Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2008, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2008
Ættfræði DV
TIL
HAMINGJU
MEÐ
afmælið
AIVli;iJSI!VI!\ DAGSUVS
30 Ara afmæli
■ Aleksandar Radulovic,
Hlíðarvegi 52, Kópavogi.
Tonio Verzone, Bandaríkjunum.
Artur Fiszer,
Akurgerði 11, Akranesi.
■ Adeniran Micheal Adesina,
Hraunbæ 86, Reykjavik.
■ Hrund Scheving Sigurðardóttir,
Daggarvöllum 6a, Hafnarfiröi.
■ Álfheiður Viðarsdóttir,
Fffuseli 18, Reykjavik.
• Kristján Víðir Kristjánsson,
Laufengi 120, Reykjavík.
■ Helga Guðmundsdóttir,
Furugrund 5, Selfossi.
■ Heiða Björg Gústafsdóttir,
Klapparstlg 2, Njarðvlk.
■ ÝrSigurðardóttir,
Akurgerði 5, Vogum.
■ Hrafnhildur S Ágústsdóttir,
Bandarikjunum.
■ Hildigunnur Árnadóttir,
Mánastlg 4, Hafnarfírði.
■ Garðar Hólm Kjartansson,
Háaleitisbraut 109, Reykjavlk.
40 ÁRA AFMÆLI
■ Daniel Reed, Bandaríkjunum.
■ Rouslan Zakhartchouk,
Háaleitisbraut 40, Reykjavlk.
■ Adam Karol Mroz, Póllandi.
■ Marek Adam Grygo,
Torfufelli 50, Reykjavlk.
■ Fanný Bjarnadóttir, Svlþjóð.
■ Kristján A Kristjánsson,
Kambaseli 71, Reykjavlk.
■ Ásgeir G Sigurðsson,
Garðabraut 22, Akranesi.
■ Björn Baldvinsson,
Fensölum 6, Kópavogi.
m Halldór Guðmundsson,
Perlukór3c, Kópavogi.
m Ragnar Þorláksson,
Andrésbrunni 14, Reykjavlk.
■ Gylfi Þórðarson,
Kaplaskjólsvegi 91, Reykjavlk.
m Elizabeth H Marlies,
Bandarlkjunum.
50 ÁRA AFMÆLI
■ Michael Haynes, Bretlandi.
m Gunnar Guðmundsson,
Hringbraut 11, Hafnarfirði.
m Ástríður Harðardóttir,
Framnesvegi 46, Reykjavlk.
m Guðbjörg Jónsdóttir,
Maríubaugi 69, Reykjavlk.
■ Jónas Sigurðsson,
Suðurgötu 13, Hafnarfirði.
m Þórir Kristján Flosason,
Ljósheimum 20, Reykjavlk.
m Hilmar Baldvinsson,
Klettaborg 33, Akureyri.
m Pétur Brynjarsson,
Hlíðargötu 21, Sandgerði.
m Sveinbjörn Sváfnisson,
Danmörku.
m Steinar Harðarson,
Blikahólum 4, Reykjavlk.
m Guðmundur Þórðarson,
Efstuhlíð31, Hafnarfírði.
m Lazaro Luis Nunez Altuna,
Kambsvegi 25, Reykjavlk.
m Krystyna Danuta Witecka,
Álfaskeiði 100, Hafnarfírði.
m Zbigniew Hajncel, Póllandi.
m Þórunn Oddný Þórhallsdóttir,
Rafstöðvarvegi 29, Reykjavik.
■ Stefán Gíslason,
Eyravegi 10, Selfossi.
m Margrét Grétarsdóttir,
Kveldúlfsgötu 27, Borgarnesi.
60 ÁRA AFMÆLI
■ Áslaug Hallgrímsdóttir,
Sigtúni 39, Reykjavlk.
m Ingibjörg Reykdal,
Stapaseli 7, Reykjavlk.
■ Tómaslna Einarsdóttir, Astrallu.
m Llna Gunnarsdóttir,
Noröurbrú 6, Garðabæ.
■ Jóhanna Stefánsdóttir,
Galtalind 18, Kópavogi.
m Arnar Bjarnason, Lúxemborg.
m Fanney Valgarðsdóttir,
Arnartanga 79, Mosfellsbæ.
■ Stanislas Bohic,
Grettisgötu 22, Reykjavlk.
ÞÓRIRG.ÍSFELD
FYRRV. DEILDARFULLTRÚI ORKUVEITUNNAR
Þórir G. ísfeld, fyrrv. deildarfulltrúi
hjá Hitaveitu Reykjavíkur, varð sjötíu
og fimm ára í gær.
STARFSFERILL
Þórir fæddist í Neskaupstað og ólst
þar upp til sautján ára aldurs. Þá
flutti hann til Reykjavíkur, stundaði
leiktjaldasmíðar við Þjóðleikhús-
ið í tvö og hálft ár og var jafnframt
sýningarstjóri hússins í eitt ár. Þór-
ir stundaði verslunarstörf um skeið
en ók síðan strætisvagni hjá SVR til
1974. Þá hóf hann störf hjá Hitaveitu
Reykjavíkur og var þar deildarfull-
trúi þar til hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir.
Þórir sat í fulltrúaráði Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar í sex
ár. Hann sat í stjórn Starfsmannafé-
lags Hitaveitunnar og var formaður
þess í eitt ár.
FJÖLSKYLDA
Þórir kvæntist 1959 Torfhildi Ragn-
arsdóttur, f. 1939, fyrrv. starfsmanni
við Landsbanka íslands, en þau slitu
samvistum 1979.
Dóttir Þóris og Torfhildar er Ás-
gerður fsfeld, f. 10.8. 1957, húsmóð-
ir í Hafnarfirði, gift Teiti Stefánssyni
framkvæmdastjóra og eiga þau tvö
börn, Fríðu og Ragnar.
Alsystir Þóris er Ólafía ísfeld, f.
1928, húsmóðir í Kópavogi.
Hálfsystkini Þóris: Jóna Sigríður
Jónsdóttir, f. 1939, starfsmaður Orku-
veitunnar, og Guðmundur Jónsson,
f. 1941, d. 1992, varbúsetturí Reykja-
vík.
Foreldrar Þóris voru Jón ísfeld, f.
1890, d. 1935, kaupmaður íNeskaup-
stað, og k.h., Ásgerður Guðmunds-
dóttir, f. 1907, d. 1986, húsmóðir í
Neskaupstað og síðar starfsmaður
við Laugavegsapótek í Reykjavík.
ÆTT
Bróðir Jóns fsfeld var Kristján fað-
ir Jóns ísfeld, prests og rithöfundar.
Jón var sonur Guðmundar, b. á Hest-
eyri, hálfbróður Guðlaugar, ömmu
Guðmundar Sveinssonar, skóla-
meistara FB. Guðmundur var sonur
Guðmundar, b. á Ekkjufelli, Sturlu-
sonar, b. á Ekkjufelli, Stefánssonar,
b. á Þverhamri, Magnússonar, bróð-
ur Sigríðar, langömmu Önnu, lang-
ömmu Þórbergs Þórðarsonar, og
langömmu Þorbjargar, langömmu
Davíðs, fyrrv. seðlabankastjóra, föður
Ólafs, ráðuneytisstjóra forsætisráðu-
neytisins. Móðir Guðmundar á Hest-
eyri var Anna Jónsdóttir, b. á Urriða-
vami, Árnasonar. Móðir Jóns fsfeld
var Þórunn Pálsdóttir ísfeld, snikkara
á Lambeyri í Reyðarfirði, Eyjólfsson-
ar ísfeld skyggna, snikkara á Syðra-
Fjalli, langafa Jóhönnu, langömmu
Vals Arnþórssonar bankastjóra. Móð-
ir Þórunnar var Gróa Eiríksdóttir, b. á
Egilsstöðum, bróður Kristínar, ömmu
Sigfúsar Sigfússonar þjóðsagnasafn-
ara og langömmu Eysteins, fyrrv.
ráðherra og dr. Jakobs prests, föður
rithöfundanna Jölculs og Svövu. Ei-
ríkur var sonur Jóns, prests í Valla-
nesi, bróður Sturlu á Ekkjufelli. Móðir
Eiríks var Þóra Stefánsdóttir, skálds í
Vallanesi, Ólafssonar, skálds á Kirkju-
bæ, Einarssonar, skálds í Eydölum,
Sigurðssonar.
Ásgerður var dóttir Guðmundar,
smiðs í Steinholti í Borgarfirði eystra,
bróður Guðmundar, refaskyttu á Ingj-
aldssandi. Systir Guðmundar var
Helga, fyrri kona Sigurðar bókbind-
ara, föður Helga Sigurðssonar hita-
veimstjóra. Guðmundur var sonur
Einars, b. á Heggsstöðum í Andakfl,
Guðmundssonar Vestmann, b. á
Háhóli á Mýrum, Ólafssonar. Móð-
ir Einars var Helga, systir Sigurðar,
afa Helga Hjörvar. Helga var dóttir
Horna-Salómons, Bjamasonar. Móð-
ir Guðmundar var Steinþóra Einars-
dóttir, b. í Tjarnarhúsum á Seltjarnar-
nesi, bróðurSolveigar, móðurKristms
í Engey, langafa Bjarna Benedikts-
sonar forsætisráðherra og Guðrún-
ar, konu Jóhannesar ZoZga hitaveim-
stjóra. Einar var sonur Korts, óðalsb.
á Möðruvöllum í Kjós, Þorvarðar-
sonar. Móðir Steinþóm var Guðrún
Gísladóttir, b. á Seljalandi, Jónssonar
og Sigríðar Lýðsdóttur, sýslumanns í
Vík, Guðmundssonar. Móðir Ásgerð-
ar var Sigríður Bjarnadóttir, b. á Hofi
í Dýrafirði, Björnssonar og Valgerðar
Þorsteinsdóttur, prests á Stað á Snæ-
fjallaströnd, Þórðarsonar..
HilmarÆvar Hilmarsson
KERFISFRÆÐINGUR HJÁ VEÐURSTOFU ÍSLANDS
Hilmar fæddist í
Reykjavík en ólst upp
í Kópavogi. Hann var í
Kársnesskóla, lauk síð-
an gagnfræðaprófi frá
Þinghólsskóla, stund-
aði nám við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti, lauk
síðan tölvufræðiprófi frá
Iðnskólanum í Reykja-
vík og stundar nú nám í
tölvufræði við HR. Hilmar
og kona hans starfræktu
tískuvöruverslunina Partí
við Laugaveginn 1982-96.
Hann vann síðan við net-
þjónustu hjá Reiknistofu lífeyris-
sjóðanna sem síðar varð Landstein-
ar - Strengur 2000-2006 en hefur
sfðan verið kerfisfræðingur hjá Veð-
urstofu íslands.
Hilmar er mikill áhugamaður
um stangveiði og skfða-
mennsku.
FJÖLSKYLDA
Eiginkona Hilmars er
Anna Heiða Pálsdóttir, f.
14.5.1956, doktor í íslensk-
um og enskum barnabók-
mennmm.
Börn Hilmars og Önnu
eru Sigríður Ásta Hilmars-
dóttir, f. 27.1.1983, nemi
í kennslufræði og þroska-
þjálfun við HÍ; Hilmar Ævar
Hilmarsson, f. 19.8.1988,
nemi við FB.
Foreldrar Hilmars: Hilmar Þor-
kelsson, f. 13.10.1928, bakari og
lengi starfsmaður Reykjavíkur-
borgar, og k.h., Sigríður Jakobína
Guðlaugsdóttir, f. 5.8.1929, d. 31.1.
2007, húsmóðir.
Jónas Egilsson
MA í ALÞJÓÐASAMSKIPTUM OG FYRRV. FORMAÐUR FRf
Jónas Egilsson fædd-
ist í Reykjavík og ólst þar
upp og síðan í Hafnar-
firði. Hann var í Lækjar-
skóla, lauk landsprófi frá
Gagnffæðaskóla Austur-
bæjar, lauk stúdentsprófi
frá MS 1980, lauk BA-prófi
í stjórnmálafræðí við San
José State University í Kali-
forníu 1985, MA-prófi í al-
þjóðasamsldptum frá Uni-
versity of San Diego 1987.
Jónas var framkvæmda-
stjóri Samtaka sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæð-
inu 1988-2001 en frá 2002 hefur
fjölskyldan búið á Flúðum þar
sem Jónas hefur stundað margvís-
leg störf, s.s. ráðgjöf af ýmsu tagi,
svepparækt og fleira.
Jónas hefur verið viðloðandi
Frjálsíþróttahreyfingun í
u.þ.b. þrjátíu ár.
FJÖLSKYLDA
Eiginkona Jónasar er
Steinunn I. Pétursdóttir, f.
27.3.1967, starfsmaður við
leikskóla. Böm Jónasar og
Steinunnar em Bjami, f.
21.9.1988 (sonur Steinunn-
ar); Aron Örn, f. 2.10.1992;
ísak, f. 30.9.1994; Egill Pét-
ur, f. 21.5.2001. Foreldrar
Jónasar: Egíli Stardal Jónas-
son, f. 14.9.1926, cand.mag.
og kennari við VI og marg-
faldur fslandsmeistari í skotfimi og
þekktur brautryðjandi í útivistar-
málum, og Erna Ingólfsdóttir, f. 29.1.
1928, d. 8.5.2001, er starfrækti hann-
yrðaverslunina Hof um árabil og var
síðar sjúkraliði.
Gunnar Guðmundsson segir aldurinn ekki skipta máli á meðan andinn sé í lagi:
Yngist bara eftirfimmtugt
„Það leggst bara vel í mig að vera orðinn fimm-
tugur. Ef andinn er í lagi skiptir aldurinn engu
máli. Er líka ekki alltaf sagt að þegar maður sé orð-
inn fimmtugur hætti maður að telja árin og yng-
ist bara?" segir afmælisbarn dagsins, múrarinn
Gunnar Guðmundsson sem fagnar fimmtugsaf-
mæli sínu í dag. Gunnar segir þó elckert sérstakt
skipulagt í tilefni dagsins. „Það er bara rólegur
vinnudagur í dag og svo sér maður bara til þegar
líður á mánuðinn hvort ég haldi eitthvað frekar
upp á daginn. Ég er nú reyndar nýkominn heim úr
sex vikna fríi í Taflandi og það má segja að það hafi
bara verið undirbúningur fyrir gott afmælisár."
Að sögn Gunnars eru tíu ár síðan hann hélt síð-
ast afmælisveislu en hann segir helst að félagar
hans í torfæruíþróttinni syngi fyrir hann afmælis-
sönginn í dag en hann hefur verið iðinn torfæru-
keppandi allt frá árinu 1986. „Maður er reyndar
aðeins farinn að slaka á í torfærunni í dag. Það
fer að verða ansi dýrkeypt að halda þessu sporti
úti. Ég á samt ennþá bílinn svo það er aldrei að
vita nema maður skreppi í eina og eina keppni.
Kannski skrepp ég til félaga minna í Kaplahraun-
inu í dag og býð þeim upp á köku í tilefni dagsins."
krista@dv.is
Gunnar Guðmundsson
Erfimmtugur í dag.