Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
„Eg braut engin lög og
þarf ekki aö segja af
mér,“ segir Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson,
oddviti sjálfstæðis-
manna i borgarstjórn.
Hann segist aldrei
hafa ihugaö afsögn
vegna REI-málsins og
eftirmála þess. Nú vill
hann fá friö og tíma
til aö nýr meirihluti
geti unnið i sinum
málum. Vilhjálmur
visar þvi á bug aö
ósamlyndi ríki í borg-
arstjórnarflokki sjálf-
stæöismanna.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
bladamadur skrifar: traustl^dv.is
„Ég hef það bara mjög gott. Mér líð-
ur ágætlega í dag," segir Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæð-
ismanna í borgarstjórn, í viðtali við
DV í gær er hann var spurður um
líðan sína. Þeirrar spurningar var
hann spurður að loknum blaða-
mannahindi þar sem hann tilkynnti
borgarbúum að hann hygðist sitja
áfram sem oddviti Sjálfstæðisflokks-
ins og hugsanlega taka við borgar-
stjórastólum á síðari helmingi þess
tíma sem eftir er af kjörtímabilinu.
Jafnframt tilkynnti hann að kjör-
tímabilið sé hans síðasta í borgar-
pólitíkinni.
Aðspurður viðurkenndi Vil-
hjálmur aftur á móti fyrir blaða-
manni að honum hafi ekki liðið vel
nóttina fyrir fundinn í gær. „Venju-
lega sef ég yfirleitt mjög vel og það
hefur verið mín gæfa. Eg svaf hins
vegar illa í nótt," segir Vilhjálmur.
Mikið hefur gengið á í lífi hans
eftir að skýrslan um REI var kynnt.
Geir styður mig
„Að sjálfsögðu ætla ég ekki að
hætta sem borgarfulltrúi eða sem
oddviti út af REI-málinu. Það hvarfl-
aði aldrei að mér og strax í upphafi
deilunnar tók ég þá ákvörðun. Ég
var kosinn glæsilegri kosningu og
þó að ég hafi skynjað óánægjuna í
samfélaginu skil ég ekki hvers vegna
það varð stóra málið að ég segði af
mér," segirVilhjálmur.
Aðspurður útilokar Vilhjálmur
alfarið að hafa íhugað að hætta sem
borgarfulltrúi eða að ýtt hafi verið á
hann að hætta af forystumönnum
flokksins. „Það var enginn þrýsting-
ur á mig að hætta og ég fékk eng-
in slík fyrirmæli frá forystunni. Við
Geir ræddum málin og hann gaf
mér engar ákveðnar leiðbeiningar.
Hann styður mig bara," segir Vil-
hjálmur.
Engin sundrung í hópnum
Athygli vakti að Vilhjálmur kom
einn til fundarins í gær en fram til
þessa hefur hann verið vanur að
stilla fulltrúum sínum að baki sér.
Þá vakti athygli að Hanna Birna og
Gísli Marteinn laumuðu sér út bak-
dyramegin í Valhöll til að komast
undan fjölmiðlum. Aðspurður vísar
Vilhjálmuröllumsamsæriskenning-
um um ósamlyndi í borgarstjórnar-
flokknum á bug. „Ég vildi einfald-
lega sitja einn og svara fjölmiðlum.
Það er alrangt að borgarstjórnar-
flokkur minn sé óstarfhæfur. Ég hef
sjaldan verið í hópi sem hefur unnið
eins vel saman. Þarna eru glæsilegir
og öflugir fulltrúar sem eru tilbún-
ir til að takast á við verkefnin," segir
Vilhjálmur.
Ekki brotlegur
Vilhjálmur biður um frið og tíma
til þess að nýr meirihluti nái að
vinna að sínum málum. Hann ætlar
að taka hagsmuni flokksins fram yfir
sína persónulegu hagsmuni þeg-
ar hann ákveður hvort hann gerist
borgarstjóri. „Ég braut ekkert af mér
og skil ekki hvers vegna það næg-
ir ekki að biðjast afsökunar. Sumir
biðjast ekki einu sinni afsökunar. Ég
gerði mistök og sé ekki hvers vegna
ég ætti að hætta. Mér finnst sú krafa
algjörlega ósanngjörn því ég hef
fullan rétt á því að halda áfram,"
segirVilhjálmur.
„Mér fyndist það skrítin skila-
boð, miðað við mína góðu kosn-
ingu, ef ég hefði sagt af mér. Menn
verða að hafa einhverjar forsendur
til að segja af sér og hafa farið á svig
við lög, til að mynda ef einstakling-
ur er gripinn við fjársvik eða drukk-
inn undir stýri. Ég braut engin lög
og þarf ekki að segja af mér."
Baðst afsökunar
Vilhjálmur segist einfaldlega
ekki hafa séð neina ástæðu fyrir því
að hætta sem borgarfulltrúi. Hann
þvertekur fýrir að hafa sjálfur logið
til í atburðarásinni. „Ég hef farið yfir
málið í heild sinni og reynt að finna
ástæður fyrir því að ég ætti að segja
af mér. Ég hef spurt mig hvort ég
hafi brotist inn einhvers staðar eða
stolið bíl. f grunninn hef ég alls ekki
fundið nein nægjanleg atriði sem
gefa það til kynna að ég ætti að segja
af mér," segir Vilhjálmur.
„Hefði ég komið fram með hroka
og ekki beðist afsökunar ætti ég
kannski meira skilið að taka pok-
ann minn. Þvert á móti eiga sum-
ir fjölmiðlar, til dæmis Kastljósið,
að axla sína ábyrgð í þessu máli.
„Að sjálfsögðu
ætla ég ekki að hætta
sem borgarfulltrúi
eða sem oddviti út
af REI-málinu."
Þar hafa bæði Helgi og Sigmar farið
með ósannindi. Er það vegna vina-
tengsla þess fýrrnefna við Dag. B.
Eggertsson? Mér finnst eins og far-
ið hafi verið i einhvern ham þar sem
átti að hengja mig."
Virkilega sár
Vilhjálmur segir fjölmiðalum-
hverfið í dag vera mjög hart og
óvægið. Honum líst sérstaklega illa
á bloggumhverfið sem taki allt of
harkalega á persónum.
„Ég hef ekki beðist vægðar í mál-
inu og á alveg skilið gagnrýni. Það
eru bara of margir sem hafa geng-
ið of langt og þannig myndi ég sjálf-
ur aldrei haga mér gagnvart öðr-
um. Það hefur sært mig mjög að
heyra hreinar lygar um mig," seg-
ir Vilhjálmur. Þegar hér var komið
Svandis Svavarsdóttir, oddviti vinstri grænna í borgarstjórn
„Vandræðagangurinn er æpandi og það er greinilegt að Sjálf-
stæðisflokkurinn er í öðrum veruleika en borgarbúar. Það
er mikið áhyggjuefni þegar borginni er ekki stjórnað vegna
glundroðans í Sjálfstæðisflokknum, risminni blaðamannafund
höfum við ekki séð. Mér datt í hug setningin: Fjallið tók jóð-
sótt og það fæddist lítil mús. Það var þvílíkur umbúnaður utan
um þennan blaðamannalund og svo kom Vilhjálmur fram og
sagði ekki neitt. F'lokksforystan var ósýnileg, aðrir borgarfull-
trúar snigluðust út og Vilhjálmur sat einn eftir. Fyrir liggur að
Sjálfstæðisllokkurinn geri Vilhjálm ekki að borgarstjóra en í
flokki glundroðans liggur ekki fyrir hver getur tekið við. Mér
finnst þetta mikið áhyggjuefni og staðfestir það að vandinn er
enn sjálfstæðismanna. Þeim hefur ekki tekist að botna þennan
vanda. Á meðan rekur borgin á reiðanum en við erum reiðu-
búin að taka við."
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn
„Mér fannst þetta býsna raunalegt á að horfa. Þetta er dapurlegt
framhald af þeirri málsvörn sem Sjálfstæðisllokkurinn hefur
kosið að lialda uppi síðustu daga. Mér fannst það táknrænt að
skilja Vilhjálm eftir einan á meðan aðrir laumuðust út um kjall-
arann. Það er eins og flokkurinn hafi ekki styrk til að takast á við
stöðuna eins og luin er. Óeining innan flokksins sást vel á því að
borgarfulltrúar llokksins kusu aö yfirgefa VUhjálm. Því miðut sit-
ur maður eftir með þá tilfinningu að mjög mikið sé ósagt í þeirra
hópi. Það sem verra er að hvað eftir annað er Sjálfstæðisflokkur-
inn á neyðarfundutn að tala um sín mál og á tneðan sitja mál-
efni borgarinnar á hakanum. Það eru miklu brýnni hagsmunir
heldur en einhver innanflokksátök þeirra. Það hefur nánast ríkt
stjórnarkreppa allt frá því þessi nýi meirihluti tók við. Með þessu
í dag er verið að ýta jwí vandamáli á undan sér án þess að taka á
neinu. Þannig er staðan í dag, því miður."
Óskar Bergsson, oddviti Framsóknarflokks i borgarstjórn
„Ástæðan fyrir því að Vilhjálmur heldur áfram er iyrst og síð-
ast sú aö hann er tengiliðurinn viö Ólaf F. Magnússon. Ef hann
færi frá myndi það veikja meirihlutann [wí Vilhjálmur er hal-
dreipið sem hann hangir á. Ég held að sexmenningarnir í Sjálf-
stæðisflokknum séu ekki í því sambandi sem þeir þurfa að vera
við núverandi borgarstjóra. Ég held að þetta sé bara kalt mat
hjá Sjálfstæðisflokknum þess vegna. Eg held að það sé að koma
í ljós núna hvað við Björn Ingi þurftum að búa við þessa sextán
mánuði sem við vorum meö þeim í meirihluta. Þetta er gríðar-
lega ósamstæður hópur og erfiður í samstarfi. Menn héldu að
þetta væri þruma úr heiðskíru lofti þegar Björn Ingi sleit satn-
starfinu við Sjálfstæðisflokkinn. Ég held að það blasi við öllum
landsmiinnum við hvað liann þurfti aö eiga. Þetta er ósam-
stæður hópur sem er ekki stjórntækur."