Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2008, Blaðsíða 86
86 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008
Síðasten ekkislst DV
BÓKSTAFLega
„Greinirinn hlýtur að vera
annað tveggja heimsk-
ur eða gjörsamlega fávís
þegar keniur að íslensk-
um bönkum."
■ Sigurður Einarsson, stjórnarfor-
maður Kaupþings, (viðtali við
danska fjáramálablaðið Börsen í
vikunni. Danski bankinn Saxobank
birti spá (vikunni sem gerir ráð fyrir
því að Kaupþing verði gjaldþrota á
þessu ári.
„íslenskir rit-
höfundar
hafa ekki
mikið að
segja íyrir
utan verk
sín."
■ Kolbrún Bergþórsdóttir (Kiljunni
þegar bókin Sköpunarsögur var
dæmd á dögunum - Áts!
„Aldrei datt
Ts <• mér í hug
m að ég ætti
^ eftir að
I segja þetta,
en ég sakna
Kanans á Miðnesheiði."
■ Dr. Gunni (lofræðu sinni um
Kanann á (slandi - Fréttablaðið.
„Það er eins í fótbolta
og pólitík; ef þú skorar
of rnikið af
sjálfsmörk-
um get-
urðu ekki
verið lengi
íliðinu."
■ Guðjón Þórðarson
kennir sjálfstæðismönnum liðsheild
sem þeim virðist ekki veita af - 24
stundir.
„Það var talað um að
hækka styrkinn upp í ríf-
lega 800 milljónir. Vil-
hjálmur Vilhjálmsson
og Biöril Ingi Hrafns-
son íýstu því svo yfir á
herrakvöldi Fylkis í jan-
úar 2007 að félagið yrði
styrkt. Það eru nú eícki
nerna 800 vitni að því."
■ Örn Hafsteinsson, framkvæmda-
stjóri Fylkis, (DV.
„Ég læt ekki fjóra nienn
breyta hugsun minni á
300 þúsund manns."
■ Timothy Branson (DV en Timothy
varð fyrir fólskulegri Ifkamsárás
rasista.
„Þegar íslamófóbían hef-
ur endanlega náð tökum
á mér get ég skrifað bók-
ina fslamd.
■ Egill Helgason á
bloggi sfnu. En
þegar hafa
verið skrifaðar
bækur sem
heita Londonist-
an og Eurabia.
„Þráin eftir að hafa ein-
hvern tímann ekki neitt
að gera."
■ lllugi Jökuls
DV, spurður a
því hvað drífi
hann áfram.
TÓLF DÖGUMYNGRI
EN B0BBYFISCHER
Samuel Estimo er 64 ára filippseyskur lögfræðing-
ur og fullyrðir að skjólstæðingur sinn, hin 7 ára gamla
Jinky Young, sé dóttir skáksnillingsins Bobby Fischers. Sjálf
ur hefur Estimotvívegis keppt með skáklandsliði þjóðar
sinnar. Lögfræðingurinn lifirfyrir hvern dag og hugsar lítið
út í hvað framtíðin ber í skauti sér. Hann óttast þó að falla
frá á árinu líkt og Fischer enda fæddir á sama árinu.
Hver er maðurinn?
„Samuel Estimo, lögfræðingur og
skákmaður á 64. aldursári."
Hver eru helstu áhugamál þín?
„Skákin tekur mestan tíma minn. Ég
spila einnig körfubolta og hef gert
mjög lengi. Ég læt háan aldur minn
ekki halda neitt aftur af mér og spila
körfubolta alveg á fullu ennþá."
Hvers vegna ákvaðst þú að
gerast lögfræðingur?
„Það ákvað ég eftir að ég uppgötvaði að
mér tækist aldrei að verða stórmeistari
í skák. Ég hafði reyndar tvívegis verið í
landsliði Filippseyja í skák, ég keppti
á Skákólympíuleikunum í Þýskalandi
1970 og ísrael 1976. Þá var ég einnig
fyrirliði landsliðsins, án þess að leika
með því, í Slóveníu 2002, Spáni 2004
og ítalíu 2006."
Hvaða máli ert þú stoltastur af að
hafa rekið sem lögmaður?
„Ég var mjög stoltur af því að hafa flutt
mál Florencios Campomanes, fyrr-
verandi formanns Alþjóðaskáksam-
bandsins, fyrir áratug eða svo. Hann
lögsótti stjörnulögfræðing Filippseyja,
Art Borjal, fyrir meiðyrði og við unn-
um málið. Sigurinn hafði mikil áhrif
á Borjal og hann lést nokkrum árum
síðar."
Hvert er draumaverkefnið í
framtíðinni?
„Ég hef haft mjög gaman af því að vera
dálkahöfundur í dagblöðum og sjón-
varpsþáttarstjórnandi skákþáttar með
Campomnes formanni. Sem lögmað-
ur er ég enn að bíða eftír að drauma-
verkefnið berist á mitt borð."
Hittir þú sjálfur Bobby Fischer?
„Já, ég hittí hann fyrst á Skákólymp-
íuleikunum í Þýskalandi árið 1970.
Þar tapaði hann fyrir Spassky í tafli
milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.
Hann var mjög leiður yfir tapinu en ég
veit hins vegar að hann var að kljást
við magapest allan tímann sem skákin
stóð yfir. Bobby lét bara ekki á neinu
bera. Við vorum í sambandi árið 2002
eftir að hann óskaði eftir því við mig
að ég hjálpaði honum að gerast filipp-
seyskur ríkisborgari."
Tókst þú verkefnið að þér?
„Nei, ég ráðlagði honum hins vegar
harðlega gegn því vegna mikilla ítaka
Bandaríkjamanna í heimalandi mínu.
Hann sagði mér þá að hann vildi ger-
ast filippseyskur ríkisborgari þar sem
hann ættí þarlenda dóttur og fullt af
góðum skákvinum."
Er Jinky dóttir Bobbys Fischer?
„Já, Bobby hafði sjálfur viðurkennt
hana sem bam sitt. Ég hef í höndum
ýmis gögn því tíl stuðnings ásamt ljós-
myndum."
Hvernig eru þær mæðgur
Marilyn og Jinky?
„Marilyn er virkilega hógvær og góð-
hjörtuð kona. Hún er ekki síður á mótí
fjölmiölafári en hinn látni skákmeist-
ari. Jinky er fjörug unga stúlka í barna-
skóla sem enn hefur eldd náð að átta
sig almennilega á því að hennar mikli
faðir sé látinn."
Hvað ber framtíðin í skauti sér?
„Ég horfi ekki svo mikið til framtíðar
heldur einbeití mér að líðandi stundu
og tek eiginlega einn dag fyrir í einu.
Um leið og ég geri það hfi ég í eilitlum
ótta um að ég geti líka fallið frá á mínu
64. aldursári, líkt og skáksnilhngurinn
Bobby Fischer. Ég er jú aðeins 12 dög-
um yngri en snillingurinn var."
SANDKORN
■ Það væsir ekki um rithöfúnd-
inn Þráin Bertelsson þessa dag-
ana en hann situr nú við skriftir
á sveitaóðali
íslenska ræð-
ismannsins
í Tékklandi,
Þóris Giuin-
arssonar.
Nokkur ár
em síðan
ræðismanns-
hjónin gerðu
upp sveitaóðalið en þar útbjuggu
þau sérstaka listamannaíbúð
sem ófáir íslendingarnir hafa
setið í og skapað. Þetta er ekki
í fyrsta skiptí sem Þráinn nýtur
góðs af gestrisni hjónanna en
þetta er þriðja skáldsagan sem
Þráinn skrifar í listamannaíbúð-
inni. Þráinn fær greinilega mik-
inn innblástur til verka þarna en
þeir sem þekkja til konsúlsins
geta greint að rithöfundurinn
hefur greinilega nýtt sér per-
sónueinkenni hans í síðustu bók
sinni - Englar dauðans.
■ Guðmundur Benediktsson
knattspyrnumaður er þekkt-
ur fýrir skeleggar og nákvæm-
ar lýsingar á enska boltanum
hjá Sýn. Nú á dögunum gerðist
það í miðjum leik að það fór að
snjóa. Gummi er víst eins og
aðrir menn og finnst einstak-
lega leiðinlegt að þurfa að skafa
af bílnum sínum. Hann brá sér
því út í hálfleik og kveikti á bíln-
um sínum og lét hann bíða í 45
mínútur eftir sér, en bíllinn var
víst flauelsmjúkur og hlýr þegar
leiknum var lokið.
■ Sprengjuhöllin áttí gott síðasta
ár og raðaði ihn slögurum á vin-
sældalistana. Það voru þó ekki
bara vinsældir sem sveitin aflaði
sér á árinu
og má leiða
líkum að því
að hljóm-
sveitin hafi
skilað sér
álíka miklum
óvinsæld-
um. í spjalli
við Monit-
or í síðasta tölublaði vílar Raggi,
bassaleikari Botnleðju, það að
minnsta kosti ekki fyrir sér að
kalla strákana í Sprengjuhöll-
inni hálfvita. Hvort það sé tónlist
Sprengjuhállarinnar eða hroki
einstakra riieðlima hennar sem
fer svona mikið í taugarnar á
bassaleikaranum skal látíð liggja
á milli hluta. En margir tónlistar-
menn munu vera ósáttir við skrif
Alla Bollasonar, hljómborðsleik-
ara sveitarinnar, í Morgunblað-
ið þegar hann hampaði eigin
hljómsveit á kostnað nokkurra
flaggbera íslenskrar tónlistar-
senu síðustu ára og það er ekki
eini vettvangurinn sem Atli hef-
ur látíð slíkt eftír sér.
HINN DAGINN