Skírnir - 01.01.1943, Side 203
Skírnir
Ritfregnir
•201
vinsæl. Hún er eins og blómvöndur með öllum málsins litum, alls
konar villigróður, sprottinn af margvíslegum hugarhræringum þjóð-
arinnar, margt ilmandi skáldskapur, en allt hefir það eitthvað sér
til ágætis, bregður að minnsta kosti einkennilegu ljósi yfir þann
reit þjóðarsálarinnar, sem það hefir vaxið í..Yfir því öllu er mildur
og einlægur blær, sem ber þjóðinni gott vitni.
Útgefandinn hefir tekið þann kostinn að láta hvert stefjabrot
eða kvæðisbút tala sínu máli, án þess að skýringar fylgi, enda er
aðalgildi þeirra blærinn, sem þeim fylgir, veðrið, sem þau vekja
í sálinni. Grösin og blómin í haganum koma ekki heldur með neina
prentaða seðla sér til skýringar, en láta grasafræðinga um það að
flokka og ættfæra og skýra. Þó hefði ég kosið, að aftan við bókina
hefði verið vísað til heimilda, að minnsta kosti um þau kvæði, sem
ekki er tekið úr nema bútar, svo að þeir, sem vilja sjá þau í heild
sinni, geti auðveldlega fundið þau. — Dr. Einar hefir skrifað stutt
forspjall framan við bókina, og er einkennum og blæ ljóðanna þar
ágæta vel lýst. Allt snið á prentun ritsins er smekklegt og prýðilegt.
G. F.
Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar, 48. ár, fyrir árið 1942, og
49. ár, fyrir árið 1943. Ritstjóri: Richard Beck. Útgefendur: Thor-
geirsson Company, Winnipeg. ----- Icelandic Poems and Stories.
Translations from Modern Icelandic Literature. Edited by Richard
Beck. Princeton. Princeton University Press for the' American-
Scandinavian Foundation. New York. 316 bls.
Hinn ötuli forseti Þjóðræknisfélagsins, prófessor, dr. Richard
Beck, lætur ekki dvína kveðandina í þjóðræknisstarfi sínu vestan
hafs. Með fjölda fyrirlestra og greina um land vort og þjóð og bók-
menntir heldur hann uppi, af eldlegum áhuga og góðvild, stöðugu
kynningarstarfi fyrir þjóð vora. Hið síðasta, er mér hefir borizt
frá hans hendi, eru rit þau, er hér skal minnzt á.
Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar er orðið ein merkilegasta
náma íslenzkrar mannfræði síðari tima. Það hefir nú komið út ná-
lega hálfa öld og flutt að staðaldri greinar í safn til landnámssögu
fslendinga í Vesturheimi, auk fjölda greina um einstaka íslendinga
við sérstök tækifæri. Það birtir árlega yfirlit um helztu viðburði í
lífi íslendinga vestan hafs, allt sem þeir gera sér til sæmdar í skól-
um, opinberu lífi og einkaframkvæmdum. Og það flytur góða skrá
yfir mannslát á hverju ári, með glöggri grein á helztu æviatriðum.
Og auk þess margt bókmenntalegt. Þarna er því saman komið í
stuttu máli margt af því, sem þarf til þess að gera sér grein fyrir
því, hvernig íslendingar hafa reynzt vestan hafs-, og jafnframt
hefir þetta rit verið merkur þáttur í viðleitni þeirra að halda þjóð-