Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Sport PV
BIKARÚRSLITALEIKUR KARLA
Snæfell - Fjölnir
Laugardalshöll, sunnudagurinn 24. feb
kl 16:00. Dómarar: Kristinn Óskarsson og
Eggert Þór Aðalsteinsson
Snæfell:
Bikartitlar: Enginn
Úrslit: 2 (1993: Keflavik 115-76 Snæfell,
2003: Keflavík95 - 71 Snæfell)
Þjálfarinn: Geoff Kotila
Bikartitlar: Enginn
Úrslit: Aldrei
Fjölnlr:
Bikartitlar: Enginn
Úrslit: 1 (2005: Fjölnir 64 - 90 Njarðvík)
Þjálfarinn: Bárður Eyþórsson
Bikartitlar: Enginn
Úrslit: 2 (Leikmaður Snæfells 1993: Keflavlk
115-76 Snæfell) (Þjálfari Snæfells 2003:
Keflavik95 - 71 Snæfell)
Síðustu viðureignir:
18.11.07 Úrvalsdeild Snæfell - Fjölnir 59 - 73
18.01.07 Úrvalsdeild Fjölnir - Snæfell 84 - 87
22.10.06 Úrvalsdeild Snæfell - Fjölnlr 67 - 60
12.02.06 Úrvalsdeild Fjölnir - Snæfell 73 - 75
13.11.05 Úrvalsdeild Snæfell - Fjölnir 130-94
26.03.05 Úrslitakeppni Snæfell - Fjölnir 80 - 77
22.03.05 Úrslitakeppni Fjölnir - Snæfell 69 - 83
20.03.05 Úrslitakeppni Snæfell - Fjölnir 93 - 93
24.02.05 Úrvalsdeild Snæfell - Fjölnir 95 - 84
02.12.04 Úrvalsdeild Fjölnir - Snæfell 100-81
Leikir U T Skor
Snæfell 10 8 2 850:807
Fjölnir 10 2 8 807:805
Leið Snæfells í úrslit:
Haukar83-89 Snæfell
Þór Ak. 74- 106 Snæfell
Snæfell 86 - 84 Keflavfk
Njarðvlk 77 - 94 Snæfell
Leið Fjölnis f úrslit:
KR B 66- 92 Fjölnir
Fjölnir 105-36 Þróttur Vogum
Fjölnir 87 - 52 Þór Þorl.
Skallagrímur 83 - 85 Fjölnir
BIKARÚRSLITALEIKUR KVENNA
Haukar-Grindavík
Laugardalshöll, sunnudagurinn 24. feb
14:00
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og Jón
Guðmundsson
Haukar:
Bikartitlar: 4 (1984: Haukar 69-57 (S, 1992:
Haukar 70-54 Keflavlk, 2005: Grindavlk 69-
72 Haukar, 2007: Keflavlk 77-78 Haukar)
Úrslit: 6 (1984,1988,1990,1992, 2005,
2007)
Þjálfarinn: Yngvi Gunnlaugsson
Bikartitlar: Enginn
Úrslit: Aldrei
Grindavík:
Bikartltlar: Enginn
Úrslit: 3 (1994: Keflavík 56-53 Grindavlk,
2005: Grindavík 69-72 Haukar, 2006:
Grindavik 73-88 (S)
Þjálfarinn: Igor Beljanski
Bikartitlar: Enginn
Úrslit: Aldrei
Síðustu viðureignir:
30.01.081. deild kv. Grindavík - Haukar 80 - 66
12.12.071. deild kv. Haukar - Grindavík 80 - 99
07.11.071. deild kv. Grindavík - Haukar 88 - 90
08.03.07 1. deild kv. Haukar - Grindavlk 89-73
31.01.071. deild kv. Grlndavik - Haukar 75 - 84
21.12.061. deild kv. Haukar - Grindavík 82-81
05.11.061. deild kv. Grindavlk - Haukar 82-108
08.02.061. deild kv. Grindavík - Haukar 68 - 89
Leikir U T Skor
Grindavík 21 10 11 1566:1552
Haukar 21 11 10 1552:1566
Leið Hauka í úrslit:
Haukar 117-28 Keflavik B
Haukar90-55 Hamar
Haukar 82 - 63 Fjölnir
Leið Grindavfkur f úrslit:
Haukar B 55 - 94 Grindavík
Grindavík 93 - 80 KR
Grindavlk 66 - 58 Keflavlk
Á sunnudaginn fara fram úrslitaleikir Lýsingarbikarkeppni karla og kvenna. Klukkan 14.00
takast Haukar og Grindavík á í kvennaflokki og klukkan 16.00 er komið að körlunum þar
sem Snæfell og Fjölnir mætast. Búist er við hörkuleik í báðum viðureignunum. Þrjú af
íjórum liðum sem keppa um helgina hafa aldrei náð að hampa stórum titli. Haukar hafa þó
titil að verja í kvennaboltanum. Þjálfarar og fyrirliðar lofa góðri stemningu á sunnudag.
Bikarúrslitaleikur karla
Fjölnir situr í næstneðsta sæti Ice-
land Express-deildar karla og fall
virðast ansi líkleg örlög fyrir Grafar-
vogspilta. Það kom því á óvart þegar
Fjölnir lagði Skallagrím í undanúrslit-
um bikarsins. Báður Eyþórsson, þjálf-
ari Fjölnis, vonaði að leikurinn myndi
verða vendipunktur í tímabili Fjölnis
sem hann í raun varð en ekki á góðan
máta.
„Þessi úrslitaleikur gætí klárlega
verið eitthvað sem snýr okkar gengi
við og gætí orðið mikilvægur punktur á
tímabilinu fyrir okkur. Mér hefur fund-
ist það síðan við sigruðum Skallagrím
í undanúrslitum að botninn hafi dott-
ið úr þessu hjá okkur. Menn fóru að
hugsa of mikið um bikarinn fannst mér
og eiginlega gáfust upp á deildinni.
Sigurinn á Skallagrími hafði þver-
öfúg áhrif á liðið miðað við það sem ég
vildi. Það var eins og menn væru orðn-
ir saddir eftír þann leik og í staðinn fyr-
ir að nýta sér þetta í hag í deildinni fór
það allt á hinn veginn," sagði Bárður
við DV á blaðamannafimdi fyrir leik-
inn.
„Það er allt hægt í körfubolta en
staðan er mjög erfið. Spilamennska
okkar upp á síðkastíð hefur heldur
ekkert bent til þess að við séum að fara
að bjarga okkur en við vinnum í því að
laga okkar leik. Ef það tekst ekki föllum
við og það verður bara þannig.
Það er samt mikil jákvæðni í garð
liðsins. Þetta er ungt Úð og ekki mik-
il saga í kringum félagið en þessi bik-
arúrslitaleikur er einmitt leikur sem
skapar félaginu sögu. Þetta er leikur
sem menn geta horft tíl baka á og allir
svona leikir eru plús fýrir félagið. Lið-
ið þarf náttúrulega að byggja sína eig-
in hefð og framtíð og sunnudagurinn
verður hlutí af því.
Ef við föllum þá bara föllum við.
Uppbyggingin er ennþá í gangi hjá
Fjölni og henni verður ekkert lokið á
næstu tímm árum. Ef það verður okk-
ar hlutskiptí að falla sem við stefnum
engan veginn að breytir það örugglega
ekki tilfinningunni að vinna bikarinn.
Stefnan er sett á bikarsigur enda hlýt-
ur allt að vera þá er þrennt er fyrir mig,"
sagði Bárður léttur í bragði.
Þekkir vel til Hólmara
Báður er fýrrverandi leikmaður og
þjálfari Snæfells og þekkir því vel til í
Stykkishólmi. Á mánudaginn í sjón-
varpsviðtali skaut Hlynur létt á Bárð
og bættí svo um betur á blaðamanna-
fundinum. Bárður svarði þar fýrir sig
en allt var þetta í góðu gamni gert enda
Bárður og Hlynur miklir félagar.
„Það er samt alltaf einhver alvara
á bak við þessi léttu skot. Við Hlynur
erum báðir það miklir keppnismenn
að það kemur ekkert annað til greina
en að vinna. Ef einhver telur það hroka
þegar ég segi að ég ætíi ekld að leyfa
Snæfelli að vinna leikinn verður það
að vera svo. Ég er Fjölnismaður í dag
og ætía að reyna að vinna þennan bik-
ar með Fjölni og það sama á Hlynur
eftír að gera með Snæfelli."
Báður er ekki ókunnugur úrslita-
leikjum og veit eftír tvær ferðir í Höll-
ina alveg um hvað málið snýst. „Ég hef
farið tvisvar sinnum í úrslitaleikinn,
einu sinni sem leikmaður Snæfells
og svo sem þjálfari. I bæði skiptín var
okkur rústað af Keflavík. Ég þekki því
aðeins inn á þennan bikardag og get
tekið eitthvað með mér inn í leikinn á
sunnudaginn frá þeim ferðum. Svo er
þetta líka spuming fyrir mig að þekkja
mína eigin leikmenn og hvað þeir geta
ráðið við. Aðalatriðið er samt að halda
einbeitíngu og leggja vissa hlutí upp
fyrir vissa leikmenn.
Það er margt sem breytíst varðandi
hugsunargang hjá manni þegar maður
er þjálfari en ekíd leikmaður. Það eru
leikmennirnir sem þurfa að láta hlut-
ina gerast inni á vellinum en sem þjálf-
ari verðurðu að þekkja hitt liðið. Mað-
ur verður að geta brugðist við atriðum
frá mótherjunum og eiga inni taktík til
að leggja upp sem leikmennirnir verða
svo að fara eftír á leikdag.
Það þarf svo sem ekkert að útskýra
fyrir mínum strákum hversu mikil
stemning þetta er. Þótt þetta sé ungt lið
fór Fjölnir í bikarúrslitin 2005 þannig
að nokkrir leikmannanna hafa leikið
til úrslita og þekkja þetta. Allir þess-
ir leikmenn hafa samt séð úrslitaleiki
og farið í höllina þannig að það koma
allir meðvitaðir um hvað er að gerast.
Það sem þarf er að halda spennustíg-
inu niðri í mönnum," sagði Bárður að
lokum.
Ekkert gaman án sigurs
Hlynur Bæringsson, leikmaður
Snæfells, er einn bestí körfuknattíeiks-
maður íslands. Hlynur hefur löngum
talað um að hann vilji fara að vinna tít-
il með Snæfelli og þegar DV talaði við
hann á Hilton hótelinu í vikunni hafði
það að sjálfsögðu h'tíð breyst. „Við höf-
um alltaf verið að ná í alla þessa minni
títla. Eggjabikarinn, Powerade-bikar-
inn og hvað þau heita nú þessi vöru-
merki öll. Við erum búnir að klúðra ís-
landsmeistaratítlinum tvisvar þannig
að nú er kominn tími á að við löndum
alvöru títli.
Við erum með mikið sjálfstraust en
þótt við eigum að heita sterkara liðið
býst ég nú ekki við vanmatí af okkar
hálfu. Það hefur ekki loðað við okkur
að halda að við séum betri en einhverj-
ir aðrir. Á sunnudaginn þurfúm við að
spila saman því Fjölnir vill mikið spila
upp á einstaklingana en við þurhim
að spila okkar liðsbolta. Boltinn þarf
að vinna fyrir okkur en við ekki fyrir
hann," sagði Hlynur ákveðinn.
Hlyn langar lítíð að gera leikinn
spennandi. Eina sem hann hugsar um
er að vinna leikinn og ekkert nema sig-
ur gerir hann glaðan. „Ef það er hægt
ætlum við á öllum tímapunktum að
reyna að valta yfir þá. Hvort það verði
strax í byrjun veit ég ekki en ef við verð-
um varir við blóð gerum við atíögu til
að drepa eins og góðum liðum sæ-
mir. Við þurfum að nýta breiddina vel
og ætlum okkur að gera það. I jöfnum
leik skiptír engu máli hver staðan er í
deildinni. Leikurinn má ekki verða
þannig að eitthvað eitt skot skiptí máli.
Við viljum helst enga spennu á síðustu
sekúndunum þar sem Fjölnir getur
stolið sigrinum.
Þetta tal um að njóta dagsins er
nokkuð sem er ekki fyrir mig. Eina leið-
in fyrir mig til þess að njóta körfubolta
er að vinna. Ef við töpum er mér alveg
sama um hversu gaman þetta var og
hversu mikil stemningin var því ef ég
vinn ekki hef ég ekkert gaman af þessu.
Það mun ekki hugga mig ef við töpum
hversu margir mættu þótt ég sé alltaf
þakklátur fyrir allt það fólk sem kemur
að horfa á okkur.
Ég þekki þetta Fjölnislið nú ekk-
ert rosalega vel persónulega en ég veit
að það er vel þjálfað að minnsta kosti.
Þetta er ungt lið sem á eftir að koma
eins og hundur í leikinn og eyða ein-
hverjum villum í að berja á manni sem
er ekkert nema fínt. Þótt við Bár
séum ágætís félagar pæli ég samt
ert í því hvernig Fjölnir undirbýr sig
fyrir leikinn.“
Sofum heima hjá okkur
Snæfell fór síðast í bikarúr-
slitaleikinn árið 2003 og laut þá í lægra
haldi fyrir Keflavík. Hlynur lærði mik-
ið af leiknum, nokkuð sem hann get-
ur tekið með sér í leikinn á sunnudag-
inn. „Síðast þegar ég fór í bikarsúrslitín
gegn Keflavík 2003 völtuðu þeir yfir
okkur. Það verður einfaldlega að segj-
ast að þeir voru með miklu betra lið
þá. Damon Johnson kláraði okkur al-
veg og sama hvað við horfum á upp-
tökuna af þeim leik oft breytir það því
ekki hversu mikið betri þeir voru. Get-
umunurinn var of mikill. Keflavík rúll-
aði yfir deildina þetta ár og tók bikar-
inn líka. Við enduðum í m'unda sætí
þetta ár og áttum lítíð í þá.
Það sem ég lærði af síðasta úr-
slitaleik er að hugsa ekki of mik-
ið um hann. Þó þetta sé ekki
eins og hver annar leikur verð-
ur að undirbúa sig fyrir hann
eins og deildarleik. Það verður
ekki gist á einhverju hóteli eins
og síðast þegar við fórum í úr-
slit eða neitt þannig. Við munum
sofa heima hjá okk- ur. Síðast
fórum við á Hót-
el Selfoss fyrir
leikinn en ég
held að það
geri mann
ekkert betri
í körfubolta
að sofa á
hóteli dag-
inn fyrir
leik. Ég held
að þetta sé
stærsta lex-
ían sem ég
lærði af síð-
ustu kynnum
mínum við bik-
arúrslitín," seg-
ir Hlynur sem
sagði þjálf-
ara sinn,
Geoff Kot-
ila, leggja
leikinn
upp ein-
falt.
„Geoff
er rólyndis-
maður þótt
hann æsi sig
stundum.
Hann gerir
það nú oft-
ast þegar
við ger-
um eitt-
hvað af
okkur
sem
við reyndar gerum nú allt of mikið af.
Það sem hann hefur verið að segja við
okkur varðandi leikinn er að það eru
alltaf lið sem vinna titía ekki leikmenn.
Einstaklingar geta klárað eina og eina
sókn en ef við höldum okkur saman
vinnum við.
Við þurfúm heldur ekkert að gera
eitthvað sem við kunnum ekld. Það er
alveg óþarfi að byrja allt í einu í ein-
hverjum bikarúrslitaleik á viðstöðu-
lausum troðslum eða einhverju svo-
leiðis. Það er nóg fyrir okkur að spila
okkar bolta því þá vinnum við. Þetta er
bara körfúboltí og hann kunnum við
ágætíega."
Lítíð er rætt um þessa dagana í
Stykkishólmi annað en bikarúrslita-
leikinn. Þar eru menn famir að bú-
ast við sigra enda Snæfell sigur-
stranglegra liðið og þannig
vill Hlynur hafa það.
Okkar leikurað
tapa
„Leikurinn á
sunnudaginn er á vör-
um allra í bæj arfélaginu
ogégreyninúbara
að fara
sem
Níels Dúngal hefur