórnarkostnaðurinn
bara allt of hár. Það er ekki sama hvernig við tryggjum
okkur ágætan lífeyri að loknum vinnudegi. Með
verðtryggingunni borgum við húsnæðislánin okkar
margfalt til baka, og mun oftar en fólk gerir í öðrum
löndum. Það eru meiri hagsmunir fyrir minni að afnema
eða breyta verðtryggingunni og færa nær því sem annað
fólk þarf að þola. Við biðjumst vægðar.
GUÐÍB0ÐIBANKANS
SVARTHÖFÐI
Svarthöfði er þeirrar skoðunar
að ekki megi múlbinda sig á
eina stefnu í pólitík. Sveigjan-
leikinn verður að vera til staðar án
þess þó að einkaframtakið og hið
opinbera beinlínis fallist í faðma.
Þannig skilur Svarthöfði ekki al-
mennilega sjálfstæðismennina í
borgarstjórn sem vita ekki að það
getur myndast mjög skemmtilegur
efnasamruni þegar samstarf einka-
aðila og opinberra verður. Skvettu-
gangurinn út af Orkuveitunni og
Geysi græna var óskiljanlegur þegar
til þess er litið að þarna voru millj-
arðar innan seilingar. ___
Auðjöfurinn Björgólfur Guð-
mundsson er sjálfstæð-
ismaður sömu gerðar og
Svarthöfði. Hann er með það á
hreinu að með því að leggja gullið
sitt við það gull
sem þjóðin á í
Ríkisútvarp-
inu myndast
orkusveipur
sem getur þeytt
á loft grettistök-
um. Þegar krónur
hans og Ríkisút-
varpsins mætast tii að
styrkja íslenska kvikmyndagerð
má búast við sprengingu. Vorið í
íslenskri kvikmyndagerð er innan
sjóndeildarhrings. Það er hreint
aukaatriði að Ríkisútvarpið er á
framfæri almennings og á sama
tíma í samkeppnisrekstri. Menn
verða að sjá skóginn fyrir trjánum
og átta sig á því að það þarf að færa
fórnir fyrir listina.
Afturhaldsseggir sem hanga
í lagakrókum hvað varðar
eðli Ríkisútvarpsins ættu að
skammast sín til að sjá ljósið. Ekk-
ert á að vera heilagt þegar kemur
að samvinnu einkaaðila og opin-
berra, ja, nema kannski embætti
ríkisskattstjóra.
Kirkjan gætí til dæmis tekið
sér þetta fyrirkomulag tíl fyr-
irmyndar og heimilað veð-
setningu guðshúsa og einkavæð-
ingu þeirra. Það er ekki fráleitt að
Landsbankinn gæti styrkt einstak-
ar guðþjónustur með fjárframlagi
gegn því að lógó bankans yrði sett
á krossinn og prestur viðkom-
andi guðþjónustu léti þess
getíð að þessi guðþjónusta
væri í boði Landsbankans.
Þá mætti selja Kaupþingi
örlítíð pláss á forsíðum
sálmabóka fyrir einkenn-
ismerki bankans. Jafnvel
mættí hugsa sér að Þjóðkirkj-
an gerði stóran samning um að tíl
dæmis Landsbankinn fengi merki
sitt ffaman á allar Biblíur. Það gætí
verið límmiði. Jón Ásgeir, Hann-
es Smárason eða Björgólfur væru
hugsanlega tíl í slíkan risasamning
sem myndi gjörsamlega bjarga fjár-
hag kirkjunnar um langa fram-
tíð. Svarthöfði sér fyrir sér
Icelandair-merkið framan
á Biblíunni. Svo gæti bisk-
upinn gefið út tílskipun
um að allar messur í land-
inu hæfust á frasa á borð
við: Guð er í boði Björgólfs.
Þá loksins væri orðinn fullur
samruni einkaframtaks, hins opin-
bera og æðstu máttarvalda.
„Það þarf að gera eitthvað og
sérstaklega þurfum við að gripa til
aðgerða á lánamarkaði."
Sigurbjörg Pálsdóttir,
23 ára, háskólanemi
„Sannarlega, verðið er allt of hátt og
vextirnir eru allt of háir."
Anna Víglundsdóttir,
79 ára, húsmóðir
„Já, það þarf að gera það, ég tel að það
verði hægt að lækka fasteignaverð."
Hjálmar Stefánsson,
81 árs, húsasmiður
„Ég myndi segja að það þyrfti að grípa
til aðgerða og það er vel hægt að ná
árangri ef við gerum eitthvað í þessum
lánamálum."
Bjarni Benediktsson,
23 ára, háskólanemi
DÓMSTÓLL GÖTUIVNAR
ÞARF AÐ GRÍPA TIL AÐGERÐA Á HÚSNÆÐISMARKAÐI?