Málfregnir - 01.12.1997, Síða 15

Málfregnir - 01.12.1997, Síða 15
merkingareiginda. Orðabækur af fyrri gerð- inni eru mun fleiri og margbreytilegri, inn- taksskipaðar orðabækur eru tiltölulega sér- hæfðar og flestar settar fram sem staðvenslaorðabækur þar sem fengist er við að lýsa venslum orða og orðeininga í ákveðnu setningarsæti. Þar eru samheita- orðabækur fremstar í flokki en venslin geta einnig tekið til andstæðrar merkingar, yfir- eða undirhugtaks. Öðrum inntaksskipuðum orðabókum eru ekki settar slíkar skorður, þær geta t.d. spannað tiltekið merkingarsvið og rúmað orð og orðafar af margvíslegu tagi. Ég ætla að koma ofurlítið nánar að slíkri orðabókarlýsingu á eftir en frægust orðabóka þessarar tegundar er Roget’s Thesaurus of English Words and Phrases. 2.3.4 Einkenni íslenskra orðabóka Ef við berum íslenska orðabókarhefð saman við orðabækur um nálægustu tungumál endurspeglast munurinn einkum í tveimur flokkunarþáttum. Annars vegar er um að ræða afstöðuna til málnormsins, en helstu orðabækur um íslensku eru mun normkvæð- ari og þá um leið síður lýsandi en hliðstæðar norskar, danskar eða sænskar orðabækur til dæmis. I íslenskum orðabókum er sem sé í ríkari mæli leitast við að hafa áhrif á viðhorf notenda og málnotkun. Hinn flokkunarþátt- urinn lýtur að afstöðunni til málsögunnar en í íslenskri orðabókarhefð er málþróunarleg lýsing ákaflega áberandi á kostnað mál- stöðulegrar lýsingar samtímamálsins sem meiri rækt hefur verið lögð við í skandin- avískum orðabókum. 3 Efnisatriði orðabóka og innskipan Ég ætla að hlífa mönnum við frekari greinargerð um orðabókartegundir og tor- meltum íðorðum sem henni fylgir þótt það umræðuefni sé hvergi nærri tæmt, en vísa þeim sem vilja virða fyrir sér einstakar teg- undir á Norðu sjálfa, innganginn, einstakar orðsgreinar og íslensku orðaskrána aftast. En mig langar í staðinn að víkja að þeim margvíslegu upplýsingum sem orðabókum er ætlað að miðla og hvernig búið er um þær upplýsingar í orðabókartextanum þannig að þær séu sem nærtækastar og sýnilegastar. Að því er varðar efnisskipanina erum við hér komin að því sem í Norðu er kallað inn- skipan, þ.e.a.s. innbyrðis skipan efnisatriða orðsgreinarinnar (míkróstrúktúr á erlendum málum). Hér er lögð áhersla á að skilja á milli upplýsinganna sem slfkra, þeirrar vitneskju sem notandinn sækir til orðabók- arinnar, og þeirra áþreifanlegu og sýnilegu eininga í textanum þar sem upplýsingamar eru tilgreindar. Til að tákna þá hlið málsins varð heitið tilgreining fyrir valinu, til samræmis við sögnina tilgreina, þótt ég viðurkenni að nafnorðið er ekki alls kostar heppilegt. Og þessi orðstofn kemur einnig við sögu þegar gerður er greinarmunur á þeim upplýsingum sem bundnar eru tilteknu einkenni orðs eða orðasambands sem verið er að lýsa og eru settar fram sem slíkar, t.d. upplýsingum um beygingu samkvæmt ákveðnu kerfi eða upplýsingum um fram- burð með hljóðritun, og þeim upplýsingum sem tiltekið efnisatriði getur búið yfir án þess að á því sé vakin bein athygli. Notk- unardæmi eru oft þessa eðlis, þ.e. búa yfir margþættari upplýsingum en beinlínis eru kynntar til sögunnar. I Norðu er þetta orðað svo að upplýsingar í orðabókartextanum séu annars vegar tilgreindar (eksplisitt) en hins vegar ífólgnar (implisitt). Þannig ná íslensku heitin í stöku tilvikum að tengja saman skyld hugtök umfram það sem erlendu heitin bera með sér, annað dæmi er viðfang (um adresse, það atriði sem tiltekin tilgreining á við eða beinist að), og sam- setningamar viðfangsmúl (um kildesprdk) og viðfangsorð (um kildeord). Tilgreindar upplýsingar geta verið býsna fjölbreytilegar, sérstaklega í stórum almenn- um orðabókum þar sem lögð er áhersla á alhliða lýsingu, og þau efnisatriði, sem upp- lýsingamar eiga við, eru einnig af ólíku tagi, ekki aðeins flettiorðið sjálft heldur einnig einingar innan orðsgreinarinnar, til dæmis orðtak, merkingarskýring eða jafnheiti. Það 15

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.