Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Síða 58
58 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Ættfræöi QV
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjart
Netfang kgk@simnet.is
Ættfræði DV
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur ættir
þjóðþekktra (slendinga sem hafa verið
í fréttum í vikunni, rifjar upp frétt-
næma viðburði liðinna ára og minnist
horfinna merkra (slendinga. Lesendur
geta sentinntilkynningarum
stórafmæli á netfangið kgk@dv.is
Guðríður Soffía Sigurðardóttir
fyrrv. kaupkona
Gunnar Magnús Gröndal
starfsmaður við Skattstofuna í Hafnarfirði
Gunnar Sverrir Asgeirsson
sviðsstjóri upplýsinga- og tæknisviðs Intrum
Guðríður fæddist á
Geirseyri við Patreks-
fjörð og ólst þar upp.
Að loknu bama- og
unglinganámi stund-
aði hún nám við Hús-
mæðraskólann á Ak-
ureyri.
Guðríður sinnti bú-
störfum hjá foreldr-
um sínum á Geirseyri,
stundaði auk þess
verslunarstörf og vann
síðan við Sjúkrahús-
ið á Patreksfirði. Hún
var búsett þar til 1955
er hún gifti sig. Þá flutti hún
til Bíldudals. Þau hjónin fluttu
síðan til Reykjavíkur 1971.Guð-
ríður festi þá kaup á verslun-
inni Regnhlífabúðinni, Lauga-
vegi 11, og starfrækti hana til
1996.
Fjölskylda
Guðríður giftist 17.6.1955
fónasi Ásmundssyni, f.
24.9.1930, fyrrv. odd-
vita og framkvæmda-
stjóra á Bíldudal og
síðar deildarstjóra við
HÍ.
Börn Guðríðar og
Jónasar eru Ásmundur
Jónasson, f. 20.7.1957,
læknir í Garðabæ; Gylfi
Jónasson, f. 24.6.1960,
framkvæmdastj óri
Festu, Lífeyrissjóðs;
Helgi Þór lónasson, f.
20.7.1964, innheimtu-
stjóri Reykjavíkur-
borgar. Stjúpdóttir Guðríðar
er Guðrún Jóna Jónasdóttir, f.
31.12.1952, skrifstofumaður í
Reykjavík.
Foreldrar Guðríðar voru
Sigurður Andrés Guðmunds-
son,f. 29.11.1886, d. 23.12.
1948, skipstjóri og bóndi á
Geirseyri við Patreksfjörð, og
k.h., Svandís Árnadóttir, f. 9.9.
Gunnar Magnús
fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólan-
um í Reykjavík 1968,
stundaði nám við Há-
skóla íslands 1968-70,
stundaði síðar nám við
endurmenntunardeild
Háskóla íslands og
lauk þaðan prófum í
viðskipta- og rekstrar-
fræði árið 1993.
Gunnar Magnús
starfaði við Innflutn-
ingsdeild Sambands
íslenskra samvinnufélaga
1971-80, vann á skrifstofu SÍS
í Hamborg 1980-83 en hóf þá
störf hjá sjávarafurðadeild SÍS í
Reykjavík og starfaði þar með-
an deildin var starfrækt.
Gunnar Magnús starfaði hjá
íslenskum sjávarafurðum hf.
frá árslokum 1990 og meðan
fyrirtækið starfaði í þáverandi
mynd en hefur starfað hjá
Gunnar fæddist á
Akureyri en ólst upp
á Siglufiirði. Hann var
í Grunnskóla Siglu-
fjarðar. Hann flutti
síðan suður til Reykja-
víkurogvar íHaga-
skólanum í Reykjavík,
stundaði síðan nám
við Menntaskólann
á Akureyri um skeið
en lauk stúdetsprófi
frá Fjölbrautaskólan-
um í Ármúla. Gunnar
stundaði síðan nám í
kerfisfræði við Tölvu-
háskóla Verzlunarskóla fs-
lands, lauk BS-prófi í tölvun-
arfræði frá HR og MBA-prófi
frá Thunderbird University
í Phoenix í Bandaríkjunum
2002.
Gunnar stundaði ýmis
störf til sjós og lands á náms-
árunum. Hann starfaði hjá
Reiknistofu bank-
anna 1995-97, hjá
Tölvumiðstöð spari-
sjóðanna 1997-2001
og hefur starfað hjá
Intrum frá 2003.
Fjölskylda
Eiginkona
Gunnars er Agnes
Ólafsdóttir, 20.2.
1969, leikskóla-
kennari.
Börn Gunnars og
Agnesar eru Ólafur
Sverris, f. 27.5.1991;
Sigurður Sverris, f. 19.5.1995.
Foreldrar Gunnars: Ásgeir
Erling Gunnarsson, f. 20.3.
1947, framkvæmdastjóri, og
Aðalheiður Ósk Sigurðardótt-
ir, f. 27.4.1947, húsmóðir.
KENNARI
Sigríður Bjarnadóttir húsmóðir,
Daltúni 32, Kópavogi, er sjötug í dag.
Starfsferill
Sigríður fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún lauk verslunarprófi frá
VÍ 1957 og stúdentsprófi þaðan 1959,
sótti enskunámskeið í Edinborg 1964,
dönskunámskeið við KHÍ 1981, hef-
ur sótt ýmis tölvunámskeið á árun-
um 1981-85 og 1993, stundaði nám til
kennsluréttinda við KHÍ 1989 og lauk
þaðan prófum með kennsluréttindi á
framhaldsskólastigi 1991.
Sigríður stundaði skrifstofustörf í
Félagsprentsmiðjunni hf. 1959-67 og
var þar lengst af bókari og gjaldkeri.
Hún starfaði við Héraðsskólann í
Reykholti 1967-95 þar sem hún hafði
umsjón með nemendum á heimavist
1967-84 og stundaði kennslu, eink-
um í viðsldptagreinum, 1968-95. Þá
sá hún um bókhald mötuneytis Reyk-
holtsskóla 1969-77 og 1991-95, sá um
bókhald Héraðsskólans í Reykholti
1969-80, hafði umsjón með þrifum og
bókhaldi Snorragarðs í allmörg ár og
var umboðsmaður SfBS 1972-95.
Sigríður sat í hreppsnefnd Reyk-
holtsdalshrepps 1974-78, í stjóm
kvenfélags Reykdæla um nokkurra
ára skeið og sat í ritnefnd 40 ára af-
mælisrits SBK. Hún er nú formaður
íþróttafélagsins Glóðar í Kópavogi.
Fjölskylda
Sigríður giftist 6.7.1963 Snorra Þór
Jóhannessyni, f. 19.7. 1940, d. 23.4.
2003, kennara. Hann var sonur Jó-
hannesar Pálmasonar, sem er látinn,
sóknarprests á Stað í Súgandafirði og
síðan í Reykholti í Borgarfirði, og Að-
alheiðar M. Snorradóttur húsmóður.
Börn Sigríðar og Snorra Þórs em
Jóhannes, f. 3.5. 1963, starfsmaður
hjá Hagkaupum; Bjarni, f. 26.12.
1964, húsasmiður í Kristiansand í
Noregi, kvæntur Bente Tönnesen,
garðyrkjufræðingi og verslunarstjóra,
og em synir Bjarna og Thelmu Theo-
dórsdóttur AronSnorri, f. 18.12.1984,
sjómaður sem ólst upp hjá Sigríði í
nokkur ár, Theodór Elmar, f. 4.3.1987,
atvinnumaður í knattspymu hjá Lynn
í Osló; Brynjar Orri, f. 2.5.1988, nemi
og knattspyrnumaður. Auk þess á
Bente tvö börn frá fýrra hjónabandi,
Anne og Morten.
Bróðir Sigríðar er Konráð R.
Bjarnason, f. 8.1. 1940, d.21.6. 1998,
fýrrv. framkvæmdastjóri í Reykjavík,
var kvæntur Halldóm Guðmunds-
dóttur og eiga þau þrjú böm og fimm
bamaböm.
Foreldrar Sigríðar: Bjami Konráðs-
son, f. 2.12.1915, d. 20.5.1999, læknir
og dósent í Reykjavík, og Ragnhildur
Björg Metúsalemsdóttir, f. 27.6.1917,
d. 27.2.1987, húsmóðir.
Ætt
Bjarni var sonur Ingvars, b. á Skip-
um í Stokkseyrarhverfi Hannessonar,
b. á Skipum Hannessonar í Ranakoti,
Runólfssonar, b. í Bitm Þorsteins-
sonar. Móðir Hannesar í Skipum
var Vilborg Ingimundardóttir, b. í
Bjömskoti á Skeiðum Sigvaldasonar.
Móðir Ingvars var Sigurbjörg, systir
Guðlaugar, móður Ásgríms Jónsson-
ar listmálara. Sigurbjörg var dóttir
Gísla, b. í Forsæti og síðar hreppstjóra
í Vatnsholti í Flóa, bróður Guðmund-
ar, b. á Grafarbakka, langafa Magnús-
ar Víglundssonar forstjóra og Einars
Kristjánssonar ópemsöngvara, föður
Völu ópemsöngkonu. Gísli var sonur
Helga, b. á Grafarbakka Einarssonar,
b. í Galtafelli Ólafssonar, b. í Galtafelli
Bjarnasonar. Móðir Gísla var Mar-
ín, formóðir skákmannanna Friðriks
Ólafssonar, Jóhanns Hjartarsonar,
Þrastar Ámasonar, Helga Ólafsson-
ar og Eggerts Gilfer. Marín var dóttir
Guðmundar, ættföður Kópsvatnsætt-
ar Þorsteinssonar. Móðir Sigurbjargar
var Guðlaug Snorradóttir, b. í Vatns-
holti ættföður Jötuættarinnar Hall-
dórssonar. Móðir Bjarna var Vil-
borg Jónsdóttir, b. í Sandlækjarkoti í
Hreppum Bjarnasonar.
Ragnhildur Björg var dóttir Met-
úsalems Stefánssonar, skólastjóra á
Eiðum, bróður Halldórs, forstjóra og
alþm., föður Ragnars, stjórnarfor-
manns í Isal. Aðrir bræður Metús-
alems voru Guðmundur, skólastjóri
í Minnesota, og Bjöm, kaupfélags-
stjóri á Breiðdalsvík. Systur Metúsal-
ems vom Aðalbjörg, amma Sólrúnar
Jensdóttur, skrifstofustjóra í mennta-
málaráðuneytinu, og Anna, amma
Valdimars Ömólfssonar íþrótta-
kennara. Metúsalem var sonur Stef-
áns, pr. á Desjarmýri í Borgarfirði
eystra og síðar á Hjaltastað, bróður
Björns, alþm. og síðar málsvara Úní-
tara í Vesturheimi. Stefán var son-
ur Péturs, pr. á Valþjófsstað, bróður
Þóm, ömmu Einars Kvaran skálds,
afa Ævars Kvaran og langafa Ragn-
ars Arnalds. Pétur var sonur Jóns,
vefara á Kórreksstöðum, Þorsteins-
sonar, pr. að Krossi í Landeyjum, Stef-
ánssonar. Móðir Jóns vefara var Mar-
grét Hjörleifsdóttir, pr. á Valþjófsstað,
Þórðarsonar, af ætt Einars Sigurðs-
sonar í Heydölum. Móðir Péturs var
Þórey Jónsdóttir. Móðir Stefáns var
Anna Björnsdóttir, systir Guðlaugar,
langömmu Kristjáns Eldjám forseta.
Móðir Metúsalems var Ragnhildur
Björg Metúsalemsdóttir sterka, b. í
Möðmdal, Jónssonar, og Kristbjargar,
systur Páls, afa Friðriks Friðrikssonar
æskulýðsleiðtoga. Kristbjörg var dótt-
ir Þórðar, ættföður Kjamaættarinnar,
Pálssonar.
Móðir Ragnhildar Bjargar yngri
var Guðný Jónína Óladóttir, b. á
Höfða á Völlum, Halldórssonar.
Sigríður tók á móti vinum og ætt-
ingjum sl. laugardag en verður heima
eftir klukkan 15 á afmælisdaginn.
Skattstofunni í Hafnar-
firði frá árinu 2001.
Fjölskylda
Gunnar Magnús
kvæntist 2.6.1972 Odd-
nýju Hrönn Björgvins-
dóttur, f. 28.1.1949,
bókasafnsfræðingi
Börn Gunnars
Magnúsar og Oddnýj-
ar Ilrannar eru Gunnar
Orri Gröndal, f. 29.7.
1973, verkfræðingur;
Haukur Freyr Gröndal,
f. 30.12.1975, tónlist-
armaður; Ragnheiður
Gröndal, f. 15.12.1984, söng-
kona og tónlistarmaður.
Foreldrar Gunnars Magn-
úsar: Haukur Gröndal, f. 3.2.
1912, d. 17.9.1979, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík, og
Sigríður Hafstein, f. 19.4. 1920,
d. 6.5.1975, húsmóðir.
AFMÆLISBARN DAGSINS: