Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008 Fréttir DV l«o*n ilic Author »>l ilif * I AVu- U'Í TiMf Ucn»ril«r ÓxvAMe My Fathth OBAMA SIGUR Obama rétti sinn hlut verulega í for- kosningunum um síðustu helgi og hafði sigur í fimm fylkjum. Honum er spáð góðu gengi í Potomac-forkosningunum sem fara fram í dag, en Hillary Clinton horfir til forkosninganna í Texas og Ohio 4. mars, en þar eru á fjórða hundrað kjörmanna í boði. of Hope: Thoughts on Reclaim- ing the American Dream". Barack Obama hlaut Grammy-verðlaun- in fyrir sína bók og eru það önn- ur Grammy-verðlaunin hans. Bill Clinton hefur einnig hlotið tvenn Grammy-verðlaun. Ekki er Iíklegt að þessi sigur Baracks, þótt sætur sé, komi til með að hafa áhrif á kosningaslag- inn enda er hann kannski fyrst og fremst sálfræðilegur. Eftir að hafa hnykkt á laugardagssigrum sínum með sigri í Maine á sunnudeginum skaut hann Bill Clinton reffyrir rass þegar Grammy-verð- launin voru veitt. Nýr kosningastjóri Mitt í síðustu hremmingum Hillary Clinton, og vegna þeirra, sagði kosningastjóri hennar og vin- ur til margra ára, Patti Solis Doyle, starfi sínu lausu. Solis Doyle hef- ur verið í innsta hring Hiliary síð- astliðin sextán ár og hefur starfað fyrir Hillary-hjónin síðan Bill bauð sig fyrst fram til forsetaembættis- ins. Brotthvarf hennar hefur ver- ið yfirvofandi í nokkrar vikur og skarð hennar verður fyllt af Magg- ie Williams. Maggie Williams er enn hærra sett meðal aðstoðarmanna Hillary og var meðal annars starfsmanna- stjóri hennar þegar hún var forseta- frú. Williams var kölluð til sem að- alkosningaráðgjafi Hillary í kjölfar hins afgerandi ósigurs sem Hillary beið í forvalinu í Iowa 3. janúar. „Innanbúðarmennirnir" Nú virðist vera deginum ljósara að slagurinn um umboð demó- krataflokksins til forsetaframboðs mun ekki verða til lykta leiddur fyrr en á endasprettinum. I ljósi þess hve mjótt er á mununum hjá Hiilary og Barack er talið ólík- legt að annað hvort þeirra nái að tryggja sér þann fjölda kjörmanna sem þarf til að tryggja sér útnefn- ingu flokksins, en nauðsynlegur fjöldi er 2.025. Ef sú verður raunin kemur það til kasta óháðra kjörmanna á flokksþingi demókrata, sem fer fram í ágúst, að skera úr um hvort þeirra tekur slaginn gegn fram- bjóðanda repúblikanaflokks- ins. Þessir óháðu kjörmenn, sem gjarnan eru kallaðir „innanbúðar- menn", eru sjö hundruð níutíu og sex að tölu og innan raða þeirra eru þingmenn, ríkisstjórar, fyrrverandi forsetar og aðrir embættismenn. Á sama tíma og Clinton og Obama heyja baráttu sína á opinberum vettvangi reyna þau að tryggja sér stuðning „innanbúðarmannanna" á bak við tjöldin. Samkvæmt AP- fréttastofunni hefur Obama tryggt sér stuðning eitt hundrað þrjátíu og níu og Clinton tvö hundruð og þrettán. Eftir í pottinum eru því fjögur hundruð fjörutíu og fjórir óháðirkjörmenn. tMavcim o\ Itr.cr.uuiNC tuk Aui.mr.A> I)ri.am Bók Baracks Obama Skaut Bill Clinton ref fyrir rass er hann hlaut Grammy-verðlaunin fyrir bókina. BARACK OBAMA The ACITY HOPE KOLBEINN ÞORSTEINSSON blodamadur skrifar: kolbeinn@dv.is Barack Obama uppskar ríkulega um síðastliðna helgi og saxaði verulega á forskotið sem Hillary Clinton hafði með tilliti til fjölda kjörmanna. Obama stóð uppi sem sigurvegari í Nebraska, Wash- ington, Jómfrúreyjum, Maine og Louisiana. Einu vonbrigði helg- arinnar hjá Obama voru lítið fylgi meðal hvítra í Louisiana og tóninn sem var gefinn á „Super Tuesday" um hugarfarsbreytingu í Suður- ríkjunum reyndist falskur. f dag fara fram forkosningar í Maryland, Washington DC og Virginíu og ef eitthvað er að marka skoðanakannanir vestra þarf eitt- hvað að fara verulega úrskeiðis hjá Obama til að koma í veg fyrir sigur hans í þeim fylkjum. Einnig nýtur Obama þess að í herbúðum hans gengur betur að safna fé til barátt- unnar en hjá andstæðingi hans. Nýjustu fréttir herma að Hillary Clinton hafi í janúar lánað um þrjú hundruð og þrjátíu milljónir af eigin fé til baráttunnar. Einnig hefur komið á daginn að það var ekki kosningabragð hjá henni að ferðast með blaðamönnum á milli borga og ieika flugþjón, heldur var ill nauðsyn sem þar réð för. Á sama tíma safnaði Obama, að því er virt- ist, án mikillar fyrirhafnar rúmlega tveimur milljörðum. Sætur sigur á öðrum vett- vangi Barack Obama vann sigur á vettvangi sem er að engu leyti skyldur þeirri baráttu sem hann heyr í pólitíkinni. Eftir að hafa hnykkt á laugardagssigrum sínum með sigri í Maine á sunnudegin- um skaut hann Bill Clinton ref fýr- ir rass þegar Grammy-verðlaunin voru veitt. Bill og Barack voru báðir til- nefndir til Grammy-verðlaunanna í flokki hljóðbóka. Bill var tilnefnd- ur fyrir bók sína „Giving: How Each ofUs Can Change the World" og Barack fyrir „The Audacity

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.