Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2007, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2007, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2007 Sport ÍÞRÓTTAMOLAR SCHUMACHER HEFUR ÞAÐ ENN Michael Schumacher, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, gerði sér lítið fyrir og náði besta tímanum á æfingu Ferrari-liðsins í Barcelona í gær. Schumacherer38 ára og hefur engar fyriráætlanir um að snúa aftur í Formúlu l,ensagði að hann hefði tekið þátt í æfingunni að hluta til vegna ánægjunnar og að hluta til vegna tæknilegra ástæðna. Einn þeirra sem viðstaddur voru æfinguna var David Coulthard, ökumaður Red Bull og elsti ökumaður Formúlu 1, og hann sló á létta strengi.„Það lítur út fyrir að hann sé hæfileikaríkur. Hann mun komast í Formúlu 1," sagði Coulthard. BUTTON HÓTAR AÐ HÆTTA Breski ökuþórinn Jenson Button hefur hótað að hætta hjá Honda á næsta ári eftirað liðið náði aðeins í sex stig á síðastliðnu tímabili. Button vann í ungverska kaþpakstrinum í fyrra en síðan þá hefur leið Honda legiðniðurá við. Button endaði með sex stig á síðasta tímabili og Rubens Barrichello, félagi hans hjá Honda, fékk ekkert stig.„Bíllinn var hræðilegur og ég hef einfaldlega ekki áhuga á að keppa á þessum bfl lengur. Ég man að eftir ungverska kappaksturinn á þessu ári langaði mig að lemja einhvern. Ég hafði unnið þann kappakstur tólf mánuðum áður og að þessu sinni sat ég f einhverju sem var gjörsamlega óökuhæft," sagði Button. ÚRSLITÍGÆR EIMSKIPS-BIKAR KVENNA Valur - Fram 29-23 MörkVals (víti): Eva Barna 9 (1), Kristín Guðmundsdóttir 5, Dagný Skúladóttir 4, Guðrún Drffa Hólm- geirsdóttir 4, Katrín Andrésdóttir 3, Hildigunnur Einarsdóttir 2, Anna Guðmundsdóttir 1, Nora Valovics 1. Varin skot (víti): Berglind Hansdóttir 27 (2). Mörk Fram (víti): Ásta Birna Gun- narsdóttir 5, Sara Sigurðardóttir 4, Pavla Nevarilova 4, Anett Köbli 3, Stella Sigurðsdóttir 3, Sigurb- jörg Jóhannsdóttir 2, Þórey Rósa Stefánsdóttir 1, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 1. Varin skot (víti): Kristina Kvedariene 19(2). SPÆNSKI BIKARINN Alcoyano - Barcelona 0-3 - Eiður Smári Guðjohnsen lék allan leikinn í liði Barcelona og skoraði annað mark liðsins úr vftaspyrnu á 89. mínútu. ÍDAG Enska úrvalsdeildin Heimur úrvalsdeildarinnar Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum. Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í leikjum siðustu umferðar í Coca Cola deildinni. Ensku mörkin Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik umferðarinnar eru sýnd frá öllum mögulegum sjónarhornum. 20:30 4 42 Þáttur sem er ekkert minna en bylting i umfjöllun um enska boltann á islandi. Enska úrvalsdeildin daginn. Eva Barna fór mikinn í liði þeirra og skoraði 9 mörk auk þess sem Berglind Hansdóttir varði alls 27 skot. Kollegi hennar í Frammarkinu, Kristina Kvedariene, stóð sig einnig mjög vel og varði 19 bolta. Ætlum okkur í Höllina Ágúst Þór Jóhannesson var að vonum sáttur við spilamennsku sinna stúlkna í leikslok. „Við vorum með frumkvæðið allan tímann og við spiluðum mjög vel. Bæði 3-2-1 vörnin og 6-0 vömin var góð og það gaf okkur mikið. Eins fannst mér við vera með fínar lausnir sóknarlega og við vorum ekki í jafnmiklum vandræðum með þær þar eins og í síðasta leik gegn þeim í deildinni. Sá leikur sat í okkur og við ætluðum að sjálfsögðu að bæta íyrir þá frammistöðu. Það gerðum við svo sannarlega og nú við ætlum okkur að sjálfsögðu í Höllina," sagði Ágúst Þór Jóhannesson að leik loknum. Einar Jónsson, þjálfari Fram, taldi sigurinn sanngjaman. „Þettavarmjög erfitt og við eltum allan leikinn. Við gerðum endalaust af tæknifeilum og hentum boltanum of oft frá okkur. Svo skipti miklu að þær gerðu 12-15 mörk úr hraðaupphlaupum á meðan við gerðum kannski 3. Við töpum þessu á okkar eigin mistökum og okkur gekk illa að finna lausnir á vamarleik í fyrri hálfleik því fór sem fór," sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram. VIÐAR GUÐJONSSON blaðamaður skrifar: viclamciv.is Valsstúlkur komust í undanúrslit Eimskipsbikars kvenna með góðum 29-23 sigri á Fram. Berglind Hans- dóttir markvörður Vals fór hamfömm í leiknum og varði 27 skot sem eru um 53 prósent skota sem komu á markið. Góður leikur hennar auk sterkrar varnar og hraðaupphlaupa lagði grunninn að sigrinum. Framstúlkur byrjuðu ákveðnar og komust tveimur mörkum yfir strax í upphafi en næsta mark þeirra kom ekki fyrr en á 12. mínútu en þá voru Valsstúlkur búnar að gera 4 mörk. Góður varnarleikur Valsstúlkna gerði Fram erfitt fyrir megnið af fyrri hálfleik. í markinu stóð Berglind Hansdóttir og varði hvert skotið á fætur öðm. í fyrri hálfleik varði hún alls 15 skot og þar af tvö vítaköst. Eva Barna fór mikinn framan af leik og skoraði 4 mörk í fyrri hálfleik og athyglisvert var að Valur gerði 5 mörk í fyrri hálfleik úr hraðaupphlaupum en Fram gerði ekkert. Framstúlkur leituðu mikið eftir Pövlu Nevarilovu á línunni en Valsstúlkur voru þéttar á miðjunni og lokuðu fyrir allt línuspil. Sóknarleikur Vals var betri þó heilt yfir hafi leikur liðanna einkennst af mistökum í sókninni. í hálfleik leiddi Valur með fjórum mörkum, 12-8. Strax í upphafi síðari hálfleiks var ljóst að Valsstúlkur ætluðu ekki að láta deigan síga og komust í 6 marka forystu. Sjö sóknarmenn Fram Hraðinn jókst eftir það og Framstúlkur reyndu að hleypa leiknum örlítið upp í von um að fá fleiri opin færi þar sem lítið gekk hjá þeim að komast í gegnum sterka vörn Vals. Munurinn hélst óbreyttur fram eftir hálfleiknum og nokkrum sinnum náðu Framstúlkur að minnka muninn niður í fjögur mörk en þá tóku Valsstúlkur kipp og náðu sex marka mun að nýju. Þegar 6 mínútur lifðu leiks greip Einar Jónsson, þjálfari Fram, til þess bragðs að hafa 7 sóknarmenn gegn 6 varnarmönnum Vals auk mark- varðar. Þetta herbragð virtist ætla að virka í fyrstu og Framstúlkur náðu að minnka muninn niður í 3 mörk 25-22. Þá var nóg komið að mati Valsstúlkna. Þær kláruðu leikinn með stæl og í lokin var munurinn sex mörk 29-23. Frá upphafi var ljóst að Valsstúlkur ætluðu sér að hefna ófaranna síðan úr Safamýrinni um Leikmenn gagnrýna harðlega ítölsk stjórnvöld og forráðamenn knattspyrnunnar: S0RGARDA6UR í ÍTALSKRI KNATTSPYRNU Enn frekari vandræði Hætta þurfti leik Atalanta og Milan eftir átta mínútur eftir að upp komst um fyrirhuguð ólæti meðal stuðningsmanna. ítölsk knattspyma er í lamasessi eftir dauða áhanganda í átökum sem sköpuðust á milli stuðningsmanna Lazio og Juventus fyrir leik liðanna á sunnudag. í kjölfarið hefur verið ákveðið að fresta öllum leikjum sem áttu að fara ffarn um næstu helgi á meðan tekið er á málunum. Leikmenn hafa hver á fætur öðrum lýst yfir áhyggjum af gangi mála. Marg- ir hafa komið fram og þeir hafa opin- berlega gagnrýnt stjómvöld á ítah'u og forráðamenn ítalskrar knattspymu. Kaka, leikmaður Milan, telur að slík átök sem áttu sér stað á sunnudag séu allt of algeng og ítölsk knattspyma muni skaðast því leikmenn hugsi sig tvisvar um áður en þeir fari þangað. „ftölsk knattspyma er að tapa öllum trúverðugleika. Það er mikilvægt að grípa til aðgerða sem fyrst tfi þess að spoma við þessari þróun. Lefiönenn í heimsklassa viljaspila á Ítalíu en öllum skandölunum, dauði lögreglumanns og nú síðast stuðningsmanns, verður að ljúka nú þegar, annars fara allir bestu leikmennimir annað," sagði Kaka. Alberto Gillardino og Andrea Pirlo, leikmenn Mfian, taka í sama streng en leik þeirra við Atalanta var hætt eftir 8 mínútur um síðustu helgi eftir að áhorfendur höfðu hótað uppþotum. Þeir spyija sig hvort þessir hlutir eigi aldrei eftir að breytast í ítalskri knattspymu. „Við erum gjörsamlega komnir að endastöð. Við erum að niðurlotum komnirogennánýemöUíþróttaleggildi fokin út í veður og vind. Sömu aðstæður koma upp aftur og aftur án þess að komið sé í veg fýrir endurtekningu. Að þurfa að yfirgefa völlinn á þennan hátt er afar niðurdrepandi. Því lengri tími sem h'ður án þess að eitthvað sé aðhafst því verri verður fótboltinn," sögðu þeir Gillardino og Pirlo. Fyrrverandi forsætisráðherra og eigandi AC Mfian, Sfivio Berlusconi, var dapur í bragði aðspurður um máhð. „Þetta var hræðfiegur dagur og kannski hefði verið betra að hætta öllum leikjum," sagði Berlusconi, en aðrir leildr sem fóm fram á sunnudag vom spfiaðir þrátt fyrir harmleikinn. vidar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.