Málfregnir - 01.12.1997, Page 22
menn eigi það inni hjá mér. En það sem ég
hef verið að reyna að kynna í þessu erindi
getur vonandi orðið til nokkurs stuðnings og
vakið til umhugsunar um framvindu og
framfarir í íslenskri orðabókargerð og
íslenskri orðabókarfræði. Ég geri mér grein
fyrir því að maður sér skammt fram á
veginn og gerir sér ekki grein fyrir nema fáu
einu af þeim kostum sem meðvituðum og
áhugasömum orðabókarnotendum fara að
bjóðast og enn síður gerir maður sér grein
fyrir þeim kröfum sem slíkir notendur fara
að gera til orðabókarhöfunda. Það blasir þó
við að upplýsingamar takmarkast ekki
lengur við hið ritaða orð og kyrrstæðar
myndir, hreyfimyndir og hljóð eru komin til
sögunnar í bland við orðið, og margs konar
ítarefni verður tengt orðabókarlýsingu,
alfræðiefni, málfræðilýsing, talþjálfun
o.s.frv. Og Norða verður sjálfsagt orðin
úrelt á mörgum sviðum fyrr en varir.
22