Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Síða 51
DV Umræöa MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008 51 MYNDIN Himinn og jörð Regnboginn rammaði inn stefnumót himins og jarðar á Kili. Einstaka sólargeisli laumaði sér gegnum skýin áður en snjórinn umlékallt. DV-mynd Ásgeir 1 Héraðsdómur Reykjavikur I fær piúsinn fyrir timamóta- dóm þar sem niu manns voru sakfelldir fyrir ólöglegt niðurhal með forritinu DC++. SPURNINGIN FER ÞETTA EKKI FYRIR BRJÓSTIÐ Á NEINUM? „Brjóstvitið segir mér að svo sé ekki' segir Hrund Gunnsteinsdóttir, talskona Fiðrildaviku UNIFEM á (slandi. Uppboð á hekluðum brjóstum ( Saltfélaginu á föstudag er hluti af fjáröflun UNIFEM (Fiðrildavikunni. Börnin ífyrsta sæti I gær samþykkti borgarstjórn stefnumörkun meirihluta borgar- stjórnar í formi þriggja ára áætlun- ar. Áætlunin er leiðarvísir um for- gangsröðun næstu ára og hefur þann tilgang að koma stærri verkefnum í nauðsynlegan áætlunarfarveg. Þriggja ára áætlun setur okkur stjórn- málamönnum ramma sem að krefst þess að við forgangsröðum öllum okkar draumum um betra umhverfi fyrir Reykvíkinga. Forgangsröðunin nú er í þágu yngstu borgarbúanna. Börnin eru sett í fyrsta sæti. Undanfarin 3 ár hefur mildl þensla á vinnumarkaði haft neikvæð áhrif á samkeppnishæfni Reykjavík- urborgar í samkeppni um starfsfólk. Starfsmannavelta hefur sérstaklega hrjáð leikskólana og haft umtals- verð áhrif á þjónustu við börn og umhverfi starfsfólks. Starfsfólk leik- skóla hefur tekist hetjulega á við við- varandi vanda og á mikið hrós skil- ið fyrir mikla eljusemi og jákvæðni. Foreldrar hafa fimdið fyrir vandan- um, inntaka barna inn á leikskóla og í önnur úrræði hefur tafist og sumar fjölskyldur hafa þurft að takast á við skerta þjónustu. Afleiðingar þessa er hækkandi meðalaldur þeirra barna sem hafa aðgang að þjónustu. Borgarstjórn ædar að binda enda á þessa bið með þrískiptri áætlun. í fyrsta lagi verður meginþjónusta borgarinnarviðbörnin-borgarreknu leikskólarnir - styrktir með því að fjölga rýmum með stækkun skóla í eldri hverfum og með því að bæta við deildum. Þetta er í takt við kröfúr um aukinn dvalartíma barna og fjölgun yngri barna í / öðru lagi er gert ráð fyrir því að taka í notkun glæsilega nýja 5 deilda leikskóla í nýbyggingarhverfum ^ borgarinnar. leikskólum borgarinnar. f öðru lagi er gert ráð fyrir því að taka í notkun glæsilega nýja 5 deilda leikskóla í nýbyggingarhverfum borgarinnar. Vel heppnuð hugmyndasamkeppni um hönnun leikskóla skilaði borginni þremur glæsilegum teikningum af leikskólum framtíðarinnar þar sem tekið var mið af þörfum barna og starfsmanna á 21. öld. Leikskólar munu rísa næstu ár við Árvað í Norðlingaholti, í Úlfarsárdal og á Vatnsmýrarsvæði. f þriðja lagi munu áætlanir leikskólasviðs gera ráð fyrir að auka val foreldra á þjónustu fyrir allra yngstu bömin þannig að í boði sé fjölbreytt og traust þjónusta við foreldra með börn frá eins árs aldri. f þessu felst að styrkja annars vegar eftirsótta þjónustu sem nú er í boði en af skomum skammti, líkt dagforeldraþjónustu og einkarekna leikskóla fyrir yngstu börnin en bjóða um leið upp á fleiri úrræði til að fjölga valmöguleikum á þjónustu fyrir foreldra sem byggjast á ólíkum þörfum barna. Gert er ráð fyrir verulegum fjármunum í þessa þjónustu á næstu þremur árum en teknar hafa verið frá stighækkandi fjárhæðir á tímabilinu til viðbótar við stofnkostnað, allt að 400 milljónum króna til að mæta auknum rekstrarútgjöldum vegna þessa. Það er ekki aðeins lögbundin skylda borgarinnar að sinna leik- skólamálum á metnaðarfullan og faglegan máta heldur einnig siðferð- isleg skylda okkar við samfélagið. Foreldrar em mikilvægur mannauð- ur á vinnumarkaði og Reykjavíkur- borg verður að veita íbúum sínum val um þjónustu svo að foreldrar geti látið drauma sína rætast - hverj- ir sem þeir em. Það á að vera eftir- sóknarvert fyrir fjölskyldur að búa í Reykjavík. Til þess að svo sé þarf þjónusta við yngstu börnin að vera ffamúrskarandi. Sandkassinn VERÐLAUNAVEITINGAR hafa alltaf verið, em og munu alltaf vera umdeildar. Bæði afhendingarnar per se svo ekki sé talað um hver eigi það skilið að hljóta hin og þessi verðlaun. Dagurinn í dag er afar ánægjulegur fyrir DV og starfsfólk þess þar sem Menning- arverðlaun blaðsins verða end- urvakin í dag þegar þau verða af- hent í tuttugasta og níunda sinn á Hótel Borg. Afhendingin féll niður í fyrsta sinn í fyrra í kjölfar eigendaskipta á DV skömmu fyrir þarsíðustu áramót. Það er með stolti og gleði sem DV vekur verðlaunin úr þessum tveggja ára dvala, og óneitanlega við hæfi að blað sem er umdeilt standi fyrir umdeildum verðlaunum. ÞÓMÁSEGJA að önnur verðlaun innan menningarheimsins standi haflari fæti en þau sem nú rísa aftur á fætur. Margir hafa til að mynda fundið að því að Edduverðlaunin skuli afhent árlega eins og venjan er þar sem allt of fáir séu þá um hituna í sjónvarps- og kvikmyndageiranum. íslensku bókmenntaverðlaunin hafa svo átt undir högg að sækja undanfarin ár - sumir kveða jafnvel svo fast að orði að þau séu með öllu marklaus - enda undarlegt oft og tíðum hvaða bækur fá verðlaunin og hvaða bækur fá ekki einu sinni tilnefningu þrátt fyrir að flestir virðist sammála um að meistarastykki séu þar á ferð. Nýjasta dæmið er Himnaríki og helvíti sem ekki hlaut náð fyrir augum dómnefndarinnar þrátt fyrir að gagnrýnendur hafi hlaðið hana lofi. Sama var uppi á teningnum með Samkvæmisleiki fyrir örfáum árum og Engla alheimsins fyrir fjórtán árum. Þessar þijár bækur eiga það hins vegar allar sameiginlegt að nefndarfólk Menningarverðlauna DV mat þau að verðleikum. EN MENNINGARVERÐLAUN blaðsins eru ekki einungis afhent í bókmenntum heldur sex öðrum listgreinum einnig - byggingarlist, hönnun, kvikmyndalist, leiklist, myndlist og tónlist - þar sem listamenn sem eru hver öðrum fremri eru tilkallaðir. Og heiðursverðlaunin eru að sjálfsögðu á sínum stað. Það verður því mikið um dýrðir hvað er að frétta?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.