Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2008, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.2008, Blaðsíða 21
DV Umræða FIMMTUDAGUR 5. JÚNf 2008 21 ta IA » IrtiW •: jli ':TíIBhí{ Tfl J |^,a uu MYIVDIIV Græða á hækkun olíuverðs Olíulðnaðurinn blómstrar sem aldrei fyrr með hækkandi olíuverði. Mikil umferð hefur verið við skipahöfnina við Aberdeen í Skotlandi og er hún nú talin ein sú mesta í Bretlandi þessa dagana. DV-myndGetty Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri n Kaupþings, fær plúsinn. Neytendastofa vakti sérstaka athygli á því að Kaupþing hefur bætt til muna starfshætti við sölu á Vista lífeyrissparnaði sem mikið , var gagnrýndur. SPURNINGIN FERÐ ÞÚ f SJÓMANN VIÐ SÓKNARBÖRNIN? „Nei, ég geri það ekki nema þegar þörf er á," segir séra Gunnar Sigurjónsson, sóknarprestur í Digraneskirkju. Séra Gunnar hampaði titlinum sterkasti prestur í heimi siðastliðinn föstudag. Ráðgjöf byggð á plastvísinaum „Það hefur kvisast að menn ætli að hafa þetta svona næstu þrjú árin. Leyfa aðeins veiðar á 130 þúsund tonnum af þorski. Til hvers þarf að stunda rannsóknir ef svona er í pott- inn búið? Er ekki alveg eins hægt að leggja rannsóknaskipum Haffann- sóknastofnunar og draga úr útgjöld- um?" Þannig spurði útgerðarmaður í Grímsey fyrir fáeinum vikum. Útgerðarmaðurinn hafði á réttu að standa. Stjómvöld vom ráðin í því að halda þorskveiðum í skefjum næstu árin úr því valdstjórnin var búin að komast yflr hæsta hjallann þegar skorið var niður um þriðjung í fyrra gegn harmkvælum atvinnugreinar- innar og landsbyggðarinnar. Útgerðarmaðurinn í Grímsey hafði tekið áhættu gegn pennastrikunum við Skúlagötu og keypt þorskkvóta til að styrkja stöðu sína og byggðarinnar í Grímsey. Skömmu síðar ákvað Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra að verða við tilmælum Hafró og skera þorskveiðar niður um 30 pró- sent. Útgerðarmaðurinn sat því uppi með skuldimar og engar tekjur á móti fjárfestingunni. Yfirvaldið eitt veit Nú ráðleggur Hafró að aðeins verði veidd 124 þúsund tonn af þorski á næsta fiskveiðiári. Talan er leikara- skapur og hefur lítið með vísindi að gera. Þeir vita að sjávarútvegsráðherr- „Nýr sannleikur var orð- inn til fyrir trúgjarnan almúgann. Geir þóttist sjá að álftin væri ekta." JÓHANN HAUKSSON útvarpsmadur skrifar ann fer ekki neðar en í 130 þúsund tonn samkvæmt sérstakri samþykkt. Hafró getur því tuðað um að ávallt sé veitt umfram það sem stofnunin ráð- leggur. Þöggun andófsradda er enn kerf- isbundin. Tumi Tómasson þáver- andi forstöðumaður Sjávarútvegs- skóla Sameinuðu þjóðanna fjallaði um málið. Greinargerð hans lauk svo: „Það er mikill misskilningur að líta svo á að gagnrýnin umræða sé merki um veikleika Hafró eða vantraust á starfsemi hennar. Þvert á móti ætti að skoða slflca umræðu sem sjálfsagð- an hlut því málefnaleg átök við öfl- uga andstæðinga í vísindum ættu að efla stofnunina enn frekar og leiða til framfara í rannsóknum og nýtingu á auðlindum hafsins sem er okkur öll- um svo mfldlvæg." Sannleikur hannaður Fyrir ári birti Hagfræðistofnun Há- skóla fslands makalausar niðurstöður sínar um áhrif niðurskurðar fiskveiða. Hagkvæmast þótti henni að hætta þorskveiðum í 3 til 4 ár til að byggja upp stofninn. Næstbest væri að veiða 130 þúsund tonn eins og Hafró hafði þá nýverið lagt til. Ekki gekk hnífurinn á milli þessara stofiiana. Gaman er að rifja upp ummæli Geirs Haarde um þessi fínu vísindi í fyrra þegar hann þarf nú að íhuga fr ekari mótvægisaðgerðir: „Mér finnst athyglisvert hvað skýrslan er ótvíræð hvað varðar það að það sé hagkvæmt að draga úr sókninni í þorskinn. Og auðvitað stemmir það við það sem Hafrannsóknastofnunin hefur sagt. Þannig að við erum bæði með líf- fræðilega niðurstöðu af hálfu Hafró og hagfræðilega af hálfu Hagfræði- stofnunar sem báðar hníga í þá átt." Geir samsinnti niðurstöðunum og hóf þær á stall. Nýr sannleikur var orðinn til fyrir trúgjarnan almúgann. Geir þóttist sjá að álftin væri ekta. Sjálfstæðismenn notuðu tækifær- ið tfl þess að afríema veiðigjald sem er þeim þymir í augum. Gjaldið sem sannar í verki að auðlindir hafsins eru eign þjóðarinnar samkvæmt lögum. Einar K. Guðfinnsson sjávarút- vegsráðherra lætur sér ekki nægja að ákveða tvö hallærisár enn í þorskveið- um landsmanna á umdeildum vís- indalegum grundvelli. Hann stendur einnig í vegi fyrir því að greiða ís- lenskum sjómönnum bætur og breyta kvótakerfinu í samræmi við niður- stöðu mannréttindanefridar Samein- uðuþjóðanna. Sandkassinn LiSTALANDSLAG borgarinnar er áberandi þessa dagana sem aldrei fyrr og endalausar sýningar- opnanir halda menningarlífinu fjörugu. Svo virðist sem allir sem vettlingi geta valdið hafi tekið til í geymslum sínum og háaloftum, grafið upp möppurnar úr mynd- listartímum bamaskólaáranna og sett upp sýningu. Svo mæta myndlistarelítan og hinir nýríku í hátíðarskapi. Stór svört sólgler- augu prýða netta nefbrodda, það klingir í glösum og brakar í Prada- leðurtöskum. SMEKKLEGIR K0SSAR smeflaá kinn þegar opnunarliðið hittist á hverri opnuninni á fætur annarri. Stundum er maður heppinn ogséríverkin þegar ilmvams- skýin dofna ogjöfrarnir skreppa út til aðfásérvind- fl. Veitingarn- ar verða sífellt A. flottari, hvítvín og kampavín rennur í sm'ðum straumum, exót- ískir ávextir eru í haugum í hverju horni og belgískt súkkulaði bunar úr gosbrunnum. LÝSANDIDÆMI um listina sem tröllríður öllu um þessar mundir er heimfldarmyndin Steypa en hún fjallar um íslenska samtíma- list og var sýnd nýlega í Listasafni íslands. f myndinni er fýlgst með sjö listamönnum yfir tveggja ára tímabil; heima og erlendis. Þeir eru ægilega „orginal". Einn lista- mannanna hellir Pepsí kóladrykk í Fantaflösku og veltir fýrir sér hvað sé list. Ein listakonan býr tfl deig sem hún setur í andlitið á sér. Og nokkrir endursköpuðu stjömuhimin Van Goghs úr... lakkrísafgöngum. SV0 SETJA BLÖNKU listaspfrumar sinn svip á sjóvið - oftast klæddar að hætti krúttkynslóðarinnar. Þið þekkið lúkkið: Stelpurnar í stutt- um, bamalegum kjólum, dopp- óttum sokkum upp að hnjám, hárið bundið í sakleysislega tíkar- spena með stómm slaufum. Þær standa gjarnan örlítið innskeifar og eru með eilífan undmnarsvip. Strákarnir: Niðurmjóar buxur, ýmist æpandi rauðar eða jafnvel gular, gleraugu með svartri „gáfu- manna-umgjörð" hárið hangir kæruleysislega ofan í augun. Artí fartí. Þvílíkt pam'. -hvað er að frétta? (MjííQQO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.