Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2008, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 3. APRlL 2008
Umræða DV
ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaöiö-Vísir Otgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRi: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson og ReynirTraustason
FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins á stafrænu
formi og (gagnabönkum án endurgjalds.
öll viötöl blaösins eru hljóörituö.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40.
SAIVDKORIV
■ Ohf-un Ríkisútvarpsins þýðir
ekki bara hærri laun og launa-
leynd fyrir lykilstarfsmenn. Hún
virðist líka
þýða að
erfiðara
verður að fá
margvísleg-
ar upplýs-
ingar um
starfsemi
fýrirtækis-
ins. Þegar
Ríkisútvarpið var ríldsstofnun
birtust fundargerðir útvarpsráðs
alltaf á netinu. Nú hefur útvarpið
fengið stjórn í stað útvarpsráðs
en þá ber svo við að fundargerðir
eru ekki birtar. Ómar Bene-
diktsson segir þó hægt að fá
svör við spurningum á aðalfundi
félagsins sem haldinn verður á
næstunni.
■ Nafnleyndin á sér margar
myndir. Þannig fjallaði Frétta-
blaðið um það í gær að stúlka
Bsem hefði
kært Guð-
mund Jóns-
son í Byrg-
inu hefði
nú kvartað
til umboðs-
manns
Alþingis
undan því
sem henni fannst einelti af hálfu
forstöðumanns hjá Félagsbú-
stöðum. Brá svo við að blað-
ið nafngreindi Birgi Ottósson
forstöðumann og Guðmund en
ekki konuna ungu, og það þó
ekki færi á milli mála að þar væri
um Ólöfu Ósk Erlendsdóttur
að ræða.
■ Lokaifestur til að leggja ffarn
ný frumvörp á Alþingi til af-
greiðslu þetta árið rann út í fyrra-
dag. Þá skiluðu ráðherrar inn
allnokkrum
frumvörp-
um. Þó er
vitað af
nokkrum
frumvörpum
sem stend-
ur til að af-
greiða áður
en þing-
menn fara í frí ff á þingstörfum í
lok maí sem ekki hafa verið lögð
fram, til að mynda ffumvarp um
bætur til Breiðavíkurstráka. Því
má búast við að Sturla Böðvars-
son, forseti Alþingis, og kollegar
hans eigi eftir að fá mörg frum-
vörp upp í hendumar enn.
■ Einhvem tíma var sagt að það
væri ekki nóg að breyta rétt í
stjórnmálum heldur yrðu menn
líka að sjást breyta rétt. Þessu
virðast Geir
H. Haarde
°g Ingibjörg
Sólrún
Gísladóttir
alveg hafa
gleymtþegar
þau ákváðu
að leigja
einkaþotu
vegna Natófundarins sem þau
fóm á í gær. Margir hefja upp
raust sína og fordæma slæma
fyrirmynd ráðherranna. Jónas
Kristjánsson er einn þeirra:
„Einkaþota ráðherra er eins fár-
ánleg í kreppunni og að spUa á
fiðlu þegar Róm brennur." bþg
Seint í rassinn gripið
LEIÐARI
BRYNJÓLFUR ÞÓR GUÐMUNDSSON FRÉTTASTJÓRI
Vid skylclutii l>ú cililrei nijplifa tíu prósenta uerðbólgu edci meira cí ný?
Það að vera íslendingur er dálítið eins og að vera fastur
í rússíbana. Við erum ýmist á uppleið eða niðurleið en
sárasjaldan á beinni braut. En þar lýkur samlíkingunni.
Meðan rússíbanareiðin er spennandi og skemmtileg
fyrir marga er sú óvissa sem íslendingar mega búa við í efna-
hagsmálum erfið og íþyngjandi.
Verðbólgan er á uppleið, að hluta vegna utanaðkomandi að-
stæðna, en við skulum ekki vanmeta það sem hefur farið úr-
skeiðis hér. Nú eru liðin fjögur ár síðan verðbólgan var síðast í
samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Stefnan er sú
að verðbólgan sé 2,5 prósent en það hefur aldeil-
is ekki gengið eftir. Vikmörkin, eða raun-
ar hættumörkin, eru við fjögurra
prósenta markið og meira að j' -
segja það hefúr ekki gengið
eftir nema endrum og sinnum
síðustu árin. Verðbólgan hefur
aðeins tvisvar verið undir fjór-
um prósentum frá í september
2005. Allt síðan þá höfum við
þurft að greiða meira fyrir lán-
in okkar og vörurnar okkar en
ef stjórnvöldum og Seðlabanka
i !
hefði tekist að halda aftur af verðbólgunni, halda fast um stjórn
efnahagsmála.
Ráðamenn reyna nú að fría sig ábyrgð af stöðu efnahagsmála á
íslandi í dag með því að segja að enginn hafi getað séð fyrir hvað
gerðist í Bandaríkjunum og breiddi sig út um heiminn. Þetta I
snýst bara ekki að öllu leyti um það. Við höfum mátt búa við of I
háa verðbólgu árum saman. Verðbólgan hefur þrívegis nálgast
tíu prósentin á innan við áratug. Hún fór í 9,4 prósent í janúar
2002, hún fór í 8,6 prósent á síðasta ári og mældist nú síðast í
8,7 prósentum. Við skyldum þó aldrei
upplifa tíu prósenta verð-
bólgu eða meira á ný? Það
gerðist síðast í október
1990 þegar þjóðarsáttin
var farin að bíta og verð-
bólgan á hraðri niðurleið
úr 23 prósentum. Ekk-
ert af þessu hafa stjórn-
völd séð fyrir og ekkert
hafa þau ráðið við. Er von
að fólk sé orðið þreytt
á háum vöxtum, mikilli
verðbólgu og óvissu?
"m
FJÁRANS FYRSTIAPRÍL
SVARTHÖFDI
Svarthöfði er grandvar maður og
velviljaður. Hann treystir fólki,
því traust er undirstaða samfé-
lagsins. Og hann veit ekkert verra en
að ljúga. Þess vegna er 1. aprfl eins
og dómsdagur í hans huga.
*
Ifyrradag vom allir fjölmiðlar
uppfullir af lygum. Og Svart-
höfði fékk beinlínis hlaupa-
sting. „Ekki lýgur Mogginn," var einu
sinni haft á orði. Hann laug hins
vegar sex sinnum í gær. Bob Dylan
og Jojo í Austurstræti, Nick Cave í
Kringlunni, Barnaland á dönsku,
ókeypis kvikmyndaniðurhal, for-
tíðartölvupóstur og vörubflstjórar
sturtuðu möl á Austurvelli. Svart-
höfði er eins og sært dýr eftir daginn
og trúir engum. Hann er ennþá að
sigta út satt frá röngu. Veröldinni
hefúr verið snúið á hvolf.
Eymundsso
Svarthöfði
hljóp af stað
þegar hann las
í DV að framsókn-
■ armaðurinn Björn
'fSth Jjj Ingi Hrafnsson
myndi árita endur-
núiuiijjggbóksína
í Eymunds-
son í
Kringlunni. Tilvist þessa
bókmenntaverks kom Svart-
höfða í opna skjöldu, en
hann hafði lengi þráð að
rekja sig lengra eftír þráðum
REI-málsins. Honum fannst
einmitt vanta meiri umfjöllun um
málið. En allt kom fyrir ekki. Enginn
var Bingi í Eymundsson og Svart-
höfði endaði á að handleika ævisögu
Guðna Ágústssonar tíl að sefa blygð-
unarkennd sína.
Næst hijóp Svarthöfði þeg-
ar fregnaðist að femínistar
myndu bera brjóst sín í Vest-
urbæjarlauginni. Ekki veit hann af
hverju hann hljóp af
stað, nema efvera
skyldi tíl að hía, en
hann snerist á hæli I
og tók þá afstöðu að
sökum rökvillu gæti
ekld verið að þær hygðust
mótmæla hlutgervingu líkam-
ans með þessum hættí. Hann sá líka
í gegnum fféttína um að eitthvert
góss væri að reka á fjörur höfuð-
borgarsvæðisins. En þegar húma tók
að kveldi lækkaði hann varnir sínar.
barst frá góðum vini hans. Svart-
höfða barst smásldlaboð klukk-
an hálf tólf að kvöldi fyrsta aprfl.
„Sæll, er í veseni. Bfllinn bilaður á
bensínstöðinni og síminn batterís-
laus. Gætir þú hringt í mig þangað í
5359988!"
Svarthöfða varð hverft við.
Honum rann blóðið tíl skyld-
unnar og rauk upp úr rúm-
inu til að liðsinna vini í vanda. Hver
veit hvaða hættur steðja að hinum
umkomalausa og kærkomna vini á
bensínstöðinni! Svarthöfði stimpl-
aði inn númerið með hraði og þrýsti
á símtalshnappinn. Það er óhætt að
segja að það hafi komið flatt upp á
hann þegar silkimjúk rödd svaraði
með orðunum: „Þetta er homma-
spjallið hjá Rauða torginu."
*
ir, úlf-
I ur," kallaði
Svarthöfði
upp yfir sig. Hann
hafði verið ginnt-
ur til að síma í
hommalínuna,
rammgagnkyn-
hneigður mað-
urinn. Hann hafði
kokgleypt blekldnguna
og þurftí að svara fyrir sig með öllum
tíltækum ráðum. Svarthöfði dokaði
við eitt smndarkorn og sendi síðan
svarið:
J
afnvel fólkið sem stendur Svart-
höfða næst laug að honum. Verst
þóttí honum þegar neyðarkall
s
æll. Ég hringdi og pabbi þinn
svaraði?!"
DOMSTOLL GOTUIVIVAR
A RÍIvID AÐ BJARGA BÖNKUNUM?
„Ég hef enga skoðun."
Sóley Rut Jóhannsdóttir, 15 ára
nemi
„Þetta er erfið spurning, þannig lagað,
en þetta útspil virðist vera réttast f
þessari stöðu. Þetta er grfðarleg
upphæð, en ef þetta bjargar bönkun-
um er þetta réttlætanlegt."
Sigurður Axelsson, 75 ára
ellilífeyrisþegi
„Nei, af því að ég held að það sé nóg
komið af lántökum og menn ættu að
taka til heima hjá sér."
Svangerður Aradóttir, 49 ára
húsmóðir
„Já, mér finnst að þeir ættu að bjarga
okkur þar sem þeir komu okkur í þetta
vesen upprunalega."
Eiríkur Rafn Stefánsson, 20 ára
verslunarmaður