Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: DagblaðlS-Vísir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Flreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elln Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
JónTrausti Reynisson og ReynirTraustason
FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guömundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins á stafrænu
formi og I gagnabönkum án endurgjalds.
öll viötöl blaösins eru hljóörituö.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 7040.
SANDKORN
■ össur Skarphéðinsson iðn-
aðarráðherra hefur greinilega
valið sér óskasamherja fram-
tíðarinnar í
Framsókn-
arflokknum.
Á blogg-
síðu sinni
slær hann á
sáttahönd
Guðna Ág-
ústssonar
formanns,
sem lýsti því yfir í Kastljósinu
að skoða bæri tillögur Sam-
fylkingarinnar í kvótamálum.
Á hinn bóginn hrósar hann
Valgerði Sverrisdóttur varafor-
manni og kallar hana „beittasta
stjórnarandstæðinginn þessa
dagana".
■ Af bloggi stjórnmálamanna
drýpur stílsnilldin helst af
bloggi össurar, að kansellí-
stíl Björns
Bjarnasonar
ólöstuðum.
Þannig
svelgdist
honum á
saltkjötinu
þegar Frið-
rik J. Arn-
grímsson hjá
LÍÚ gagnrýndi kvótahugmyndir
Samfylkingarinnar og varð
svo að orði að það hefði verið
eins og að hlusta á kölska blóta
faðirvorinu. Lykillinn að stíl
Össurar er talinn vera kyrrð
næturinnar, en færslur hans
birtast vanalega að næturlagi,
eins og gantast hefur verið
með. Nú hafa hins vegar bæði
dagsetningar og tímasetningar
horfið af bloggi ráðherrans.
■ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
gerði fréttamenn að fífli í gær
þegar hann boðaði að hann
myndi
tala við
blaðamenn
klukkan
eitt. Þannig
var bein
útsending í
Sjónvarpinu
þar sem
María
Sigrún Hilmarsdóttir
fréttakona gerði heiðarlega
tilraun til að teygja lopann
í biðstöðu. Innihaldsminna
sjónvarpsefni hafði ekki
sést í manna minnum þegar
Sjónvarpið bætti um betur og
spilaði rapp- og rokktónlist yfir
beina útsendingu af tröppum.
■ Borgarstjórinn fyrrverandi og
verðandi hefur greinilega ekki
treyst sér til að svara spurning-
um margra fréttamanna í einu,
því hann hleypti aðeins einum
fjölmiðli í einu inn á frétta-
mannafund sinn. f viðtali við
Sjónvarpið orðaði hann það
þannig að hann hefði „lent í"
þessu erfiða máli, auk þess sem
hann tíundaði að hann væri
mannlegur og gerði mistök.
Þegar hann var spurður hvort
hann yrði borgarstjóri eftir eitt
og hálft ár sagðist hann ekki
vilja svara spurningunni, enda
skipti ekki máli hvort hans per-
sóna eða önnur yrði borgar-
stjóri. Talið er að hátindinum
í andstöðu borgaryfirvalda við
spurningar hafi verið náð.
LEIÐARI
Vilhjálmur, farðu heim
REVNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR.
Hann verðiir maðurinii sem gerði SjálJ'stieðisJlokkiiiii lítinn.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, ieiðtogi borgarstjómarflokks
Sjálfstæðisflokksins, er heillum horfinn. Hann varð
uppvís að þeirri lygi að hafa
borið umboð sitt varðandi REI
undir borgarlögmann. Eftir nokkurra
daga skerandi þögn steig hann fram á
bl aðaman nafundi og sagði ekki neitt annað
en að hann hefði „lent í" í slæmri aðstöðu
og ætlaði að hugsa sinn gang áfram. Ekki
hvarfiar að borgarstjóraefninu að hann
hafi komið sér sjálfur í þessa klemmu. Það
er í sama dúr og annað hjá leiðtoganum
að boðaður blaðamannafundur hófst ekki
fyrr en rúmri klukkustund eftir boðun.
Vilhjálmurvaríaðalhlutverkivarðandiþað
að tefla saman einkarekstri og opinberum.
Hann sniðgekk borgarstjórnarflokk sinn
við ákvarðanir og fékk á sig uppreisn sex-
menninganna sem vildu ekki una fram-
ferði leiðtogans. Geir H. Haarde, formaður
flokksins, studdi uppreisnina með því að
taka á móti sexmenningunum án leiðtogans og aðhafast ekkert til
að höggva á hnútinn í Borginni. Meirihlutinn féll í framhaldinu og
Sjálfstæðisflokkurinn fór í minnihluta. Allt síðan þetta gerðist hefur
verið stöðug krísa í gangi í Sjálfstæðisflokknum. Lemstraður Vil-
hjálmur rígheldur sér í stólinn og gerir allt
til þess að þurfa ekki að víkja. Hann hefur
greinilega svínbeygt borgarstjórnarflokk
sinn til að klappa sig upp. Það sem Vil-
hjálmur skilur ekki er að hann hefur
brugðist flokknum, borgarbúum og síðast
en ekki síst sjálfum sér. Fari sem horfir að
Vilhjálmur sitji út kjörtímabilið má fullvist
telja að flokkur hans verði fyrir stórtapi.
Allt eins er líklegt að Samfylkingin verði
stærsti flokkurinn. Þar með mun Vilhjálms
helst verða minnst fyrir það að hafa
valdið stórfelldum landslagsbreytingum
í íslenskri pólitík. Hann verður maðurinn
sem gerði Sjálfstæðisflokkinn h'tinn og
batt enda á áratuga sigurgöngu. Fyrir
andstæðinga flokksins yrði það frábær
niðurstaða. En þeir sem vilja halda
nokkum veginn núverandi landslagi í
stjórnmálunum hljóta að eiga sér þá ósk heitasta að Vilhjálmur
hætti í vinnunni og fari heim.
KREPPAN FLUIN
SVARTIIÖFÐI
Svarthöfði er á flæðiskeri
staddur. Líf hans snýst um
lán. En nú er ólán. Bankam-
ir vilja ekki lána honum lengur.
Þeir eru ekki lengur sömu gleði-
bankarnir og þeir vom.
Eins og allar sögur úr ís-
lensku samfélagi hefst þessi
á Framsóknarflokknum. Af
alkunnri ábyrgð og góðmennsku
ákvað flokkurinn að koma bönk-
unum sem þeir einkavæddu inn
á húsnæðismarkað og hækka
lánshlutfallið. Þannig gátu allir
keypt sér íbúðir, rikir sem fátækir,
hæfir sem óhæfir. En fasteigna-
verð snarhækkaði og nú em allir
í verri stöðu en fýrir góðmennsku
Framsóknarflokksins. Einn þeirra
er Svarthöfði, sem borgar hrörlegt
og hriplekt 19. aldar húsnæði sitt dýr-
um dómum og lifir á lánum. Þangað
bankinn sagði allt í
einu stopp.
Svart-
höfði er
áfyrir-
framgreiddum
launum sem
greiðast inn á
yfirdráttarreikn-
hans, þannig að hann
verður að lifa á kreditkortinu. Þannig
er hann minnst þrjá mánuði í skuld
hverju sinni. Yfirdrátturinn er svo
sem ekki nema akkúrat í meðai-
lagi fyrir lslending, eða 500 þúsund
krónur. Vextirnir em þó 120 þúsund
krónur á ári, sem nægir til að reykja
cniSfhM.
W$i
lllCllll
H!
mmlega hálfan pakka á dag
í ár. Tveggja daga vextir gætu haldið
indversku barni á lífi og í skóla í heil-
an mánuð. En hvað um það. Banka-
menn þurfa líka að borða.
"orfúrnar em ekki góðar fyrir
menn eins og Svarthöfða,
.sem eiga enga sjóði til að
ganga í heldur aðeins skuldir sem
hækka með verðbólgunni. En eins og
viðskiptamennirnir segja er veislan
búin og tími til kominn fyrir Svart-
höfða að hypja sig úr húsnæðinu
ájjnr en honum verður hent út.
Igær fann Svarthöfði lausnina.
Hann pantaði sér gám. Hug-
myndin er þó ekki að búa í gámn-
um, þótt til þess
kunni að koma.
Þvert á móti
hyggst Svart-
höfði flytjast búferlum
úr landi.
Svona mun þetta gerast, lið fýrir
lið: Þegar atvinnuleysið ríður
yfir landið mun Svarthöfði
fá bætur frá rtkihu. Ef það
gengur ekki útvegar hann sér
örorkumat. Og ef það gengur
ekki heldur upp gerist hann
listamaður. Á bótunum mun
hann lifa eins og konungur
þar sem verðlagið er lægra og
veðrið betra, nánar tiltekið í hinu
víðfeðma og skógi
vaxna Póllandi. Svarthöfði
hefur þegar fundið risastóra íbúð á
slikk í G'dansk. Planið er að vinna
svart til að auka enn á munaðarlíf-
ið, líkast til í þjónustustarfi,
jafnvel þótt hann kunni ekki
pólsku.
að verður etið og
það verður drukk-
ið. Lífið verður eitt
allsheijar föstudagskvöld.
Farvel verðlags- og verð-
bólguvíti.
„Vilhjálmur á að víkja þvl hann hefur
sýnt vont fordæmi. Hann hefur hreint
ekkert gert. Reyndar vann hann mjög
vel I sveitarstjórnarmálum en eftir að
hann fór I þennan stól þarna hefur
hann akkúrat ekkert gert."
Gunnar Hafsteinsson, 61 árs
eigandi Litlu jólabúðarinnar
„Ég er úr Kópavogí svo ég veit ekki
hversu mikið ég má segja. En ég hef
auðvitað alveg skoöun á þessu og
þersónulega finnst mér Vilhjálmur
mjög óspennandi karl."
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson,
30 ára tónlistarmaður
„Nei, það er við hæfi að hann segi af
sér. Hann á bara að gefast upp á
þessu."
Stefán Þór Hjartarson,
20 ára starfsmaður í Sundhöll
Reykjavíkur
„Nei, mér finnst að hann eigi að axla
ábyrgð á gjörðum sínum og víkja."
Hulda Ragnarsdóttir,
52 ára sjúkraliði