Málfregnir - 01.12.1997, Qupperneq 23
Sitt af hverju
Málræktarverðlaun
Viðurkenning Málrœktarsjóðs
A aðalfundi Málræktarsjóðs, 11. júní 1997,
var Vigdísi Finnbogadóttur veitt viðurkenn-
ing fyrir stuðning hennar við málrækt í
forsetatíð sinni. Guðmundur Magnússon
prófessor, stjómarformaður sjóðsins, afhenti
Vigdísi viðurkenningarskjal og listmun.
Sérstök viðurkenning Lýðveldissjóðs
Á þjóðhátíðardaginn 1997 hlaut Sigrún
Helgadóttir tölfræðingur sérstaka viður-
kenningu Lýðveldissjóðs fyrir lofsverð störf
til eflingar íslenskri tungu.
Sigrún tók sæti í Orðanefnd Skýrslu-
tæknifélags Islands haustið 1978 og varð þá
formaður hennar. Nefndin hefur unnið ötul-
lega undir forsæti Sigrúnar og hefur nú
samið þriðju útgáfu Tölvuorðasafiis. Sigrún
sat í orðanefnd á vegum Líftölfræðifélags-
ins og Aðgerðarannsóknafélags íslands og
var annar ritstjóra Orðasafits úr tölfrœði
(1990). Sigrún Helgadóttir var skipuð í
Islenska málnefnd 1990 og var þegar kjörin
í stjórn. Hún hefur verið virk í norrænu sam-
starfi íðorðafólks og var m.a. formaður
stjórnamefndar Nordterm, samtaka nor-
rænna íðorðastofnana, árin 1993-1995 og
gekkst þá m.a. fyrir norrænni ráðstefnu á
vegum samtakanna hér á landi.
Sigrún Helgadóttir er óþreytandi braut-
ryðjandi í íslensku íðorðastarfi. Hún hefur
ætíð verið boðin og búin að leiðbeina öðru
orðanefndarfólki úr ýmsum greinum og
miðla af reynslu sinni. Hún hefur ekki síst
veitt góð ráð um gagnaskráningu og vinnu-
tilhögun. Hún hefur ritað ýmsar greinar og
bókarkafla og flutt mörg fræðsluerindi á
fundum og námskeiðum um íðorðamál og
starfsemi orðanefnda.
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
Gísli Jónsson hlaut verðlaun Jónasar Hall-
grímssonar á degi íslenskrar tungu, 16.
nóvember 1997, fyrir framlag sitt til
íslenskrar tungu. Menntamálaráðherra
afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í
Menntaskólanum á Akureyri. Þá afhenti
hann við sama tækifæri Sigurði Líndal,
forseta Hins íslenska bókmenntafélags, og
Sverri Kristinssyni, bókaverði félagsins,
viðurkenningu fyrir framlag bókmennta-
félagsins til varðveislu íslenskrar tungu.
Örn Bjarnason hlýtur samsk heiðursverð-
laun fyrir málrœkt
Öm Bjarnason, formaður Orðanefndar
læknafélaganna, hlaut heiðursverðlaun
fræðafélags sænskra lækna, Svenska lákare-
sallskapet, á hátíðarfundi í byrjun nóvember
sl. Verðlaunin vom veitt að tillögu orða-
nefndar sænska félagsins, Kommittén för
svensk sprákvárd, en verðlaununum var nú
úthlutað í þriðja sinn. I áliti nefndarinnar
segir m.a.: „Örn Bjamason har med idéellt
engagement várdat och delvis skapat den
islándska terminologin." Sem ritstjóri
Læknablaðsins 1976-1993 og með aðild
sinni að frábærri orðabók í læknisfræði sem
út kom 1986-1989 hafi hann „tjánat som
förbild och inspirationskálla för andra som i
Norden interesserar sig för det medicinska
spráket". I frétt í Lákartidningen 22. október
sl. segir aðalritstjórinn að í „nordiska kretsar
ár árets pristagare en valkánd profil med ett
brett register - han har ocksá ágnat sig át
medicinsk etik“ og að Örn Bjamason „har
drivit arbetet pá en islándsk medicinsk
terminologi, ett gigantiskt arbete dár
islándska ord nybildas för att hálla spráket
fritt frán engelska termer“.
Málfregnir óska verðlaunahöfum til ham-
ingju með verðskuldaðar viðurkenningar
fyrir frábært starf í þágu íslenskrar mál-
ræktar.
23