Málfregnir - 01.12.2003, Síða 20
Fræðimenn innan jafnt sem utan greinarinn-
ar, nemendur, fjölmiðlafólk og allan al-
menning. Eins og margir vita hófst kennsla
í fornleifafræði við Háskóla íslands haustið
2002 og því hefur þörfin á samræmdu orða-
safni i greininni aldrei verið brýnni en nú.
Orðabanki Islenskrar málstöðvar er geysi-
lega gott tæki til að vista og vinna orðasöfn.
Ekki einungis að hver sem er geti flett upp
fræðiorðum í ýmsum greinum hvar sem
hann er staddur heldur er orðabankinn lif-
andi: Með einu handtaki getur ritstjóri bætt
inn orði, skilgreiningu eða leiðréttingum.
Þetta er mikilvægt íyrir gott orðasafn enda
grundvallaratriði að það sé í sífelldri mótun
og endurskoðun. Þó hlýtur að koma að því
að hugað verði að útgáfu á prenti. Ekki er
það af eintómri íhaldssemi heldur líka vegna
þess að það hentar fornleifafræðingum mjög
vel að geta blaðað í orðasafni við vettvangs-
vinnu þar sem öll skráning þarf að vera hnit-
miðuð og nákvæm. Þannig mætti hugsa sér
að gefa út einstaka hluta af orðasafninu, t.d.
eitt rit um gripi eingöngu, þá auðvitað
myndskreytt, og annað með uppgraftarhug-
tökum sem væri afar hentugt í uppgröftum.
Stefnt er á að opna orðasafnið á heimasíðu
íslenskrar málstöðvar fyrir notendum haust-
ið 2004. Þá verður það kynnt fyrir væntan-
legum notendum og óskað sérstaklega eftir
athugasemdum og viðbótum við það.
Rannsóknir í fornleifafræði hér á landi
hafa aldrei verið fleiri og umfangsmeiri en
einmitt um þessar mundir. A næstu árum og
áratugum má búast við að mikið verði skrif-
að, vonandi bæði fyrir almenning og fræði-
menn. Þá skiptir máli að hafa samræmdan
og vel ígrundaðan orðaforða. Vel heppnað
orðasafn getur án efa skotið styrkum stoð-
um undir fornleifaffæði á íslandi.
1
20