Málfregnir - 01.12.1997, Qupperneq 21

Málfregnir - 01.12.1997, Qupperneq 21
fram. Og notandinn getur hreinlega verið bjargarlaus frammi fyrir stafrófsskipaðri orðabók, hann getur ekki tengt það sem hann langar að finna við neitt sérstakt orð. Til að mæta þeim aðstæðum verða að koma til leitaratriði sem með einhverjum hætti tengjast því hugtaki eða merkingarhlutverki sem notandinn hugsar til, atriði eins og gleði, tilhlökkun, reiði, undrun, hneykslun, samsinni, vonleysi, tortryggni o.s.frv. Hug- takið undrun myndi t.d. geta sameinað margvísleg sambönd af þessu tagi: á dauða mínum átti ég von (en ekki <þessu>) detta mér nú ekki allar dauðar lýs úr höfði ég á ekki orð (í eigu minni) guð minn góður svei mér þá (alla daga) þú segir nokkuð Oft er erfitt að greina á milli undrunar og hneykslunar en mörg viðkvæði væri skýrara að auðkenna með hugtakinu hneykslun: ekki er öll vitleysan eins ekki spyr ég (nú) að ekki nema það þó nú er mér nóg boðið nú er mœlirinn fullur fyrr má nú rota en dauðrota minna má nú gagn gera heyr á endemi nú þykir mér hundamir vera farnir að ríða í söðli Hér er fátt eitt talið. Samböndin eru vissulega ekki nema að takmörkuðu leyti sambærileg svo að notendum væri yfirleitt stoð í athuga- semdum eða leiðbeiningum um notkunina, ekki síður um það við hvaða aðstæður viðkvæðið eigi en um merkinguna sem slíka. Meðal annars af þessum ástæðum er þörf á aðgangsþáttum sem eru óháðir setningar- gerð, orðgerð og tegundum orðasambanda og venjubundnum efnisatriðum í stafrófs- skipaðri almennri orðabók. Þar virðast hug- takaheiti af því tagi, sem ég hef verið að nefna, vel koma til greina. Slík hugtakaheiti gætu bundið saman margvíslegt orðafar annað en það sem ég hef verið að nefna. Manni verður þá m.a. hugsað til ýmiss konar atviksliða, bæði atviksorða og ekki síður orðasambanda með forsetningum og atviksorðum, sem tengdir eru ákveðnu merkingarhlutverki og hafa aukið gildi gagnvart notendum sé þeim stillt saman í eina heild: hœgt og bítandi með tímanum með tíð og tíma er tímar líða með morgninumlkvöldinu með <degi hverjum, ári hverju> með aldrinum nú orðið upp frá þessu það sem afer (<árinu>) þegar frá líður Ég nefni aðeins örfá merkingarlega nátengd og setningarlega hliðstæð sambönd til vís- bendingar um það orðafar sem gæti átt sér samnefnarann framvinda en það auðkenni virðist geta átt við um mun víðtækara orða- svið. Mig grunar að þörfin fyrir að fara slóð hugtaka og merkingar að efni í orðabókum sé miklu meiri en við gerum okkur almennt grein fyrir sem notendur og að hún verði fljótt fjölfarin þegar notendum er orðið ljóst að hún sé fær. Þeim þörfum verður best sinnt með atbeina tölvunnar þar sem bókar- stærð og stafrófsröð er ekki til hindrunar. En gagnsemi þess að nálgast orðabókarlýsingu úr þessari átt mun einnig skila sér í bættri framsetningu merkingarskýringa og auknu samræmi í efnisskipan stafrófsraðaðra orða- bóka. 4 Lokaorð Ég þóttist ætla að vera heimspekilegur í upphafi og legg varla í að endurtaka það þó 21

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.