Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2008, Qupperneq 62
62 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008
Siðasten ekkisíst DV
BÓKSTAFLega
<0»
m
.T
jír
i
„Þetta var bara svona Ro-
bin Hood-dæmi."
■ Rannveig Rafnsdóttir í DV en
Rannveig hefur veriö ákærö fyrir að
hafa svikið 75 milljónir út úr
Tryggingastofnun.
„Notendur
DC++ voru
hugsanlega
ginntir af
honum, en
voru að fremja
önnur brot á meðan."
■ Snæbjörn Steingrímsson hjá
Smáís í 24 stundum, um meinta
tálbeitu sem þeir Smáfsmenn
notuðu í baráttu sinni gegn
DC++.
„Þetta er í fjórða skipti
sem ég mæti hér fyrir
dómara án þess að
nokkuð gerist.
Þetta er
skrípaleikur,"
■ Kristján S. Guðmunds-
son við blaðamann DV eftir
að dómari í Héraðs-
dómi Reykjavíkur
hafði slitið dómi í
vikunni. Kristján ver
sig sjálfur í
meiðyrðamáli sem
Björgólfur
Guðmundsson og
Landsbankinn
hafa höfðað gegn
honum.
„Hún vill ekki vera vinur
minn lengur."
■ Atli Már Gylfason,
blaðamaðurSéð
og heyrt, í
Fréttablaðinu. En
Atli ersakaður um
að hafa stolið
myndum af myspace-
síðu Ingu Birnu Dungal sem hefur
síðan þá strokað Atla af vinalista
sínum.
„He used to have silky
skills, now he
walks like
Heather
Mills."
■ Stuðningsmenn
Aston Villa sungu
illa um Eduardo.
„Þegar Balti drepst, get ég
svo komið heim
og tekið við."
■ Ándri Freyr
Viðarsson í FBL. En
Andri stefnir á að
fara í kvikmynda-
gerðarnám í
Danmörku í haust.
„Ég sé Sigga bara sem
lítinn hræddan strák í
leðurbuxum."
■ Bubbi Morthens, f DV um Sigurð
Guðlaugsson sem
fékk að fjúka úr
Bandinu hans
Bubba síðastliðinn
f föstudag.
„Þetta
hljómar
kannski ótrúlegt,
en er alveg satt."
■ Á heimasíðu bathmate.
is, þar sem karlmönnum
er lofað að minnsta kosti
6 sentímetra viðbót við
manndóminn noti þeir
reðurstækkarann sem er f
boði.
REYNDIAÐHJÁLPA
RÁÐHERRANUM
Níels Ársælsson skipstjóri segir
fj ármálaráðherrann Árna Mathiesen
skulda sér hálfa milljón í ferða- og
launakostnað eftir að hann bar vitni fyrir
hann árið 2002. Sjálfur segir Níels að Árni
Grétar Finnsson, þáverandi lögmaður
ráðherrans, hafi gert samkomulag
um kostnaðinn. Enn bólar ekkert á
peningunum, tæplega hálfri milljón
króna, að sögn Níelsar.
Hver er maðurinn?
„Níels Adolf Ársælsson, Tálknfirð-
ingur og Arnfirðingur."
Hvað drífur þig áfram?
„Þrjóskan mín."
Hvar ólst þú upp?
„Á Tálknafirði. Ég er að verða fjöru-
tíu og níu ára í haust og búinn að búa
hér alla mína ævi."
Hefur þú búið erlendis?
„Nei, en ég er á sjó svo ég hef starf-
að erlendis en bara búið um borð í
skipinu."
Eftirminnilegasta bók sem þú
hefur lesið?
„Heimsljós eftir Halldór Kiljan Lax-
ness. Þegar maður var búinn að lesa
þá bók var maður alveg viss um það
að það þyrfti aldrei að skrifa aðra bók
nokkurn tímann því þar er bara allt
sagt sem segja þarf um lífið og til-
veruna."
Eftirminnilegustu tónleikar?
„Ég hef nú ekki farið á marga tónleika
um ævina en ég held að það hafi ver-
ið tónleikar með Andreu Gylfa, hún
er frábærasta söngkona landsins.
Hún kom og spilaði fyrir mig og söng
þegar ég varð fertugur. Ég einfaldlega
pantaði hana og þetta voru nánast
eins og einkatónleikar. Hún mætti
bara hingað með bandið með sér
og tók lagið í afmælinu mínu."
Uppáhaldsmatur?
„Það er fiskur. I rauninni er allt sem
kemur að þorskinum í miklu uppá-
haldi. Hvort sem það er saltfiskur,
gellar eða kinnar. Og hertur vest-
firskur steinbítur frá Tryggva bróð-
ur sem er með harðfiskverkun."
Við hvað starfarðu í dag?
„Ég er skipstjóri á Bjarma BA.“
Hvar varst þú staddur þegar þú
þurftir að koma til Reykjavíkur
að bera vitni?
„Ég var úti á sjó og kom í land sér-
staklega til að bera vitni fyrir sjávar-
útvegsráðherra. Ég keyrði bara suður
og til baka aftur."
Kom aldrei neitt annað til greina
en að bera vitni fyrir hann?
„Nei, ég kærði mig nú lítið um
það til að byrja með en fann svo
til með honum og ákvað að gerast
miskunnarsami Samverjinn og reyna
að koma ráðherranum til hjálpar."
Ef Árni borgar þér á endanum,
heldurðu að þú myndir einhvern
tímann aftur bera vitni fyrir
hann?
„Já, já, alveg örugglega. Mér er ekki
illa við hann. Hann hefur bara verið
sjálfum sér verstur, karlanginn."
Gefst þú aldrei upp í þessu máli?
„Jú, hann má alveg eiga þetta ef
hann sér sér ekki fært efnahagslega
að borga mér þetta þá má hann bara
eiga peninginn."
Hvað er fram undan?
„Nú sitja ég og fleiri sem gerðir hafa
verið að leiguþrælum mannréttinda-
nefndar LIU og teljum niður. Við
bíðum þar til sá frestur rennur út
sem mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna gaf íslenskum stjórnvöld-
um til að breyta fiskveiðistjórnunar-
kerfinu þannig að það samrýmdist
mannréttindasáttmála Sameinuðu
þjóðanna og ákvæði íslensku stjóm-
arskráarinnar til jafnræðisreglna."
SV\DKOK\
■ Það er aldrei lognmolla á
blogginu hans Egils Helga-
sonar. Hann varpar bomb-
um hægri
vinstri og
það eru
auðvit-
að svona
menn sem
gera hvers-
dag okkar
hinna örlít-
ið skemmti-
legri. Nú er Agli heitt í hamsi
vegna niðurstöðu könnunar
sem birtist í Fréttablaðinu í
gær um hver sé besti núlifandi
rithöfundur fslands. Niður-
staða könnunarinnar leiddi í
ljós að Arnaldur Indriðason
væri höfundurinn sem allir
elska. Þá spyr Egill: „Er Arnald-
ur betri höfundur en til dæmis
Hallgrímur Helgason af þvi
fólkið vill hann? " Egill er bara
ekki þessi almúgamaður.
■ Hljómsveitin I Adapt sem
lagði upp laupana í byrjun
árs auglýsir nú á myspace-inu
sínu eftir fólki með I Adapt-
tengd húðflúr. Að sögn með-
lima hafa
þeir heyrt
eitthvað af
fólki sem
hefur látið
húðflúra á
sig ýmist
textabrot úr
lögum sveit-
arinnar eða
fengið sér húðflúr eftir að hafa
orðið fyrir innblæstri frá tón-
list sveitarinnar. Nú biðja þeir
þá aðila sem hafa löngun til að
deila húðflúrum sínum með
sveitinni að senda myndir á
netfang sveitarinnar, i_adapt_
hc@yahoo.com.
■ Meira en 45 þúsund
íslendingar hafa lagt leið sína
á Brúðgumann, kvikmynd
Baltasars Kormáks. Eins og
flestir vita er Flatey á Breiðafirði
í stóru hlutverki í myndinni.
En sagt er að stemningin í
eyjunni sé engu lík. Samkvæmt
heimildum DV hefur sala í
bátinn Baldur snaraukist og
ætlar greinilgga fjöldi
fólks að heirftsækja
eyjuna í suníár. Vilja
þá margir meina að
netbókanir hafi
snarauk-
ist og þá
sérstak-
lega þær
semeru
um og
eftir
sýningar
Góðir dómar á imdb.com og rottentomatoes.com:
Almenningur lofar Mýrina
Frá því sýningar hófust í
Bandaríkjunum á mynd Baltasars
Kormáks, Mýrinni eða Jar City,
hefur hún hlotið misjafna dóma
gagnrýnenda. Sumir keppast við að
lofa myndina meðan einhverjir eru
ekki alveg eins hrifnir. A.OScotter einn
gagnrýnenda á kvikmyndavefnum
rottentomatoes.com. Hann segir að
Baltasar dragi upp líflega og kröftuga
mynd af íslandi en bætir við að
ferðamálafrömuðir hérlendis kunni
að vera á annarri skoðun.
Almenningur þar vestra virðist
kunna að meta þessa mynd Baltasars
því á rottentomatoes.com fær hún
hvorki meira né minna en 86 af
hundrað mögulegum í einkunn. Á
kvikmyndavefnum Internet Movie
Database fær myndin einnig góða
dóma almennings eða 7,7 af 10
mögulegum þar sem 600 manns hafa
greitt henni atkvæði.
Á báðum þessum vefjum gefst
almenningi kostur á að segja sína
skoðun á myndinni.
Á imdb.com sparar kanadískur
aðdáandi myndarinnar ekki stóru
orðin, en af orðum hans má ráða að
hann sé einn af starfsmönnum TIFF,
sem er Alþjóðleg kvikmyndahátíð sem
haldineríToronto.„Þettavarmyndsem
við ákváðum á síðustu stundu að sýna
á fyrsta degi kvikmyndahátíðarinnar.
Við sáum ekki eftir því þar sem Jar
City reyndist vera ein besta myndin
sem sýnd var á hátíðinni. Það er sama
hvort litið er til kvikmyndatökunnar,
staðsetningarinnar, sviðsmyndarinn-
ar, eða leikaranna, þetta var óaðfinn-
anlegt. Meira að segja textinn var
framúrskarandi. Ég er ekki hissa á
því að íslendingar hafi ákveðið að
Mýrin yrði framlag þjóðarinnar tíl
óskarsverðlauna. Ég ætla ekki að
láta það duga að horfa á þessa mynd
aftur. Ég er búinn að panta allar
þýddar bækur eftir Amald Indriðason
sem ég get mögulega fundið. Ég get
ekki beðið eftír því að lesa meira um
ævintýri Erlendar," segir þessi ónefndi
aðdáandi.