Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008
Fréttir DV
Hin tvítuga Dominika Majewska lenti í hrottalegri líkamsárás um helgina þegar íslensk stúlka beit hana
í andlitið vegna þjóðernis Dominiku. Aðeins mánuði áður en ráðist var á hana var hún í viðtali við DV þar
sem hún sagðist hafa fellt tár þegar hún frétti af samtökum kynþáttahatara.
STULKA BITIN
ÍANDLITVEGNA
ÞJOÐERNIS
„Það hatar mig enginn, né hefur
nokkur maður ástæðu til þess."
Aldrei bjóst hún við að verða
sjálffórnarlamb slíks haturs.
VALUR GRETTISSON
bladamadur skrifar:
„Þegar ég sagðist vera pólsk réðust
stelpurnar á mig," segir Dominika
Majewska, tvítug pólsk afgreiðslu-
stúíka, um upphaf þess að þrjár
konur á þrítugsaldri réðust á hana
á bar í miðbæ Reykjavíkur um síð-
ustu helgi. Svo virðist sem þær hafi
gert það eingöngu vegna þess að
hún er pólsk að uppruna.
Árásin var hrottafengin en ein
stúlkan beit hana í andlitið svo það
stórsér á Dominiku. Aðeins mán-
uði áður var Dominika í viðtali við
DV vegna rasistasamtakanna ÍFÍ
sem eru starffækt í Keflavík. Stofn-
un samtakanna fékk mikið á hana.
Sjálf segist Dominika hafa fellt tár
þegar hún frétti af tilvist samtak-
anna.
Reiddist rasismanum
Dominika hefur búið á íslandi
í tæp sjö ár og fær ríkisborgararétt
nú í sumar. Hún flutti hingað með
fjölskyldu sinni og hefur unað sér
vel á Islandi - þar til nú.
Hún var úti að skemmta sér
með vinum um síðustu helgi þegar
hún sá mann af erlendum uppruna
biðja stúlkurnar þrjár um kveikj-
ara. Þær hreyttu í hann ónotum og
segir Dominika að þau hafi litast af
rasisma. Hún reiddist aðförinni að
manninum og sagði við stúlkurnar
að hún væri sjálf pólsk. Orðaskipt-
in urðu ekki fleiri að sögn Dom-
iniku því stúlkurnar réðust á hana.
Þær slógu og spörkuðu í hana auk
þess sem ein þeirra beit Dominiku
í andlitið.
Þorir ekki út
„Ég fór ekkert út í gær eða í dag,"
segir Dominika sem var verulega
brugðið eftir hatursglæp kvenn-
anna. Konurnar sem lömdu Dom-
iniku voru allar rétt rúmlega tví-
tugar en enginn þeirra þekkti á
nokkurn hátt til hennar. Árásin átti
sér stað fyrir utan kvennaklósettið
á bar í miðborginni þar sem Dom-
inika hafði verið að skemmta sér
ásamt vinkonum.
Henni finnst þessi þróun
óhugnanleg og það sérstaklega eft-
ir að hún fordæmdi samtökin ÍFÍ
fyrir kynþáttafordóma aðeins mán-
uði áður.
Grét vegna kynþáttahaturs
„Ég grét þegar ég ffétti af þessu
og það var hræðilegt að lesa um-
mæli sem meðlimir samtakanna
'i t r
Dominika Majewska Lenti í hrottafenginni
líkamsárás um síðustu helgi vegna pólsks uppruna
létu hafa eftir sér," sagði Dominika í
viðtali við DV um samtökin ÍFÍ sem
beindu reiði sinni að nokkru leyti
gegn Pólverjum. Sjálf talar Dom-
inika reiprennandi íslensku enda
búið hér á landi frá tólf ára aldri.
Vaxandi kynþáttahatur íslendinga
hefur valdið henni hjartasorg. Hún
telur þó engin tengsl á milli um-
Bitin í andlitið Það sér þó nokkuð á
Dominiku eftir fólskulega hatursárás.
mæla hennar í viðtali við DV og
árásarinnar.
Engin ástæða til að hata
„Ég er hrædd við að fara út og
líður illa andlega," segir Dominika
en henni er enn mjög brugðið eft-
ir fólskulega árásina. Hún segist
finna mikið fyrir vaxandi fordóm-
um íslendinga í garð útlendinga
en hingað til hefur hún ekki orðið
fyrir miklu ónæði vegna uppruna
síns. Hún segist vita hverjar þessar
konur eru sem veittu henni áverka
og hitti lögfræðing í gær til þess að
ráðfæra sig um næstu skref. Hún
ætlar að kæra þær allar enda árás-
in hrottaleg og hatursfull.
„Það hatar mig enginn, né hef-
ur nokkur maður ástæðu til þess,"
segir Dominika sem á erfitt með
að skilja hegðun fslendinga en hat-
ursárásir hafa færst talsvert í auk-
ana undanfarið. Aldrei bjóst hún
við að verða sjálf fómarlamb slíks
haturs.
I