Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008
Sport PV
ÍÞRÓTTAMOLAR
GUÐMUNDUR TEKUR VIÐ BANDINU
Guömundur Steinarsson hefur aö nýju
tekið við fyrirliðabandi knattspyrnuliðs
Keflavfkur. Jónas Guðni Saevarsson, sem
að lokinni síðustu
leiktfð gekk í raðir
KR, var fyrirliði á
sfðustu leiktfð.
ÁðurenJónas
gerðist fyrirliði var
Guðmundur
fyrirliði Keflvíkinga
og er nú aftur
kominn með
bandið góða.
Varafyrirliði verður Guðjón Árni
Antoníusson og þriðji fýrirliði verður
Ómar Jóhannsson markvörður.
BIKARMEISTARI f FJÓRÐA SINN f RÖÐ
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir vann um
helgina sinn fjórða bikarmeistaratitil í
röð í unglingaflokki kvenna. Sfðustu
þrjú ár hefur Sigrún orðið bikarmeistari
með Haukum f
unglingaflokki og
sá fjórði kom með
KRum helgina
þegarVesturbæj-
arstúlkur lögðu
Grindavík í miklum
spennuleik. Sigrún
gerði 18 stig gegn
Grindavík, tók14
fráköst, stal 5
boltum og varði 4 skot. Sigrún kann vel
við sig f bikarúrlsitaleikjum því í fyrra
gerði hún 21 stig og tók 19 fráköst fyrir
Hauka ásamt því að gefa 5 stoðsending-
ar þegar hún var í Haukaliðinu sem bar
sigurorð af Keflavík. Sigrún er orðin
lykilamaður f liði KR í lceland Express-
deild kvenna en tveir toppleikir fara
fram f kvöld þegar KR fær Keflavík í
heimsókn og Haukastúlkur taka á móti
Grindavík.
11 VERÐLAUNTIL fSLANDS
fslenskir keppendurá sænska
katamótinu sem haldið var um helgina
fengu samtals 11 verðlaun. Þrjú gull,
fimm silfurogþrjú
brons. Islendingar
áttu 22 keppendur
á sænska mótinu
Kata Pokalen sem
fram fór í
Stokkhólmi.
Hópkataliðin voru
f sérflokki en
Breiðablik,
Þórshamarog
Karatefélag Akraness settu saman þrjú
hópkatalið sem öll unnu til verðlauna í
sínum flokkum.
Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í
leikjum sfðustu umferðar í Coca Cola
deildinni.
Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla
þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik
umferðarinnar eru sýnd frá öllum
mögulegum sjónarhornum. Viðbrögð
þjálfara, stuðningsmanna og sérfræð-
inga.
Bein útsending frá leik Liverpool og
West Ham í ensku úrvalsdeildinni.
Þáttur sem er ekkert minna en bylting í
umfjöllun um enska boltann á Islandi.
Tvíeykið, Heimir Karlsson og Guðni
Bergsson, stendur vaktina ásamt vel
völdum sparkspekingum, og saman
skoða þeir allt sem tengist leikjum
dagsins á skemmtilegan og nákvæman
hátt. Islensk dagskrárgerð eins og hún
gerist best.
Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla
þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik
umferðarinnar eru sýnd frá öllum
mögulegum sjónarhornum.Viöbrögð
þjálfara, stuðningsmanna og sérfræð-
inga.
Útsending frá leik Liverpool og West
Ham í ensku úrvalsdeildinni.
SÍÐASTISTÓRITITILL FH
■fffOfjui
BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON bladamadur skrifar: benniíAclv.is
„Ég man eftir þessum leik, já já.
Þetta var á móti KA og þetta var að
mig minnir einn af síðustu leikjum
mínum með FH áður en ég fór í Aft-
ureldingu," sagði Bergsveinn Berg-
sveinsson, fyrrum markvörður FH,
um hvort bikarúrslitaleikurinn 1994
væri enn ofarlega í minningunni.
Bergsveinn varði 16 skot í leiknum
og skoraði eitt mark.
Leikurinn var eign FH frá upphafi
til enda fyrir framan troðfulla Laug-
ardalshöll. KA var að leika sinn fyrsta
bikarúrslitaleikog fóru á taugum. FH
liðið var yfir 14-7 í hálfleik og vann
öruggan sjö marka sigur 30-23.
„Eg var farinn af velli þegar 15
mínútur voru eftir. Við gát-
um skiptum
GAMLA FRÉTTIN
Gamla fréttin að þessu sinni birtist á þessum degi, 5.
mars árið 1994. Þá hafði FH hampað bikarmeistaratitl-
inum en þetta var síðasti stóri titill félagsins. Berg-
sveinn Bergsveinsson, markvörður FH á þessum tíma,
man vel eftir leiknum enda varði hann eins og ber-
serkur og skoraði auk þess eitt mark.
9
einn
iim
Ht btfcsrinc>!5tí»ri
, . 15, skiplt
6-27
Níu ný
íslamis-
mef litu
dagsins
liós lijá
fotluðuin
gegnMan. Ltd *"*•■■*• .tonDsæti n-ríðii-
S*V$
SSlira?
. .
Man vel eftir leiknum '94
Bergsveinn var í marki FH
sem varð bikarmeistari 1994.
markmann því við vorum
búnir að klára leikinn.
Þeir voru í KA lið-
inu þarna, Al-
freð Gísla-
son,
Valdi-
mar
Grímsson, Sigmar Þröstur Óskars-
son og fleiri góðir. Ég skoraði man
ég eitt mark í þessum leik. Þrumaði
boltanum yfir allan völlinn," sagði
Bergsveinn léttur.
Vorum með svakalega gott lið
á þessum tíma
f FH liðinu voru margar frægar
kempur. Kristján Arason, Atli Hilm-
arsson, Hans'Guðmundsson, Gunn-
ar Beinteinsson, Guðjón Árnason og
svo mætti lengi telja. Þetta var síðasti
titill sem FH vann í handboltanum
en eftir tímabilið fór mikið af mann-
skapnum annað. „Það hefur enginn
titill komið síðan þessi kom í hús,
það er orðið allt of langt síðan.
Við vorum með svakalega gott
lið á þessum tíma. Við urðum
þrefaldir meistarar 1992-1993
en rétt misstum af titlinum
1993-1994 þegar við töpuð-
um fyrir Val í úrslitakeppn-
inni en urðum bikarmeistarar. Eftir
þennan titil þá splundraðist mann-
skapurinn sem var búinn að vinna
allt sem hægt var að vinna. Kristj-
án fór til Þýskalands, Hans fór í HK,
Atli fór í HK og hópurinn splittaðist
um allar trissur. Ég fór í Mosfellsbæ-
inn og spilaði með Aftureldingu eftir
þetta tímabil."
Bergsveinn er einn af þeim sem er
á bak við tjöldinn hjá ungu og bráð-
efnilegu liði FH sem er nálægt því að
tryggja aftur sæti sitt í deild þeirra
bestu. „Ég er með alla markmanns-
þjálfun í FH. Það er mjög gott og
mjög gaman að vera að kenna ung-
viðinu. Þar er maður að leiðbeina
þessum krökkum það sem maður
kann best. Ég er líka með meistara-
flokkinn en það eru margir þar sem
eru enn í unglingaflokki. Það er frá-
bær efniviður til í FH núna og það
verður að halda rétt á spilunum sem
er gert í Hafnarfirði.
Egill Jónasson, miðherjinn öflugi hjá Njarðvík, fór í uppskurð í gær vegna hnémeiðsla:
Egill frá í mánuð vegna aðgerðar á hné
„Ég var í aðgerð að láta laga brjósk-
skemmdir í hnénu. Það var allt komið
í tætlur þarna," sagði miðherjinn öfl-
ugi Egill jónasson hjá Njarðvík þeg-
ar DV náði í skottið á honum. Egill lá
í makindum og hafði það huggulegt
fyrir ffarnan sjónvarpið.
„Ég verð frá í einhverjar vikur en
þetta á að verða gott eftir aðgerðina.
Læknirinn vildi ekki bíða með þetta
og ég var að spila inn á milli en þetta
var búið að angra mig í einhvern
mánuð. Maður beit bara á jaxlinn, tók
nokkrar verkjatöflur og reyndi að þola
sársaukann."
Egill mun því missa af næsta leik
Njarðvíkur gegn KR á fimmtudag
sem verður sýndur beint á Sýn. „Það
verður bara að koma í ljós hversu
lengi ég verð frá. Þetta er stærsti
leikurinn okkar núna og verður
sterkt að koma til baka eftir tapið í
bikarnum." Njarðvíkingar hafa verið
óstöðugir í vetur í Iceland Express-
deildinni. Unnið nokkra stóra og
mikilvæga leiki en dottið svo niður á
plan meðalmennskunnar. „Þetta er
búið að vera mjög sveiflukennt hjá
okkur. Það er svona eins og okkur
vanti stöðugleikann. Maður veit ekki
hvað er að. Við erum búnir að ræða
málin okkar á milli en ekki fundið
svarið. Það eru fleiri lið búin að vera
eins og við, til dæmis Grindavík sem
hefur verið upp og niður og finnur
ekki alveg stöðugleikann sem þarf,"
sagði Egill sem hefur skorað 7,5 stig að
meðaltali í vetur fyrir Njarðvík. Ljóst
er að með brotthvarfi Egils mun enn
meira mæða á landsliðsmiðheijanum
Friðriki Stefánssyni íNjarðvíkurliðinu.
Njarðvíkingar eru úr leik í Lýs-
ingarbikarkeppninni og liðið er í 5.
sæti Iceland Express-deildarinnar.
Sá stóri úr leik Egill
Jónasson verður frá
keppni næsta mánuðinn,