Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 Norðurland IV Héðinsfjarðargöng eru meira en hálfnuð. Göngin eru forsenda fyrir hagræðingu í sveitarfélaginu Fjallabyggð sem samanstendur af Ólafsfirði og Siglufirði. Þegar vegurinn um Lágheiði lokast eru 234 kílómetrar á milli bæjanna en verða aðeins fimmtán þegar göngin koma til sögunnar. Hver kílómetri í Héðinsfjarðargöngum kostar 840 milljónir. Héðinsfjarðargöng Svona blasirganga- munninn við frá Ólafsfirði. DV-mynd Sigtrycjgur Hlláskaginn KEMST A KORTIÐ „Með Héðinsfjarðargöngum verða sveitirnar í Fjallabyggð og Dal- víkurbyggð að einu atvinnusvæði. Göngin eru ein af forsendunum fyr- ir þeirri hagræðingu sem fyrirhug- uð er með sameiningu sveitarfélag- anna á Siglufirði og í Olafsfirði," segir Jón Hrói Finnsson, þróunarstjóri hjá sveitarfélaginu Fjallabyggð. Gerð ganganna hefur gengið vel að undanförnu að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa hjá Vegagerð ríkisins. I síðustu viku var sprengdur 51 metri inni í fjallinu Ölafsfjarðarmegin og aðrir 54 metrar Siglufjarðarmegin. Nú eru einungis ríflega 150 metrar eftir út til Héðins- fjarðar frá Siglufirði. Atvinnusvæði verðurtil „Það verður hægt að einfalda stjórnkerfið mjög mikið með til- komu ganganna," segir Jón Hrói. „Þetta er umræða sem þarf að taka og við reiknum með því að vera búin að komast að niðusrtöðu um flesta þætti hennar þegar göngin verða tekin í notkun." Hann segir hagræðingarmögu- leikana liggja víða. Mögulegt sé að sameina skóla, slökkvilið og sjúkra- stofnanir, ásamt því sem síðar verði mögulegt að sameina íþróttafélög og björgunarsveitir. „Auðvitað eru ekki allir sammála um hvað ber að gera, en það er alveg nauðsynlegt að fara vandlega yfir þessi mál," segir Jón. Hann bætir við að með göngum um Héðinsfjörð verði aðgengi fyrirtækja að vinnuafli á svæðinu stórbætt. Þeirra áhrifa muni að líkindum gæta alveg til Dalvíkur. Þegar er rætt um að koma á fót framhaldsskóla, enda telji Dalvíkur- og Fjallabyggð saman- lagt tæplega fimm þúsund íbúa. Inni í eyðifirði Héðinsfjarðargöng eru í raun tvenn göng. Annars vegar eru tví- breið 6,9 kílómetra löng göng frá Ól- afsfirði í Héðinsfjörð og hins vegar 3,7 kílómetra löng göng úr Héðins- firði til Siglufjarðar, einnig tvíbreið. I Héðinsfirði sjálfum, sem hingað til hefur verið afskekktur eyðifjörður, verður lagður ríflega hálfs kílómetra Framvindan Á þessari skýringarmynd frá Vegagerðinni má sjá framvindu verksins. langurvegarkafli, ásamtþvf semveg- skýli verða byggð við alla fjóra ganga- munnana. Göngin stytta leiðina milli Siglu- fjarðar og Úlafsfjarðar úr 62 kíló- metrum í fimmtán miðað við að far- ið sé um Lágheiði. Lágheiðin verður gjarnan ófær á vetrum og þá þarf að aka 234 kílómetra leið á milli bæj- anna í Fjallabyggð, um Öxnadals- heiði. Alls er búið að sprengja rúm- lega sex kílómetra leið og er verkið meira en hálfnað. Vegagerðin gerir ráð fyrir því að göngin verði tekin í notkun í desember á næsta ári. Kristján Möller samgönguráð- herra upplýsti á Alþingi nú um mán- aðarmótin að kostnaður við Héð- insfjarðargöng væri 840 milljónir á hvem Idlómetra. Göngin eru alls 10,6 kílómetra löng og verður heild- arkostnaður samkvæmt því um níu milljarðar. Tækifæri í ferðþjónustu „Göngin munu opna samgöngu- leiðir Siglfirðinga til muna," segir Jón Hrói. „Þetta færir þá nær Akureyri og með því móti verður mun styttra að komast á flugvöll." Ibúar í Fjalla- byggð gera sér einnig vonir um að með tilkomu ganganna geti skapast ný atvinnutækifæri í ferðaþjónusm. „Við reiknum með að göngin opni Tröllaskagann sem nokkurs konar hring. Hingað til hefur fólk þurft að gera sér sérstaka ferð til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, en með göngunum getur fólk ákveðið að hafa viðkomu á þessum stöðum á ferðalagi um Norðurland," segir Jón. sigtryggur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.