Málfregnir - 01.12.1997, Síða 28
Islensk gjaldmiðlaheiti
íslensk málnefnd hefur gefið út ritið íslensk
gjaldmiðlaheiti. Baldur Jónsson prófessor
tók saman í samráði við Anton Holt, mynt-
fræðing í Seðlabanka íslands, Ólaf ísleifs-
son hagfræðing, framkvæmdastjóra
alþjóðasviðs Seðlabanka íslands, og
Veturliða Óskarsson málfræðing.
Ritið skiptist í fimm skrár auk formála,
þar sem saga verksins er rakin, og
almennrar greinargerðar um íslensk heiti
gjaldmiðla og ríkja. Fyrst kemur skrá um
heimkynni gjaldmiðla og heiti þeirra ásamt
alþjóðlegum lyklum (skammstöfunum), þ.e.
landalyklum og myntlyklum. Henni fylgir
sams konar skrá þar sem heiti gjaldmiðlanna
koma í stafrófsröð; þessar skrár eru viða-
mestar í ritinu. Þá er einkar fróðleg skrá um
stofnheiti gjaldmiðla og heimkynni þeirra,
ensk-íslensk ríkjaskrá og ensk-íslensk gjald-
miðlaskrá.
I greinargerð Baldurs Jónssonar um
íslensku heitin í bókinni segir m.a.: „Flestöll
gjaldmiðlaheiti, sem hér eru skráð, eru
erlend að uppruna og var stuðst við drög að
alþjóðlegum myntheitastaðli frá British
Standards Institution (BSI). Sum heitin eru
löngu kunn sem fullgild tökuorð í íslensku,
en önnur hafa lítið sem ekkert verið notuð
hér á landi. Aðalviðfangsefnið var að laga
erlend orð að íslenskum málkröfum.“
Ritið er 55 bls. og kostar 855,- kr. m.vsk.
Islensk gjaldmiðlaheiti eru fyrsta ritið í
nýrri ritröð, Smáritum Islenskrar mál-
nefndar. (I ritröðinni Rit Islenskrar mál-
nefndar eru komnar út 9 bækur.)
Málfregnir koma út tvisvar á ári
Útgefandi: íslensk málnefnd
Ritnefnd: Gunnlaugur Ingólfsson og Kristján Ámason
Ritstjóri: Ari Páll Kristinsson
Ritstjóm og afgreiðsla: Islensk málstöð,
Aragötu 9, ÍS-101 Reykjavík
Sími: 552-8530. Bréfasími: 562-2699
Veffang: http://www.ismal.hi.is/
Netfang ritstjóra: aripk@ismal.hi.is
Áskriftarverð: 684 kr. (m. vsk.) á ári
Steindórsprent-Gutenberg
ISSN 1011-5889
ÍSLENSK MÁLNEFND