Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Qupperneq 74
74 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Helgarblað OV
Umsjón: Dórl DNA Netfang: dori@dv.is
Kíktuáþessa
Bleach-wn,os
Patapon-psp
The Club-PS3,XBOX36o
Conflict: Covert Ops - PS3
Asterix at Olympic Games - wn, pc,
NDS, PS2
Leikjaframleiðandinn 2K mun gefa út
leikinn Civilization Revolution íjúni. Um er
að ræða framhald hinna geysivinsælu
Civilization-leikja þar sem menn þurfa að
spila sig í gegnum þróunarsöguna.
Leikurinn kemur út á Xbox360, Playstation
3 og Nintendo DS, en er það í fyrsta skipti
sem Civ kemur út á leikjatölvu, en ekki
eingöngu PC eða Macintosh. Grafík leiksins
hefur verið bætt til muna, en leikurinn
hefur víst aldrei verið jafnauðveldur og
ávanabindandi í spilun.
GEARSOFWARS
2ÍVÆNDUM
Tölvuframleiðandinn Epic sendirfrá sér
tölvuleikinn Gears of Wars 21 nóvember á
þessu ári. Fyrri leikurinn þótti stórkostlegur
og seldist í 4,5 milljónum eintaka úti um
allan heim. Tilkynnt var um leikinn fyrir
helgi, en hann mun eins og fyrri leikurinn
aðeins koma út á Xbox 360 en ekkert hefur
verið talað um hvort PC-útgáfa verði
fáanleg. Formleg stikla fyrir leiklnn kom á
netið fyrir helgi og hvetur tölvuleikjaaka-
demfa DV alla til þess að skoða mynd-
bandið, enda eintómur hasar í gangi.
Stríðsleikurinn Medal of Honor Her-
oes 2 er fyrsti leikurinn í þessari fr ægu
stríðsleikjaröð sem kemur á Nin-
tendo Wii og ég vona svo sannarlega
að þeir verði fleiri. í leiknum er mað-
ur í hlutverki bandamanna í seinni
heimsstyrjöldinni og berst gegn
harðsvíruðum nasistum Hitlers.
Ég hef persónulega ekki spilað Me-
dal of Honor síðan ég spilaði Medai
of Honor: Frontline á PS2 og ég verð
að segja að það hefur verið gerð mikil
bragarbót á með Wii-útgáfunni. Það
hefur alltaf loðað við leikina hversu
pirrandi og óþægilegt stýrikerfið get-
ur verið. En með Wii-stýrikerfinu og
tölum ekki um með Wii Zappernum
eru allt aðrir hlutir uppi á borðinu.
Þó svo að grafíkin í Heroes 2 sé
ekki sú allra besta venst maður henni
fljótt og hún virkar nokkuð vel. Hún
er auðvitað ekki í sama klassa og í
skotleikjum sem boðið er upp á PS3
eða Xbox360 en Heroes 2 hefur upp
á annað að bjóða sem leikir á þess-
um tölvum hafa ekki. Það er jú þetta
magnaða stýrikerfi sem er fullkomn-
að með Zappemum.
Maður þeysist um borðin á meiri
hraða en maður er vanur í Medal of
Honor og stráfellir nasista með fjöl-
breyttum og skemmtilegum vopn-
um. Allt frá skammbyssum, vélbyss-
um og rifflum yfir í sprengjuvörpur
og loftvarnarbyssur.
Það sem mætti þó vera betra er
gervigreind óvinanna og samherj-
anna. Þeir eru oft alveg steiktir og
standa til móts við hver annan án
þess að taka eftir því. En þegar upp
er staðið kemur það ekki að sök því
leikurinn er það hraður og skemmti-
MEDALOF HONOR ★★★★
HEROES2
Nintendo Wii
Striðsleikur
Wii Zapper: -k-k-k-ki
TÖLVULEIKUR
legur.
Það sem gefur leiknum líka aukið
vægi er multiplayer-hluti hans sem er
mjög ferskur. Það er ekki næstum því
jafnalgengt að slíkir hlutir séu í boði á
Wii og í öðrum tölvum en EA tekst vel
til í Her-
oes 2.
Borðin eru
þau sömu
og í leiknum
en maður get-
ur barist við allt að 32 einstakl-
inga í einu og því um nægan hasar að
ræða.
Ég myndi segja að Wii Zapperinn
sé skyldueign allra Wii-aðdáenda.
Ekki bara með þessum leik heldur
fyrir alla þá skotleika sem munu fylgja
í framtíðinni. Nú þegar er til dæm-
is hægt að nota hann við Resident
J|
\V\\
\ í
Wll ZAPPER Er
frábærviðbót við
skotleiki á Wii.
Evil: Umbrella
Chronicals.
Ef Zapperinn
hefði haft skot-
gikkinn aftan
á en ekki að
framan hefði
hann fengið
fimm stjörnur.
Ég vona að Nintendo haldi áfram
að hanna svona aukahluti og bíð
spenntur eftir skammbyssu eða ein-
hverju öðru töff dæmi. Því þar liggur
styrkur og íjölbreytni Wii.
Ásgeir Jónsson
I FYRSTA SKIPTIAISLANDI
Þltt ,ls án stofngjaldsl
Taktu þátt í byltingunni...
Faröu á www.lén.is og skráöu þitt .is lén
án stofngjalds! ^
fRlTT
lén.is
Heimili heimasíðunnar
@netvistun
Vefir sem virka