Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Mennlng DV
5MENNING
Wm
Konsert í Salnum
Sellóleikarinn einstaki Sæunn Þorsteinsdóttir mun ásamt fjórum
margverðlaunuðum fiðluleikurum ftytja konsert í Salnum á morgun,
laugardag. Tónleikarnir eru hluti af Tíbrár-tónleikaröðinni og verða flutt
verk eftir þrjá höfuðsnillinga tónbókmenntanna, Mozart, Debussy og
Dvorák. Sæunn vann fyrir skemmstu til verðlauna í alþjóðlegri selló-
keppni. Tónleikarnir hefjast klukkan 17.
.
I Æringi
i afhjúpaður >
Æringi, sögubíll Borgar-
| bókasafnsins, hefur för sína
, næstkomandi föstudag. Æringi
i mun í framtíðinni keyra milli
leikskóla borgarinnar og bjóða
: bömum í sögustund. Bíllinn
§ er ævintýralega skreyttur með
; myndum Brians Pilkington og
} hlýlega hannaður að innan fyrir
í' bömin sem koma í heimsókn.
j Afhjúpun bílsins verður við
: Tjarnarborg klukkan 11.00 og
| mun Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir, formaðurmenningar- og
ferðamálaráðs og leikskólaráðs
Reykjavíkur, flytja ávarp.
Kokkar sýna
1 listir sínar
Landsmönnum gefst kostur
: á að fýlgjast með matreiðslu-
'r, mönnum hvaðanæva úr
: heiminum keppast um að
, leika matargerðarlistir sínar
*' í Listasafni Reykjavíkur
j! - Hafnarhúsi á morgun,
á laugardaginn 23. febrúar.
p Kokkarnir eru staddir hér á
: ; landiítilefniafFood&Fun
ílf\ sælkerahátíðinni en hún hefúr
aldrei veriö jafnumfangsmikil
§j og nú. Eldamennskan byijar á
;|j slaginu 13.00 í porti hússins og
1 ferverðlaunaafhendingfram
klukkan 16.30. Aðgangur er
ókeypis.
Leirlista-
smiðja fyrir
ijölskylduna
Leirlistasmiðja verður haldin
í Asmundarsafni á sunnudag-
inn. Tilgangurinn með smiðj-
unni er að fá böm og fullorðna
til að vinna saman. Byrjað verð-
ur á yfirferð um saftiið klukk-
an 13. Að því loknu verður sest
niður á vinnustofu með leir og
verkfæri til að móta leirinn und-
ir áhrifum ffá Ásmundi sjálfum.
Umsjón með listasmiðjunni
hefur Sigríður Ólafsdóttir mynd-
listarmaður. Smiðjunni lýkur
klukkan 16. Aðgangur er ókeyp-
is og öllum frjálst að koma.
„Verkin sem ég að fara að sýna í i8
eru vídeóinnsetningar með hlutum
sem hef fundið í skóginum hérna í
Ríó de janeiro, glerílát og alls kon-
ar dótarí sem ég varpa á," segir Eg-
ill. „Ég hef verið með vinnustofu í
ofsalega fallegu húsi í þjóðgarði hér
í borginni og þar hef ég búið til ný
verk. Þetta er annars ekkert gífur-
lega mikið sprell, auðvitað svolít-
ið en þessi sýning er mínímalískari
en sum verk sem ég hef áður sýnt.
Ég myndi segja að verkin mín væru
eins og mozartkúla í mörgum lög-
um. Þessi glettni er eitt lag og svo
eru önnur lög innan í. Myndlist-
armenn fást við heimspeki, fagur-
ffæði, maður er að dfla við form,
fígúratíva hluti, frásögn, stillimynd
og öll þessi element eru í mínum
verkum. En í sýningunni í i8 hef ég
dregið ffam element sem hafa verið
meira undir niðri og snúið lögun-
um við," segir Egill.
Hvemig kom það til að þú fórst
til Brasilíu, ertu lentur á séns? „Já,
svaka séns. Það er æðislegt. Ég
kynntist stúlku í Berlín, leikkonu og
leikstjóra sem býr héma í Ríó, og ég
„Ég var bitinn í stóru tána afkrabba á strönd-
inni um daginn. Það var mjög skemmtilegt, al-
veg eins og í teiknimynd."
dreif mig bara með henni hingað.
Þetta er æðislegur staður, apar úti
um allt, stórir fuglar og bananatré
hérna beint fyrir ffaman húsið. Við
fórum í smá gönguferð í morgun og
þá sáum við apana síðast, þeir em
svo fyndnir. Stundum stoppa þeir
í trjánum og skoða mann. Þetta er
paradís á jörð," segir Egill.
Hvemig vídeó em þetta sem þú
hefur verið að bauka við? „Þetta eru
mest litir og form sem ég hef teikn-
að. Svo hef ég verið að vinna mik-
ið með hljóð úr skóginum og af
ströndinni. Það er svo inspírerandi
hljóðheimurinn hérna, sérstaklega
skordýrin. Það em engin smá læti
í þeim. Manni varð bara um og ó
hérna til að byrja með."
Hefurðu lent í háskalegum útí-
stöðum við banvæn skordýr þarna
úti? „Nei, en ég var bitinn í stóm
tána af krabba á ströndinni um
daginn. Það var mjög skemmtilegt,
alveg eins og í teiknimynd. Ég sá að
það vom strákar að safna þessum
kröbbum í plastpoka. Þeir vom gul-
ir, grænir og stórir."
Ertu fluttur til Brasilíu? „Já, ég
hálfpartinn bý héma núna, en það
er fleira sem ég þarf að gera í Evr-
ópu eða þeim megin við hafið á
næsta leiti. Galleríistinn sem ég
vinn með í New York er að fara á Art
Fair í Brussel og ég þarf að vera við-
riðinn það. Svo er Kunstlerhauser
Wortswede að gefa út litla bók með
geisladiski þar sem ég er með texta
og skissur að lögum sem ég þarf að
klára."
Vinnið þið kærastan eitthvað
saman? „Það er mikið skrafað á
heimilinu, en við emm ekld beint
að vinna að neinu núna þótt það
sé fullt af hugmyndum í pípunum,"
segir Egill.
Árið 2001 gerði Tonk of the
Lawn, önnur breiðskífa Egils, alit
vitlaust og menn hafa lengi beðið
eftir að heyra meira. Um tíma stóð
tíl að Virgin myndi taka Egil upp á
arma sína en það fór út um þúfur
þegar EMI-risinn keyptí fýrirtækið.
„Ég verð að segja eins og er að ég
er nú svolítið dapur yfir því að hafa
ekld náð að gefa út plötu fyrr því ég
hefverið að semja tónlist stanslaust
síðan sfðasta plata kom út. Ég valcn-
aði einn daginn eftir að hafa dreymt
draum þar sem vinir mínir vom að
hlusta á tónlistina mína og þá fatt-
aði ég hvað ég væri dapur yfir því að
hafa ekld náð að gefa hana út," seg-
ir Egill en þá heyrist glaðlegt gelt
hundsins Gabríelu sem er kominn
til að hressa listamanninn við. „Hún
heitir Gabríela eins og vinkona mín
Friðriksdóttir en ég gaf henni samt
ekld nafnið. Hún er svo skemmtí-
legt dýr, alltaf mætt eldsnemma á
morgnana titrandi af spenningi yfir
að komast inn í húsið."
Sýningin í Gallerí i8 verður opn-
uð á fimmtudaginn klukkan 17.00
og stendur til 29. mars.