Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Fréttir l..
SWDKOIÍX
■ Almannatengillinn Ómar
R. Valdimarsson er orðinn
einn eftirsóttasti talsmaður
landsins. Framkvæmdaglaðir
Vestfirðingar hafa nú séð sér
leik á borði
og vilja fá
Ómar sem
talsmann
olíuhreinsi-
stöðvar
þar vestra.
Ómar er erf-
iðum verk-
efnum að
góðu kunnur enda hefur hann
staðið í ströngu sem talsmað-
ur ítalska verktakafyrirtækisins
Impregilo um árabil. Það var
ekki auðvelt verk eins og gefur
að skilja en olíufurstum hefur
greinilega líkað starfshættir
Ómars sem er formaður Al-
mannatengslafélags Islands.
■ Margir hafa brosað í kamp-
inn yfir því hve erflðlega geng-
ur að ráða næsta landsliðs-
þjálfara í handbolta. Enginn
vill starfið, fjórir hafa sagt
nei, nú síðast Aron Kristjáns-
son, þjálf-
ari Hauka.
Viggó
nokkur
Sigurðsson
er sagður
reiðubú-
inn til að
taka starfið
að sér og
eru fjölmiðlamenn mishrifnir
af því. Henry Birgir Gunn-
arsson, íþróttafréttamaður á
Fréttablaðinu, myndi tæpast
stökkva hæð sína í loft upp ef
Viggó yrði ráðinn. Þeir félag-
ar elduðu grátt silfur á árum
áður og vildi Viggó að HSÍ ræki
Henry frá Fréttablaðinu á sín-
um tíma, hvernig svo sem það
ætti að hafa gengið.
■ Steingrími Sævari Ólafs-
syni hefur ekki tekist að lyfta
grettistaki
í áhorfi á
fréttir Stöðv-
ar 2 eins og
hann gaf
fögur fyr-
irheit um
þegar hann
tók við starfi
fréttastjóra
stöðvarinnar síöasta sum-
ar. Capacent Gallup birtir nú
vikulegar áhorfstölur á heima-
sfðu sinni. Vikuna 11. til 17.
febrúar mældist áhorf Stöðv-
ar 2 um 23 prósent. Fréttir
Sjónvarpsins hafa um tvöfalt
áhorf Stöðvar 2 eða tæplega 44
prósent. Steingrímur er varla
ánægður með þessar tölur og
mætti því spyrja sig hvort hann
eigi svör við þessum tölum.
■ Konur hafa lengi þurft að
sitja undir þeirri ásökun að
geta ekki bakkað í stæði.
Kostulegt myndband sem
sandkornsritari rakst á á net-
inu á dögunum er ekki beint
til þess fallið að hrekja þessa
„þjóðsögu". Þar nær ónefnd-
ur myndatökumaður, líklega
ítalskur ef marka má tungu-
málið sem hann talar, mynd af
því þegar kona nokkur reynir
að leggja í stæði. Aðfarirnar
standa í heilar fjórar mínút-
ur áður en konan gefst upp en
þá er hún búin að nudda sér
utan í bæði bílinn fyrir fram-
an og þann fyrir aftan. Til að
gera þetta enn fyndnara bölvar
konan reglulega hástöfum út
um bílstjóragluggann. Henni
til varnar, ef vörn skal kalla, má
geta þess að stæðið sem hún
reyndi að leggja í var eiginlega
jafnlangt og bíllinn hennar
og því nánast eðlisfræðilega
ómögulegt að ná takmarkinu.
Slóðin er http://www.koreus.
com/video/femme-garer-voit-
ure.html.
*
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir feröaðist allra ráðherra mest á síðasta ári, alls 43
daga. Björn Bjarnason, Ingibjörg Sólrún, Geir H. Haarde og Einar K. Guðfinnsson
ferðuðust öll 40 daga eða meira. Jóhanna Sigurðardóttir var einungis 7 daga erlendis í
embættiserindum á síðasta ári.
ÞORGERÐURER
FERÐAGLOÐUST
v
Þorgerður Katrín y
Var ferðaglaðasti
ráðherra síðasta árs. y
BALDUR GUÐMUNDSSON
bladamadur skrifar:
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra var ferðaglað-
asti ráðherrann í fyrra. Hún var er-
lendis 43 daga, að ferðadögum með-
töldum. Fast á hæla hennar fylgdi
dómsmálaráðherrann Björn Bjarna-
son en hann var erlendis 42 daga á
síðasta ári. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir utanríkisráðherra, Einar K.
Guðfinnsson sjávar- og landbúnað-
arráðherra og Geir H. Haarde for-
sætisráðherra voru hvert um sig 40
daga erlendis í embættiserindum á
síðasta ári. Þessir ráðherrar ferðuð-
ust áberandi mest árið 2007.
Minnst ferðaðist Jóhanna Sigurð-
ardóttir félagsmálaráðherra. Hún
var 7 daga erlendis en forveri henn-
ar, Magnús Stefánsson, hafði dvalið
12 daga í útlöndum þegar Jóhanna
tók við af honum í lok maí. Krist-
ján L. Möller samgönguráðherra og
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigð-
isráðherra voru hvor um sig 9 daga
erlendis frá því þeir urðu ráðherrar
í lok maí.
Eðlilegar skýringar
„Þessar tölur eru lægri en ég hefði
getið mér til um," segir stjómmála-
fræðingurinn Einar Mar Þórðarson
þegar hann er spurður álits á fjölda
ferðadaga ráðherranna. „Þorgerður
Katrín hefur sem menntamálaráð-
herra ákveðnum skyldum að gegna
erlendis, sérstaklega gagnvart ís-
lenskri menningu sem verið er að
kynna úti. Það skýrir eflaust hluta af
hennar ferðadögum. Nú er til dæmis
verið að opna menningarviku í Bms-
sel og ég geri ráð fyrir að hún og fleiri
ráðherrar verði þar," segir Einar Mar.
Björn Bjarnason var 42 daga er-
lendis í fyrra. Einar segir það ekki
koma sér á
óvart. __
„Björn er yfirmaður Schengen-
samstarfsins auk þess sem hann er
nokkurs konar öryggismálaráðherra
landsins. Það voru miklar hræring-
ar í varnarmálum á árinu og ísland
tók upp samband við ný lönd I þeim
málaflokki. Þessir 42 dagar Björns
held ég að eigi sér eðlilegar skjhing-
ar þrátt fyrir að þetta hafi verið kosn-
ingaár" segir hann.
Sjaldnast skemmtiferðir
Einar Mar telur að ráðherrar ferð-
ist ekki meira en þörf krefur. „Ég hef
það á tilfinningunni að reyndir ráð-
herrar leiki sér ekki að því að vera
í útlöndum. Þetta eru nú sjaldn-
ast einhverjar skemmtiferðir," segir
hann en bætir við að flestir ráðherr-
ar hafi væntanlega stillt árinu þannig
upp að þeir gætu beitt sér af krafti í
kosningabaráttunni sem var síðasta
vor.
Margir nýir ráðherrar tóku við
embætti á síðasta ári. Einar segir
að þeir sem komu nýir inn hafi ef-
laust viljað koma sér vel inn í mál-
efni ráðuneytanna áður en þeir færu
mikið utan. Spurður um þá ráðherra
sem minnst ferðuðust segir Einar.
„Þeir sem minnst ferðuð-
ust eiga það sameigin-
legt að stjórna ráðu-
neymm sem krefjast
allajafna ekki mik-
illa ferðalaga út fyr-
ir landsteinana, sér í
lagi félags- og sam-
gönguráðuneyti.
Þetta kemur mér
því ekki á óvart,"
segir Einar Mar.
Um 9 milljónir í
dagpeninga
Heildarfjöldi ferða-
daga ráðherranna tólf á
síðasta ári var 325. Nærri
lætur því að einn ráðherra
sé erlendis alla daga árs-
ins. Dagpening-
ar ráðherra og annarra ríkisstarfs-
manna skiptast í fjóra flokka, eins
og sjá má í töflu hér til hliðar. í fyrsta
flokki gera heildardagpeningar, fyr-
ir gistingu og annað samtals 33.350
krónur á núverandi gengi SDR, SDR
er reiknieining sem Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn notar. Dagpening-
ar skiptast í fjóra flokka en þá má
sjá hér til hliðar. Þeir ráðherrar
sem ferðast til landa í fjórða
flokki fá 22.235 krónur eins
og gengið er í dag.
Miðað við núver-
andi gengi má því gera
ráð fyrir að ráðherrar
hafi fengið tæpar níu
milljónir í dagpen-
inga samanlagt. Það
eru áætlaðar tölur út
frá meðalupphæð dag-
peninga sem ráðherrar
eiga rétt á þegar þeir fara
af landi brott í embættiser-
indum.
Einar Mar segir þetta ekki
óeðlilega háar greiðslur. „Ég
held að dagpeningar skipti
litlu máli fyrir buddur ráð-
herra og séu aðeins
«£, eðlilegur kostn-
— aður sem fylgir
því að senda
ráðherra til
útlanda. Stór
' hluti af þess-
um greiðsl-
um gengur
beint upp í
hótelkostn-
að og fæði.
íslend-
ingar eru
fullgilt
ríki
á alþjóðlegum vettvangi og sam-
band okkar við önnur lönd er okkur
afar mikilvægt. Ég held því að þessar
greiðslur séu alls ekki of háar. Það má
ekki gleyma því að flestir ráðherrar
eiga fjölskyldur og þurfa oft á tíðum
að eyða miklum tíma fjarri fjölskyld-
um sínum."
Björn Bjarnason Var 42 daga erlendis mf
á siðasta ári. mm W- *HH w— r ^
„Ég hefþað á tilfinningunni að
reyndir ráðherrar leiki sér ekki að
!!! *.*>>* því að vera í útlöndum. Þetta eru nú sjaldnast einhverjar skemmtiferðir."
Jóhanna Sigurðardóttir
Einbeitti sér að málefnum hei
fyrir. Var aðeins 7 daga erlend