Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008
Norðurland tV
Embætti sýslumanns og lögreglu
Lögregia og sýslumaður eru í sama
húsi á Sauðárkrókl. Sýslumaður
áminnti Björn yfirlögregluþjón. Björn
höfðar ógildingarmál.
Gylfi Thorlacius, lögmaður Björns Mikaelssonar yfirlög-
regluþjóns á Sauðárkróki, segir áminningarbréf sýslumanns til
Björns vera með ómálefnalegasta móti. Ríkharður Másson
sýslumaður segir að sannleikurinn muni á endanum koma
upp á yfirborðið og vonar að það verði hið fyrsta. Yfirlögreglu-
SYSLUMADUR
þjónninn á ekki von á að málinu Ijúki alveg
á næstunni en kveðst vera með breitt bak.
SANNLEIKURINN
KEMURIUOS
pv 26. september 2007 Sagt var frá
óeiningu milli sýslumanns og lögreqlu í
DV f september.
„Þetta mál ber keim af eineiti,"
segir Gylfi Thorlacius, lögmaður
Björns Mikaelssonar yfirlögreglu-
þjóns á Sauðárkróki, um áminn-
ingarbréf sem sýslumaðurinn,
Ríkharður Másson, ritaði Birni fyr-
ir hálfu ári.
Sýslumaðurinn ávítir Björn
meðal annars fyrir að tjá sig óvar-
lega um hraðakstur í sjónvarps-
viðtali ásamt því sem rannsókn
tveggja mála hafi dregist fram
úr hófl og því að umferðarátaki í
Skagafirði hafi ekki verið framfylgt
nægilega vel. Hvorki Björn né Rík-
harður sýslumaður hafa viljað tjá
sig um málið opinberlega, en ljóst
er að stirðleikar hafa verið í sam-
skiptum milli embættanna um
langt skeið.
Sannleikurinn kemur í Ijós
Ríkharður Másson bendir á út-
drátt úr áminningarbréfinu þeg-
ar hann er inntur eftir stöðu máls-
ins. Hann segir að einhvern tímann
muni sannleikurinn koma ljós. Það
sé áríðandi að málið verði afgreitt
hratt og örugglega, þannig að það
megi tilheyra fortíðinni.
Gylfi Thorlacius, sem um ára-
bil hefur starfað sem lögmaður fyr-
ir Landssamband lögreglumanna,
segir áminninguna vera með ómál-
efnalegasta móti. Áminningar til
opinberra starfsmanna eru þeirr-
ar náttúru gæddar að þeim er ekki
hægt að áfrýja til næsta stjórnsýslu-
stigs. „Pess vegna verðum við að
höfða ógildingarmál. Það er verið að
undirbúa stefnuna þessa dagana,"
segir Gylfi. Fundur var fýrirhugaður
í dómsmálaráðuneytinu vegna máls-
ins á mánudag. Þar áttu að hittast
skrifstofustjóri í ráðuneytinu ásamt
Gylfa og fulltrúa ffá Landssambandi
lögreglumanna. Fundinum þurfti að
fresta vegna veikinda.
Samskiptin eru stirð
Þvíhefurveriðhaldiðframífféttum
upp á síðkastið að slæmur starfsandi
sé í liði lögreglunnar á Sauðárkróki
og það sé meðal annars ástæðan
fyrir því að embættinu haldist ekki á
starfskröftum. Þessu samsinnir Björn
Mikaelsson ekki. Embættið hafi átt
við starfsmannavanda að stríða, en
ræturnar séu aðrar.
DV sagði frá því í september að
flótti væri brostinn á í lögregluliðinu
vegna stirðra samskipta við sýslu-
mannsfulltrúa á Sauðárkróki. Gunn-
ar Bragi Sveinsson, varaforseti sveit-
arstjórnar, lýsti áhyggjum sínum af
stöðu mála og Byggðaráð Skaga-
fjarðar ályktaði að stöðugleika yrði
að tryggja í rekstri embættisins. „Hér
hafa gengið gróusögur um flótta
úr lögregluliðinu. Ég get ekki byggt
stjórnsýsluna á slúðri. Hins vegar
kemur það upp á flestum vinnustöð-
um að mönnum verði sundurorða,"
sagði Ríkharður Másson þá.
í kaffi á stöðinni
DV heimsótti höfuðstöðvar lög-
reglunnar á Sauðárkróki og fann þar
fyrir yfirlögregluþjóninn, lögreglu-
þjón á vakt ásamt lögregluþjónum
á frívakt sem leið áttu hjá eða þurftu
að reka erindi. Lögreglumenn virtust
hinir hressustu þrátt fyrir áberandi
umfjöllun um hremmingar á stöð-
inni.
í fréttum síðasta hausts af erfið-
leikum lögregiunnar á Sauðarkróki
kom fram að bæjarbúar hefðu átt
þess kost í gegnum tíðina að líta við
á lögreglustöðinni, þiggja kaffibolla
og ræða málin. Fulltrúi sýslumanns
hafi þó ekki verið hrifinn af þessu
fyrirkomulagi og lagt bann við
þessum kaffitímum.
„Svona smávöxnum vinnustað
verður aldrei stjórnað eins og um
herlið sé að ræða, þar sem tilkynn-
ingar eru hengdar á vegg og skipanir
öskraðar á liðið," segir Gylfi Thorlac-
ius.
sigtryggur@dv.is
Skíðasvæðið íTindaöxl hefur aðeins verið opið í tuttugu daga:
Ótrúlega snjóléttur vetur
Skíðasvæði Ólafsfirðinga í Tindaöxl hefur aðeins verið
opið í tuttugu daga þennan veturinn. Óli Hjálmar Ingóifs-
son, umsjónarmaður á svæðinu, segir veturinn hafa ver-
ið mjög óvenjulegan og snjóléttan. „Þetta er búið að vera
þannig að við höfum ekki ennþá getað opnað efri hluta
brekkunnar, þannig að núna er aðeins helmingurinn af
svæðinu opinn," segir Óli.
Hann segir að jafrivel þótt endrum og sinnum hafi snjó-
að kröftuglega þá hafi komið hlýindakaflar inn á milli sem
hafi gjöreyðilagt skíðafærið. „Hér komu dagar þar sem
hitinn fór upp í tólf gráður og snj óinn tók nánast allan upp
á tveimur dögum," segir hann. Þetta sé afar óvenjulegt á
Ólafsfirði sem að jafnaði sé meðal snjóþyngstu svæða á
islandi. Ekki séu nema örfá ár síðan reglulega þurfti að
moka snjóinn undan lyftunum til þess að hægt væri að
opna skíðasvæðið.
„Við höfum loksins náð að útbúa góða göngubraut héma,
en það hefur í raun verið alveg sama streðið með hana.
Við þurfúm sennilega bara að fara að koma okkur upp
snjóbyssum og fara að framleiða snjó. Það er alveg sam-
bærilegt við það að fá gervigras fyrir fótboltamenn." Nú
hefur þó snjóað kröftuglega nokkra daga í röð og ástandið
horfir til betri vegar að mati Óla.
I Tindaöxlinni er 650 metra löng diskalyfta og einn
Óli Ingólfsson Óli segir veturinn óvenjulega snjóléttan.
Erfitt hafi reynst að halda brekkum og brautum opnum.
DV-myndir Sigtryggur
troðari. Göngubrautir eru lagðar víðs vegar þar sem færi
gefst og svokölluð trimmbraut er jafnan lögð norðan við
Ólafsfjarðarvatn í gre'nnd við byggðina. Brautirnar em
ýmist troðnar í bítið eða strax eftir hádegið. Skíðabretta-
unnendur hafa úr stórum ótroðnum slóðum að velja.
Snjóleysi í efri hluta brekkunnar í Tindaöxl spillti þó ekki
ánægjunni hjá krökkunum sem skelltu sér í íjallið eftir
skóla sfðastliðinn fÖStudag. sigtryggur@dv.is
Gaman á skiðum Þeir
skemmtu sér prýðilega á A
skíðunum krakkarnir á
Ólafsfirði.