Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Qupperneq 7
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 7
Sigþrúður Sigfúsdóttir, ekkja Skúla Garðarssonar, segir Kaupþing líftryggingar ekki hafa sinnt upplýsinga-
skyldu sinni. Eiginmaður hennar heitinn borgaði iðgjöld fyrir líftryggingu til félagsins í tíu ár. Þegar hann varð
bráðkvaddur neitaði Kaupþing líftryggingar að greiða út tryggingaféð þar sem eiginmaðurinn hefði gefið þeim
rangar upplýsingar. Sigþrúður er öryrki og þurfti að selja hús þeirra hjóna.
LÁTINN EIGINMAÐUR
SAGÐUR HAFA LOGIÐ
Upplýsingar tryggingasala
óskýrar
^ Að mati Sigþrúðar gerði
tryggingafélagið mikið úr
Hllfa... þvíaðSkúlihefðibyijað
aftur að reykja um
fimm árum
eftir að
hann
Vissu ekki af skilmálum Skúli Garðarsson byrjaöi
aftur að reykja fimm árum eftir að hann liftryggði
sig. Ekkja hans segir tryggingasölumann ekki hafa
sagt þeim að slíkt þyrfti að tilkynna til félagsins.
ERLA HLYNSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: erla<"dv.is
vinnu í tvær vikur. Hann hafði einnig
verið á lyfjum vegna þessa. Skúli var
stórreykingamaður þar til hann fékk
kransæðastíflu og reykti allt að tvo
sígarettupakka á dag.
Þegar Skúli fyllti út umsókn fyrir
líftryggingu hjá félaginu Alþjóða líf-
tryggingafélagið hf., sem eftir eigna-
skipti tilheyrir nú Kaupþing líftrygg-
ingum, svaraði hann því neitandi
að hann hefði reykt síðastliðna tólf
mánuði, neitandi að hann tæki lyf
að staðaldri og neitandi að hann
hafði þjáðst af hjarta- og æðasjúk-
dómum, eða of háum blóðþrýstingi.
Skúli svaraði því játandi að hann
væri heilsuhraustur. „Hann taidi sig
alla tíð mjög heilbrigðan," segir Sig-
þrúður. Henni finnst mikilvægt að
tryggingasölumenn gefi sér tíma til
að skýra skilmála trygginganna út
fýrir viðskiptavinum enda sé þarna
spurning um líf, dauða og fjárhag
heillar fjölskyldu að ræða.
„Við merktum við á
eyðublaðinu í góðri trú.
Þetta var eftir okkar
bestu vitund."
fékk líftrygginguna en ekki tilkynnt
það. „Þegar við tryggðum okkur
sögðu þeir að það væri vel hægt að
fá tryggingu þó viðkomandi reykti en
oft væri iðgjaldið þá hærra. En sá sem
seldi okkur trygginguna sagði ekki
ástæðu til að merkja við reykingar því
hann reykti ekki þegar við tryggðum
okkur," segir hún og tekur fyrir að
tryggingasali hafi beint því til þeirra
að láta félagið vita ef breytingar yrðu
á högum þeirra og lífsstíl.
Iðgjöld fyrir tíu ár töpuð
Iyfirlýsingu þeirri sem Skúli skrif-
aði undir hjá tryggingafélaginu segir:
„Ég geri mér grein fýrir að ófullkomn-
ar upplýsingar um heilsufar mitt
geta valdið missi bóta-
réttar að hluta eða
að öllu leyti og
því að greidd
iðgjöld tap-
ast."
Sig-
þrúður
leitaði til
dóm-
stóla
með
málið og var Kaupþing líftrygging-
ar sýknað, bæði í héraði og aftur í
Hæstarétti í síðustu viku. Hún íhug-
ar að leita til Mannréttindadómstóls
Evrópu.
Eva Halldórsdóttir, forstöðumað-
ur vátryggingasviðs hjá Kaupþing líf-
tryggingum, vildi ekki tjá sig um mál-
ið þegar DV leitaði eftir því og sagði
það í samræmi við stefnu félagsins.
„Tryggingafélögin verða að upplýsa
fólk betur. Ég veit að ég er ekki ein.
Það hafa fleiri lent í þessu," segir
Sigþrúður Sigfúsdóttir, ekkja Skúla
Garðarssonar, sem var líftryggður
hjá Kaupþing líftryggingum hf. Skúli
lést árið 2005 og hafði þá borgað
iðgjöld af líftryggingunni í tíu ár. Eftir
að hann varð bráðkvaddur óskaði
ekkja hans eftir tryggingabótum
en var synjað á þeim grundvelli að
Skúli hefði vísvitandi gefið rangar
upplýsingar á tryggingaumsókn.
Einstæð með langveikt barn
Sigþrúði sárnar að eiginmaður
hennar heitinn sé sakaður um lygar
á þennan hátt. Þau fengu sér bæði
h'ftryggingu en hún er nú efins um
hvort rétt sé að halda áfram
að borga iðgjaldið: „Við
merktum við á
eyðublaðinu í góðri trú. Þetta var eft-
ir okkar bestu vitund."
Sigþrúður á íjögur börn með
Skúla. Þau bjuggu saman í eigin
húsnæði en eftir fráfall Skúla varð
fjárhagur hennar afar bágur. Hún
neyddist til að selja húsið og býr nú í
leighúsnæði ásamt langveiku yngsta
barni og öðru barni þeirra.
„Þegar maðurinn minn dó var ég
með fjögur böm heima," segir hún
en tvö þeirra hafa nú flutt að heim-
an. Sigþrúður og Skúli líftryggðu sig
bæði á sínum tíma og gerðu ráð fýr-
ir að tryggingaféð myndi aðstoða eft-
irlifandi makann og bömin ef hinn
félhfrá.
Spurning um líf og dauða
Stuttu fyrir töku tryggingarinn-
ar hafði Skúli fengið krans-
æðastíflu og var frá
Skúli stuttu fyrir andlátið Skúli Garöarsson
heitinn var líftryggður en ekkja hans fékk
engar bætur. Kaupþing líftryggingar hf. báru
því viö að Skúli hefði vísvitandi gefið þeim
rangar upplýsingar um heilsufarog lifsstil.
Björgólfur Guðmundsson gegn Kristjáni S. Guðmundssyni:
Segir dómara hafa klúðrað máli sínu
„Þeir eru vanhæfir vegna þess að
þeir hafa ekki í sjö ár afgreitt mín mál
frá dómnum nema með tómu klúðri,"
segir Kristján S. Guðmundsson, fýrr-
verandi skipstjóri, sem nú er fyrir
dómi. Björgólfur Guðmunds-
son og Landsbankinn hafa stefnt
Kristjáni vegna ummæla sem
hann lét falla í grein sem birtíst í
Morgunblaðinu 29. október í fyrra.
Kristján hefur farið fram á það
að allir dómarar við Hér-
aðsdóm Reykjavíkur verði
úrskurðarðir vanhæf-
ir. Hann segir ástæð-
una þá að dómstólhnn
hafi enn ekki lokið máli
sem nú er orðið sjö ára
gamalt. „Árið 2001 var
óskað eftir því að skip-
aður yrði matsmaður
til að meta skemmdir
sem höfðu verið unnar
á mínum eigum. Mats-
maðurinn klúðraði því matí, eins og
dómstóllinn viðurkenndi 11. janúar
2002. í stað þess að skipa nýjan
matsmann ákvað dómar-
inn að endurskipa mann-
inn. Hann var nú ekki betur
gáfum gæddur, þessi bless-
aði maður, en svo að hann
klúðraði þessu aftur. Eftír
þetta tvöfalda klúður
afhálfudómstóls-
varðandi
skipun matsmanns, hafa þeir ekki
fengist til að ljúka málinu. Þeir svara
ekki bréfum og neita að úrskurða
um matsþóknun. Dómstóllinn við-
urkenndi í báðum tilvikum að mats-
gerðirnar stæðust ekki lög. Á með-
an þeir leiða ekki málið til lykta eru
þeir óhæfir til að dæma í málum sem
snerta mína persónu," segir Kristján.
Hann gefur ekki mikið fyrir sjálfstæði
dómara. „Þeir eru ekki sjáhstæðari en
það að hin svokahaða stéttarvitund
er rík þeirra á meðal. Það komu
margir dómarar að þessu máh
sínum tíma og þeir klúðruðu
þessu kerfisbundið. Þeir
halda í höndina hver á
öðrum," segir Kristján
sem er hvergi bang-
inn þrátt fyrir að
verja sig sjálfur. Úr-
skurðað verður
í máhnu 13.
Birkiaska
Umboðs- og söluaðiti
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
^3
BETUSAN
Minnistöflur
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
FOSFOSER
MEMORY
Vatið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi