Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
ÞETTA HELST
- ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST ÍVIKUNNI
BÖRÐUSTTIL AÐ FRELSA STELPUNA
0
Feðgarnir Svavar Guðna-
son og Daníel Öm, sonur
hans, fóm til Danmerk-
ur til að sækja Litlu systur
Daníels þar sem þeir óttast
um velferð stúlkunnar hjá móður
sinni. Ferðin gekk ekki áfallalaust
og kom til slagsmála milli feðg-
anna og Millers Jansen, sambýl-
ismanns móðurinnar, Elsu Jóns-
dóttur. Systir Elsu hefur forræði
yfir stúlkunni en Elsa segir ekki
koma til greina að senda dótt-
urina aftur til Islands. Feðgarnir
hafa áhyggjur af óreglu á heim-
ilinu. Elsa þvertekur íyrir slíkt en
viðurkennir að sambýlismaður
hennar reyki kannabis að stað-
aldri og sé á Contalgin vegna
mikils sársauka.
KYNÞATTAOFBELD
na»KiFiiR
DVl; '
j OWMMCMMmHMU
heimskur
eðafAv/s
ISIENSKIH FEÐGAR HANDIEKNIR íOANMÖRKU EYRIR ArAS
BÖRÐUSTTIL
AÐFRELS
HUNDARNIR OF STORIR
HUNDARNIRO
STÓRIR FYRI
SÉRHANNAÐ
LÖ6REGLUBI
Lögreglan á höfiið-
borgarsvæðinu er í
vandræðum vegna
þess hversu stórir
sumir fíkniefnaleit-
arhundar hennar em.
Umhverfisstofnun tók aðbúnað
hundanna út að beiðni rík-
islögreglustjóraembætdsins
og hvatti til þess að hundarn-
ir yrðu ekki fluttir í bílunum.
Ástæðan er sú að ekki komast
fyrir nógu stór búr í bílunum
til að schaeffer-hundar geti
staðið uppréttir íþeim. „Ég
hafði aldrei heyrt þetta fyrr
en nýlega að bíllinn væri of lítill fýrir hundana okkar," segir Geir Jón
Þórisson, yfirlögregluþjónn á höfttðborgarsvæðinu, sem undrast að
ríkislögreglustjóri hafi innkallað sérhannaðan bíl lögreglunnar fýrir
flutning fíkniefnahunda.
STULKA BARÐISNIGIL
Drukkin unglingsstúlka ££ ;>J|
réðst á gæslukonu á skóla- j
balli Menntaskólans við (;
Sund sem haldið var á
Gauki á Stöng síðastliðinn x*-*t*a»ía
fimmtudag. Stúlkan kýldi
konuna með þeim afleiðingum
að hún hlaut áverka á andliti og
þurfti að leita sér aðhlynningar.
Gæslukonan hefur kært atvikið til
lögreglu, hún er í Sniglunum, bif-
hjólasamtökum lýðveldisins, sem
sáu um gæslu á ballinu. Garðar
Ingi Steinsson, gæslustjóri hjá
Sniglunum, segir Sniglana verða
vara við hugarfarsbreytingu hjá ungu fólki þegar kemur að hegðun á
skólaböllum. „Svo virðist sem krakkamir séu frekar tilbúnir til þess að
taka sénsinn og sjá hvað þeir komast upp með."
Nýtt í Voguelbutabaer.is Selfossi
‘wm W .01 *■ | ,
V
I
W ■
r '» P
Yfir 200 sortír af svarovski hringum, eyrnalokkum og
hálsmcnum á mjög góöu veröi hringar á kr. 5.200,- stk.
Nýkomnar countryvörur t.d. fallegir lampar einnig erum við
með fataefni, gardínuefni og bútasaumsefni.
Vogue
Selfossi • Eyravegur 15 • 800 Selfoss • Sfmi 4822930 • butabaer@simnet.is
HITTMÁLIÐ
Hart er lagt að Rögnu Aðalsteinsdóttur á Lauga-
bóli í Súðavíkurhreppi að leggja fram teikningar af laugarhúsi á
jörð hennar. Ella verði kofinn jafnaður við jörðu. Ragna segist
ekki ætla að skríða undir fæturna á sveitarstjórninni. Baðhús
hafi verið við laugina um aldaskeið, enda sé um landnámsjörð að
ræða. Ómar Már Jónsson sveitarstjóri segir að heimild sé til þess
að beita hörðu.
SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON I
L-
blcidcimadur skiifar: sigtryggur^dv.is
„Ef maður ekki má lengur nokkurn
skapaðan hlut á sinni eigin jörð,
þá er ég bara farin. Þeir geta átt
sig þessir karlar," segir Ragna Að-
alsteinsdóttir, bóndi á Laugabóli í
Súðavíkurhreppi við Isafjarðardjúp.
Ragna segir sveitarstjórann, Ómar
Má Jónsson, og byggingarfulltrúa
hreppsins, Árna Traustason, fara
gegn sér með miklu offorsi vegna
laugarhúss sem byggt var utan um
heita laug að Laugabóli og krefjast
þess að kofinn verði jafnaður við
jörðu.
„Það hafa staðið kofar við þessa
laug í sjálfsagt tvö hundruð ár," seg-
ir Ragna. „Þetta er landnámsjörð,
þannig að það þarf engum að koma
á óvart að hér standi kofi."
Brunahætta af steypu og vatni
Sonur Rögnu, sem er húsasmið-
ur, aðstoðaði hana við að rífa gaml-
an kofa við laugina, sem var úr sér
genginn. Hann reisti svo nýjan kofa,
sem í þetta skiptið er reistur með
steyptum boga. „Það er hvorki nagli
né spýta í þessum kofa," segir Ragna.
„Menn tala jafnvel um að það sé eld-
„Menn tala jafnvel um
að það sé eldhætta af
kofanum. Ég veitekki
hvort ætti frekar að
brenna, steinsteypan
eða vatnið."
hætta af kofanum. Ég veit ekki hvort
ætti frekar að brenna, steinsteypan
eða vatnið," bætir hún við.
Ragna segir að kofinn á undan
þeim nýja og umdeilda hafi ver-
ið úr spýtum og blikki og hafi verið
ansi slappur orðinn. Sá sem var þar
á undan hafi verið úr torfi og grjóti
samkvæmt gömlum íslenskum sið.
„Nú taka þeir upp á því að hóta mér
að rífa þetta og beita því jafnvel fyr-
ir sig að kofinn sé of nálægt næsta
íbúðarhúsi. Það eru 250 metrar í
næsta hús."
Mega beita hörðu
Omar Már Jónsson, sveitarstjóri
í Súðavík, segir að vissulega sé það
alveg skýrt í reglugerðinni að hægt
sé að beita hörðum úrræðum ef fólk
sæki ekki leyfi fyrir þeim byggingum
sem það reisir. „Við höfum verið að
taka á þessum málum hérna í dreif-
býiinu og verðum að reyna að hafa
þessa hluti á hreinu," segir Ómar.
Hann segir að allir þurfi að hlíta
sömu lögum og reglum í þessum
efnum. „Þegar byggingar hafa ver-
ið reistar án tilskilinna leyfa höfum
við venjulega farið fram á að fólk af-
hendi okkur teikningar og þá höfum
við undantekningarlaust afgreitt
leyfin," segir Ómar og bætir við að
sveitarstjórnin vilji komast hjá har-
kalegum aðgerðum í lengstu lög.
Þeir mega eiga sig
„Ég bý í sjötíu til áttatíu ára
gömlu íbúðarhúsi á jörðinni minni
og þar inni er ekki um neitt raun-
verulegt bað að ræða. Þess vegna
hafa allir hér notast við laugina til
þess að baða sig," segir Ragna. Hún
segir að inni í skúrnum sé ekkert
annað að finna en venjulegt baðkar
sem sífellt renni í gegnum ylvolgt
vatnið.
„Það er með öllu útilokað að
ég fari að skríða undir lappirnar á
þessum körlum. Fyrr flyt ég úr sveit-
inni. Ég hef búið hér um langt ára-
bil og upplifði það meðal annars að
missa dóttur mína og dótturdóttur
í snjóflóði. Hvað gerði hreppurinn
þá? Allar eigur þeirra voru teknar
saman og settar í haug og brenndar.
Þeir mega hreinlega eiga sig."