Bændablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014
Ályktanir Búnaðarþings 2014
» Nautastöð BÍ
Búnaðarþing heimilar stjórn BÍ
að stofna einkahlutafélag um
rekstur og eignir Nautastöðvar BÍ.
Ennfremur heimilar þingið stjórn
BÍ að selja eignarhluti í félaginu
til aðildarfélaga samtakanna eftir
sérstökum samningum þar um, þyki
það hagfellt nautgriparæktinni og
heildarhagsmunum landbúnaðarins.
Stjórn BÍ fylgi málinu eftir. Heimildin
gildir til Búnaðarþings 2015.
» Fjarskipti – grunn-
þjónusta í dreifbýli
Allsherjarnefnd hefur fjallað um
innsendar ályktanir um fjarskiptamál
og farið yfir afdrif mála frá síðustu
búnaðarþingum. Nefndin telur að
efnislega hafi ekki komið fram
nýjar áherslur í innsendum erindum.
Fram kom í umfjöllun nefndarinnar
að BÍ hafi þegar brugðist við erindi
Póst- og fjarskiptastofnunar um
alþjónustu og þeirri tillögu að aflétta
þjónustukvöð af Mílu. BÍ hafa lagt
áherslu á að við þá breytingu sé í
engu slegið af kröfu um markvissa
uppbyggingu á öflugum fjarskiptum
og jafna aðstöðu byggðanna til
nútíma fjarskipta.
Nefndin leggur áherslu á að
BÍ svari andmælaskjali PFS og
ítreki ályktanir búnaðarþings.
Allsherjarnefnd beinir þeim
tilmælum til stjórnar BÍ að hún
fjalli um og láti gera könnun á
réttarstöðu þeirra sem ekki geta
notið útsendinga útvarps og
sjónvarps en þurfa samt sem áður
að sæta því að greiða útvarpsgjald.
Eftir atvikum mætti hefja slíkt mál
með kvörtun til Umboðsmanns
Alþingis. Allsherjarnefnd telur
einnig að kanna þurfi hversu marga
bæi er um að ræða þar sem ekki næst
útvarps- og/eða sjónvarpsútsending
» Raforkuverð í dreifbýli
Jafna þarf raforkuverð í landinu.
Búnaðarþing skorar á Alþingi að
samþykkja frumvarp iðnaðarráðherra
um að jafna á milli dreifbýlis og
þéttbýlis, kostnað við dreifingu
rafmagns. Búnaðarþing hvetur
stjórnvöld að standa við fyrirheit
sín um að kostnaður þeirra sem
búa á „köldum svæðum“ og nota
raforku til kyndingar, verði til jafns
við hitaveitu
» Sjúkrasjóður BÍ
Búnaðarþing 2014 samþykkir
að leggja niður Sjúkrasjóð BÍ í
núverandi mynd. Stofnun nýs sjóðs
er um leið frestað um óákveðinn tíma,
í ljósi þess að fjármögnun liggur
ekki fyrir. Eftirstöðvar sjóðsins við
uppgjör renna til BÍ. Stjórn BÍ er
falin framkvæmd málsins.
» Félagskerfi
landbúnaðarins
Markmið að finna leiðir að fjármögnun
samtaka bænda og koma með
tillögur að fulltrúafjölda einstakra
aðildarfélaga á búnaðarþingi.
Skipaður verði vinnuhópur til að
gera framangreindar tillögur. Ef
þurfa þykir verði ráðgjafi ráðinn
hópnum til aðstoðar. Haft verði
víðtækt samráð við aðildarfélög BÍ
og byggt á þeirri vinnu sem þegar
hefur farið fram eftir því sem hægt
er. Stjórn BÍ er falið að fylgja málinu
eftir. Tillögur vinnuhópsins skulu
kynntar bændum og aðildarfélögum
BÍ fyrir lok október 2014 og lagðar
fyrir búnaðarþing 2015. Stjórn
BÍ er falið að leita samninga um
fjármögnun verkefnisins með
eftirfarandi hætti: Að Bændasamtök
Íslands greiði 50%, búnaðarsambönd
25% og búgreinasambönd 25%.
Hlutur einstakra aðildarfélaga fari
eftir hlutdeild þeirra í innborguðu
búnaðargjaldi.
» Breytingar á
samþykktum BÍ
og þingsköpum
búnaðarþings
Sjá á vef bondi.is
» ESB
Búnaðarþing 2014 ítrekar samþykktir
fyrri þinga um andstöðu við aðild
Íslands að Evrópusambandinu. Þingið
telur að draga eigi aðildarumsókn
Íslands til baka.
» Innflutningur á hráu,
ófrosnu kjöti
Áfram verði óheimilt að flytja hingað
til lands hrátt, ófrosið kjöt í ljósi þeirrar
smit- og sýkingarhættu sem það
getur haft í för með sér. Þrýst verði á
stjórnvöld að halda áfram uppi fullum
vörnum í máli ESA gegn íslenska
ríkinu vegna innflutningsbanns á hráu
ófrosnu kjöti. Stjórn BÍ er falið að
fylgja málinu eftir.
» Lífrænar
landbúnaðarvörur
Búnaðarþing 2014 telur mikilvægt
að efla framleiðslu á lífrænum
landbúnaðarvörum. Búnaðarþing 2014
hvetur bændur í öllum búgreinum til að
meta og nýta þau tækifæri sem eru til
staðar í framleiðslu og sölu á lífrænum
landbúnaðarvörum. Bændasamtökum
Íslands verði falið að halda málþing
til kynningar og fræðslu á lífrænni
landbúnaðarframleiðslu í samstarfi við
VOR (verndun og ræktun), landsfélag
framleiðenda í lífrænum búskap.
» Ímyndar- og
kynningarmál BÍ
Búnaðarþing 2014 leggur til stofnun
samráðshóps búgreinafélaga og BÍ
sem markar stefnu í ímyndar- og
kynningarmálum samtakanna.
Mikilvægt er að sem ríkastur
samhljómur sé í þeim málflutningi
sem hafður er uppi innan samtaka
bænda fyrir hönd íslensks
landbúnaðar og heildarhagsmunir
ávallt hafðir að leiðarljósi. Stjórn BÍ
falið að fylgja málinu eftir.
» Reglur um mengandi
starfsemi
Búnaðarþing 2014 leggur til að
ákvæði um 500 metra fjarlægðarmörk
landbúnaðarbygginga í reglugerð
um hollustuhætti 941/2002 verði
afnumin. Þegar byggt er á skipulögðu
landbúnaðarsvæði er eðlilegt að
ákvæði skipulagsreglugerðar liggi
til grundvallar þegar fjarlægðamörk
bygginga eru ákveðin. Stjórn
Bændasamtakanna vinni að
framgangi málsins.
» Álftir og gæsir
Búnaðarþing 2014 telur mikilvægt
að nú þegar verði dregið skipulega
úr tjóni af völdum álfta og gæsa
á ræktarlöndum bænda. Safnað
verði frekari upplýsingum um
tjón sem álftir og gæsir valda á
ræktarlöndum bænda. Á grundvelli
þeirra gagna verði ákveðið hvort
heimildarákvæði verði sett í lög um
tímabundna skotveiði á álft og gæs í
tilraunaskyni á ræktarlöndum bænda.
Bændasamtökunum verði falið
að vinna að málinu í samstarfi við
umhverfis- og auðlindaráðuneytið.
» Landbúnaðarháskólar
á Íslandi
Búnaðarþing leggur áherslu á að
sjálfstæði og rekstrargrundvöllur
landbúnaðarháskóla á Íslandi
sé tryggður. Mikilvægt er fyrir
íslenskan landbúnað og þróun
hans að í landinu séu öflugir skólar
sem sinna endurmenntun bænda,
starfsmenntanámi, háskólanámi og
rannsóknum í landbúnaði. Sjálfstæðir
og öflugir landbúnaðarháskólar eru
mikilvægur hlekkur í framþróun og
framtíð íslensks landbúnaðar.
Búnaðarþing 2014 leggst gegn
hugmyndum menntamálaráðherra um
samruna HÍ og LbhÍ. Búnaðarþing
hvetur stjórn BÍ til að leita allra leiða
til að tryggja áfram sjálfstæði LbhÍ.
Búnaðarþing telur eðlilegt að það
fjármagn sem menntamálaráðherra
er tilbúinn að veita til samruna HÍ og
LbhÍ fari í að styrkja rekstur LbhÍ án
þess að til þess samruna komi.
» Dýralæknaþjónusta
Markmið að bæta dýralæknaþjónustu
í dreifbýli og tryggja betur velferð
dýra. Nauðsynlegt er að endurskoða
dýralæknaþjónustu í þeim
landshlutum þar sem stærð vaktsvæða
hefur sýnt sig að hafa neikvæð
áhrif á velferð dýra. Nauðsynlegt
er að fjölga þjónustudýralæknum
og bakvaktarsvæðum til að tryggja
ásættanlegan viðbragðstíma
dýralækna og þar með velferð dýra.
Dæmi eru um að bændur hafi misst
bæði nautgripi og hross vegna þess
að dýralækni tókst ekki að komast
tímanlega þeim til aðstoðar. Til að
auka sveigjanleika og hagkvæmni
þyrfti að endurskoða vaktsvæði og
skoða hvort betra sé að skilgreining
þeirra komi fram í reglugerð en sé
ekki bundin í lögum.
Búnaðarþing 2014 skorar
á stjórnvöld að tryggja auknar
fjárveitingar til Matvælastofnunar
svo fjölga megi þjónustudýralæknum
og bakvaktarsvæðum dýralækna þar
sem nauðsynlegt er.
» Stefnumótun í
landbúnaði
Bændasamtökin og stjórnvöld
vinni stefnumótun fyrir íslenskan
landbúnað til lengri tíma.
Búnaðarþing 2014 leggur áherslu
á að unnin verði heildarstefnu- og
sóknaráætlun fyrir landbúnað á
Íslandi, sem byggi á stefnumótun
búgreinafélaganna og sé unnin í nánu
samstarfi við þau.
Stjórn BÍ óski eftir stefnumótun
frá búgreinafélögunum og taki
síðan upp viðræður við stjórnvöld
um opinbera landbúnaðarstefnu til
lengri tíma.
» Starfsskilyrði
landbúnaðarins
Búnaðarþing 2014 leggur áherslu
á að hafin verði undirbúningsvinna
vegna gerðar nýrra búvörusamninga,
með það að markmiði að efla
samkeppnishæfni, nýta sóknarfæri og
treysta afkomu bænda. Þingið telur
mikilvægt að fyrirkomulag tolla verði
hluti af samningum, enda eru þeir
ein af grunnstoðum þess að tryggja
rekstraröryggi landbúnaðarins.
Bændasamtök Íslands, í samráði við
þau búgreinafélög er málið varðar,
óski eftir viðræðum við stjórnvöld
um gerð nýrra búvörusamninga
Alls voru 39 þingmál sem lágu fyrir búnaðarþingi
þetta árið. Þinghald hófst sunnudaginn 2. mars
á Hótel Sögu og lauk að kvöldi þriðjudagsins 4.
mars. Hér undir er farið yfir afgreiðslu mála en
bent er á að nánari upplýsingar er að finna á vef
Bændasamtakanna, bondi.is. Þar eru jafnframt ræður
og fundargerðir aðgengilegar ásamt fleiri gögnum
sem tengjast Búnaðarþingi 2014.
Þórarinn Ingi Pétursson formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Mynd / TB
Guðný H. Jakobsdóttir, bóndi, Syðri-Knarrartungu og fulltrú frá Búnaðars-
amtökum Vesturlands. Mynd / TB
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð á setningarathöfn búnaðarþings í Hörpu. Mynd / HKr.