Málfregnir - 01.11.1991, Síða 4

Málfregnir - 01.11.1991, Síða 4
2. Rafmagnsverkfræðingar taka upp þráðinn Oröanefnd rafmagnsverkfræöinga stofnuö Allmörg ár líða og orðanefndarstarf liggur niðri. Áhugamenn bæta þó orðum í söfn sín og annarra. Hinn 7. febrúar 1941 stofnuðu þeir 13 rafmagnsverkfræð- ingar, sem voru í Verkfræðingafélagi íslands, deild innan félagsins og kenndu við sig. Lög voru samþykkt en 16. maí sama ár koma rafmagnsverkfræðingarnir enn saman og kjósa sér hina fyrstu stjórn með Jakob Gíslason sem formann. Jafn- framt var samþykkt að kjósa þriggja manna orðanefnd til að safna „orðum sem til voru í rafmagnsfræðinni“. Kosn- ingu hlutu Gunnlaugur Briem, Stein- grímur Jónsson og Guðmundur Marteins- son. Gunnlaugur hlaut flest atkvæði og var formaður. Guðmundur Hlíðdal og Jakob Gíslason, sem báðir höfðu starfað með Orðanefnd Verkfræðingafélagsins, voru í stjórn deildarinnar (RVFÍ), og kann það að hafa valdið því, að þeir voru ekki kosnir í orðanefndina. Athyglisvert er að 6 af 13 stofnendum RVFÍ tóku beint þátt í störfum orðanefnda Verkfræðinga- félagsins eða rafmagnsverkfræðingadeild- ar, og vitað er um fleiri rafmagnsverk- fræðinga úr hópi stofnenda sem höfðu áhuga á íslensku tæknimáli og lögðu því lið með orðum og gerðum, þó að ekki yrðu þeir kjörnir í Orðanefnd RVFÍ. Upphaf oröasöfnunar og útgáfu Fyrstu starfsár Orðanefndar voru við- burðasnauð, eða nefndarmenn orðfáir um gerðir sínar, því að nefndarinnar er í fyrsta sinn eftir stofnun getið í fundar- gerðabók RVFÍ á aðalfundi 1947 með þeim ummælum að fátt sé til frásagnar af Orðanefnd annað en það hverjir séu nefndarmenn. Næsta ár rofar þó til, og frá Orðanefnd segir á aðalfundum raf- magnsverkfræðinga upp frá því. Sum árin var mikiö starfað. Fyrsta verkefni nefndarinnar var að taka upp gamla orðalistann sem Orða- nefnd Verkfræðingafélagsins hafði tekið saman á árunum í kringum 1920. Þar voru um 250 orð sem prentuð höfðu verið í Tímariti VFÍ árin 1920 og 1923. Mörg þessara orða höfðu náð festu í mál- inu í ræðu og riti. Gunnlaugur Briem jók við orðasafni sem hann hafði smám saman tekið upp í störfum sínum á vett- vangi síma og útvarps. Var það álíka stór listi. Þessir listar voru nú sameinaðir og ákveðið að skrá orðin í stafrófsröð á dönsku með íslenskum þýðingum en auka við listann eftir því sem færi gæfist. Síðar mætti endurbæta verkið með þýð- ingum á fleiri tungumálum. Hið nýja orðasafn var aukið á næstu árum en á til- viljanakenndan hátt. Orð, sem nefndar- menn þekktu, heyrðu, sáu eða mynduðu sjálfir, voru rædd á fundum og þau orð valin sem æskilegt þótti að hafa í orða- safninu. Þegar safnast höfðu nærri 2000 orð ákvað nefndin að undirbúa útgáfu þeirra. Sú vinna var tafsöm, og bættust enn orð við safnið meðan unnið var að útgáfu. Þetta safn kom út árið 1952 og bar heitið Orðasafn II. Rafmagnsfrœði. Danskt-íslenzkt bráðabirgða orðasafn. Á kápusíðu var viðbótarskýring: „Helztu orð úr rafmagnsfræði ásamt nokkrum orðum úr skyldum greinum, svo sem eðlisfræði, efnafræði, stærðfræði og vél- fræði“. Bókin nefndist „Orðasafn 11“ vegna þess að árið 1928 kom út rit á vegum Orðanefndar Verkfræðingafélags- ins, sérprentun úr Tímariti VFÍ, sem nefnt var íðorðasafn I. Bókin var prentuð sem handrit í 1000 eintökum og send öllum verkfræðingum og ýmsum öðrum. Raftækni- og Ijósoröasafn Næstu ár fjallaði Orðanefnd RVFÍ einkum um ýmsa kafla úr orðasafni 4

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.