Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Qupperneq 13
ÐV Helgarblað
FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 13
DAVÍÐ ODDSSON Fæddist 17.janúar 1948.
Þorsteinn er einkasonur þeirra hjóna Davíðs
og Ástríðar Thorarensen. Hjónin kynntust fyr-
ir utan skemmtistaðinn Glaumbæ aðfaranótt
5. janúar 1969, hann 21 árs og hún 17 ára, og
varð Davíð þá þegar ljóst að Ástríður yrði kona
hans. Þau trúlofuðu sig 10 mánuðum síðar og
giftust tæpu ári eftir það, 5. september 1970.
Alla tíð hafa þau verið afar samrýnd og hún
ávallt veitt manni sínum mikinn stuðning.
Davíð orti síðar ljóð um þeirra fyrsm kynni,
Við Reykjavíkurtjöm, og gerði Gunnar Þórðar-
son síðar vinsælt lag við ljóð Davíðs.
„Það á við um Davíð að hann er óvenjuvel
giftur og það var gifta hans í stjórnmálunum
að eiga Ástríði sem bakhjarl," segir Halldór
Blöndal, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Grunnurinn lagður
Davíð hóf lögfræðinám við Háskóla íslands
haustið 1970. Jafnframt sá hann í tvö sumur um
hinn vinsæla gamanþátt Matthildi í útvarpinu
ásamt skólabræðmm sínum og vinum Þór-
arni Eldjárn og Hrafni Gunnlaugssyni. Hann
var einnig blaðamaður á Morgunblaðinu með
námi og sat í stjórnum Stúdentafélags Reykja-
víkur, Sambands ungra sjálfstæðismanna
og Varðbergs, félags ungra áhugamanna um
vestræna samvinnu.
Davíð náði kjörií borgarstjórn 1974 og vann
meðfram því sem útgáfustjóri Almenna bóka-
félagsins 1975, en eftir að hann lauk lagaprófi
1976 gerðist hann skrifstofustjóri Sjúkrasam-
lags Reykjavíkur og varð síðan framkvæmda-
stjóriþess 1978.
Davíð starfaði einnig um skeið sem ritari
hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó. Þar starfaði
hann undir stjóm Vigdísar Finnbogadóttur
og fékk Davíð þá mikinn áhuga á því að koma
upp betri aðstöðu fyrir félagið. Hann fékk leik-
húsmafíuna á sveif með sér og það var mikil-
vægur hlekkur í undirbúningnum fyrir borg-
arstjóraembættið. Það kom líka á daginn að
sem borgarstjóri beitti hann sér fyrir byggingu
Borgarleikhússins.
ViðTjörnina
„Ég hlakkaði virkilega til á hverjum einasta
morgni að mæta í vinnuna þegar Davíð var
borgarstjóri," segir María Bjarnadóttir, ritari
Davíðs til margra ára.
Fyrst náði Davíð kjöri sem borgarfulltrúi
árið 1974 og í næstu kosningum missti flokk-
urinn meirihlutann. Hann sigraði síðan Al-
bert Guðmundsson naumlega í harðri baráttu
í prófkjöri um efsta sætið á lista Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórnarkosningunum 1982.
Davíð náði meirihlutakjöri fyrir flokkinn og
settist í borgarstjórastólinn aðeins 34 ára.
Davíð þótti röggsamur borgarstjóri, en
ráðríkur. Hans fyrsta verk var að fækka borg-
arfulltrúum úr 21 í 15 með einu pennastriki.
Því næst beitti hann sér fyrir því að selja Bæj-
arútgerð Reykjavíkur, sem þá hafði verið rek-
in með miklu tapi um árabil, og má þar finna
fyrsta vísinn að einkavæðingarstefhu Sjálf-
stæðisflokksins.
Hugrekki Ijónsins
Davíð Oddsson er af flestum talinn afar
hugrakkur og óhræddur við að taka áhættu.
Eftir afar farsælt starf sem borgarstjóri ákvað
hann skyndilega að taka formannsslag í Sjálf-
stæðisflokknum árið 1991. Það þurfti mikið
hugrekki til að bjóða sig fram þegar allir spáðu
Þorsteini Pálssyni sigri, sem þá hafði setið sem
formaður frá 1983. Formannskjörið var tvísýnt
en Davíð hlaut nauman sigur. Undir hans for-
ystu bætti flokkurinn við sig miklu fylgi í þing-
kosningunum það ár.
Einn af mestu kostum Davíðs sem stjórn-
málamanns er hversu fljótur hann er að læra.
Úr borgarpólitíkinni fór Davíð yfir í lands-
málin og rakleiðis í stól forsætisráðherra.
Hann fór því beint út í djúpu laugina en að-
lagaðist fljótt að mati vina og samstarfs-
manna. f fyrstu rak hann sig á nokkur horn
og á ýmsu gekk, meðal annars valtaði hann
yfir þingheim með því að kalla vinnustaðinn
gagnfræðaskóla, eða Gaggó vest eins og hann
kallaði það.
Stendur með sínum mönnum
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskóla íslands, er vinur
Davíðs og hann telur sigursælasta stjórnmála-
mann landins fyrr og síðar. Hann segir lykilinn
að stjórnmálaárangri Davíðs vera nokkuð sem
sjaldgæft er að menn hafi samtímis, hugrekki
ljónsins og kænsku refsins. „Davíð er mjög
harðskeyttur og fylginn sér og krefst þess að
sínir menn fýlgi sér. En um leið er hann laus
við alla smámunasemi og treystir mönnum.
Hann er þess vegna góður í samstarfi, enda
bera gamlir ráðherrar honum undantekning-
arlaust gott orð," segir Hannes.
„Hann stendur líka mjög þétt með sín-
um mönnum og gildir þá einu hvort þeir eru
í hans flokki eða samstarfsflokknum. Þetta
kunna margir vel að meta."
Röggsamur og ráðríkur
Davíð er án efa einn eftirminnilegasti og
um leið litríkasti stjórnmálaforingi sem ís-
land hefur alið. Hann er einn sigursælasti og
um leið umdeildasti stjórnmálamaður fs-
landssögunnar. Hann gegndi stöðu forsætís-
ráðherra íslands frá árinu 1991 tíl ársins 2004,
lengst allra, og var áður borgarstjóri í Reykja-
vík frá árinu 1982 til 1991. Þá gegndi hann
embætti formanns Sjálfstæðisflokksins árin
1991 til 2005.
Af stuðningsmönnum sínum hefur hann
veriðkallaðurhugrakkur,röggsamurogskörug-
legur, skjótur til ákvarðana og hiklaus við að
segja álit sitt, hvort sem öðrum líkar betur eða
verr. Andstæðingar segja hann hins vegar ráð-
ríkan, skapstóran og langrækinn, og hafi það
komið fram í deilum hans við Jón Ólafsson og
Baugsfeðga.
HITTUST f GLAUMBÆ
Davíð giftist Ástriði Thorarensen 5. september
1970 og saman eiga þau soninn Þorstein. Þau
hittust fyrir utan skemmtistaöinn Glaumbæ og
trúlofuðu sig innan árs frá fyrstu kynnum.
Vinsæll og óvinsæll
„Hann reyndist kænn og laginn stjórn-
málamaður. Hann hagaði seglum eftír vindi,
en vissi alltaf um leið hvert hann vildi sigla,"
segir Hannes Hólmsteinn.
f skoðanakönnunum var Davíð jafnan tal-
inn vinsælastí stjórnmálamaðurinn en um
leið kosinn sá óvinsælastí líka. Hann naut
óskoraðs trausts flokkssystkina sinna og var
á landsfundum jafnan kjörinn formaður með
nær öllum greiddum atkvæðum. Davíð var
andstæðingum sínum erfiður.
„Það var svona og svona að eiga við karl-
inn en það var aldrei leiðinlegt. Auðvitað sló
í brýnu milli okkar enda báðir mjög skapstór-
ir en ég virði hann fyrir heiðvirðar viðureign-
ir," segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.
Sleit þingi
Flestir viðmælendur DV rifja upp að Dav-
íð gat látið mótbyr og mótþróa fara í taugarn-
ar á sér þannig að þolinmæðin brast. Þeir eru
þó allir sammála um að það gerðist ekki oft.
Á sínum fyrsta vetri í embætti forsætisráð-
herra, vorið 1992, minntí Davíð rækilega á
sig og sýndi hversu ráðríkur hann getur ver-
ið. Þingveturinn hafði verið honum ansi erf-
iður, meðal annars órói í þingflokknum og
erfiðleikar í efnahagslífinu og nokkuð um pól-
itískan mótbyr. Komið var fram á kvöld á síð-
asta degi þingsins og búið að leggja fram til-
lögu um þingfrestun. Davíð var kominn með
forsetabréf í vasann til að slíta þinginu en
FRAMHALD Á NÆSTU SÍÐU ►