Málfregnir - 01.12.2003, Blaðsíða 23

Málfregnir - 01.12.2003, Blaðsíða 23
að til skora með tilmælum um að þær skip- uðu menn í nefndir. Á næstu fundum var ít- rekað óskað eftir tilnefhingum skoranna sem aldrei komu. Málið lognaðist því út af og enginn sérstakur starfshópur var skipað- ur í verkfræðideild. Hvað er unnt að lesa úr þessari niður- stöðu? Er áhugi háskólakennara lítill sem enginn á því að kenna nemendum á vönd- uðu íslensku máli þar sem íslensk iðorð eru notuð í stað erlendra fræðiheita? Þessari spurningu er bæði hægt að svara játandi og neitandi. Ég hef talað undanfarið við all- marga stúdenta í ýmsum deildum og grein- um allra háskólanna í Reykjavík og komist að raun um að það er mjög einstaklings- bundið hversu mjög menn gera sér far um að nota íslensk íðorð í stað erlendra hugtaka og koma þeim á framfæri við stúdenta og þá á ég að sjálfsögðu við þá sem eru að kenna námskeið á íslensku. í þessari óformlegu könnun virtist ástandið einna best við Há- skóla Islands og Kennaraháskólann. Forvitnilegt er að velta því íyrir sér hvers vegna svörunin við samþykkt háskólaráðs reyndist jafn lítil og raunin varð og þá gef ég mér að ekki hafi betur verið tekið undir hana í þeim deildum sem svöruðu mér ekki. I svörunum, sem ég fékk, komu nefnilega fram gagnlegar upplýsingar sem eru ef til vill ástæður þess að lítið var tekið undir orðanefndir í deildum. Deildarforseti raun- vísindadeildar benti á að margir starfsmenn væru afar áhugasamir um íðorðastarf og ynnu að því á vettvangi fagfélaga sinna. Flestir þeirra skrifuðu á íslensku um sín fræði en það væri vís leið til að þvinga menn til að taka afstöðu til nýyrðanotkunar. Á svipuðum nótum skrifaði deildarforseti verkfræðideildar. Hann nefndi ýmsa menn sem ötullega hafa unnið að íðorðasmíð en þar er í fararbroddi Einar B. Pálsson, próf- essor emeritus, sem vinnur ásamt öðrum að íðorðasafni undir merkjum Verkfræðingafé- lagsins. Annað, sem kom fram, var að ýmsir eru ekki reiðubúnir til að fóma tíma sínum til þess að sinna íðorðastarfi á vegum deild- ar án þess að einhver umbun komi fyrir svo sem í vinnumati Félags háskólakennara eða kjaraneíndar eða í lýsingu á vinnuskyldu kennara þannig að íðorðastarfið fari fram í vinnutíma. Öðru virðist gegna um starf fyrir fagfé- lögin. Þar setjast í orðanefndir menn sem vilja vinna að eflingu íslensks máls á sínu fagsviði með því að búa til orð yfir ffæði- hugtök sem tungan á enn engin nothæf orð yfir. Þarna erum við komin að kjarna máls- ins. Það eru fyrst og fremst áhugamenn um íslenskt mál sem fást til að vinna við íðorða- smíð. Fyrirmæli, jafnvel tilmæli, að ofan um að deildir sinni skipulega íðorðastarfi eru dæmd til að lenda ofan í glatkistunni án þess að það sé meðvituð ætlun ef ekki fást til starfsins hæfir menn sem fá umbun í ein- hverju formi fyrir starf sitt. Það er ekki hægt að setja menn í orðanefndir sem ekki hafa áhuga á að sinna starfinu og vilja til að kynna sér hvað til þarf til þess að búa til góð íðorð. Menn eru misjafnlega hæfir til að sinna íðorðasmíð og fylgi hugur ekki máli verður útkoman engin. Fagfélögin standa sig mörg hver hins vegar með sóma eins og sjá má í orðabanka Islenskrar málstöðvar. Þar vinna menn ósérhlífið starf af áhuga og metnaði. Sumir eru kennarar eða sérffæð- ingar við háskólann, aðrir eru starfandi úti í þjóðlífinu. Þannig er þessum málum best komið. En getur þá Háskóli íslands ekkert að gert? Vissulega. Hann getur hvatt menn til umhugsunar um málið með góðri málstefnu. Hún má ekki aðeins vera samþykkt á blaði heldur metnaðargjarnt áform um að stuðla að vönduðu íslensku máli innan veggja skólans. Háskólinn getur einnig leitað leiða til að mönnum verði umbunað fyrir vinnu við íðorðasmíð ef hún fer fram á vegum hans. Háskóli Islands á að mínu mati að vera fyrirmynd annarra. Þegar kennt er á íslensku á málið að vera vandað og með íslenskum íðorðaforða. Islenska á að vera það mál sem er og verður ríkjandi við skólann. Einstaka námskeið á ensku skipta þar ekki öllu máli 23

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.