Bændablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 13

Bændablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 13
13Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014 Starfshópur um fyrirkomulag og framkvæmd refa- og minkaveiða hefur skilað skýrslu til umhverfis- og auðlindaráðherra. Hópurinn telur brýnt að bæta skipulag veiðanna en telur að nauðsynlegar umbætur rúmist innan ramma núgildandi laga. Meðal annars telur starfshópurinn mikilvægt að draga fram eðlismun refaveiða annars vegar og minkaveiða hins vegar. Bendir hópurinn á að uppruni, eðli og atferli þessara dýrategunda sé ólíkt sem og forsendur, tilgangur og markmið veiðanna. Er lagt til að sett verði skýr markmið fyrir veiðar á ref og mink sem mótuð verði í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Starfshópurinn telur að Umhverfisstofnun eigi að hafa áfram umsjón með og stjórn á opinberum aðgerðum sem ætlað er að hafa áhrif á stofnstærð og útbreiðslu villtra dýra. Sömuleiðis að sveitarfélög eigi að hafa áfram staðbundna umsjón og stjórn á aðgerðum innan sinna umdæma. Leggur hópurinn til að gerðir verði samningar milli ríkis og sveitarfélaga, til 3-5 ára í senn, um áherslur og fyrirkomulag veiða á minkum og refum. Einnig er lagt til aðreglugerð um refa- og minkaveiðar verði endurskoðuð. Loks er lagt til að komið verði á sérstökum samstarfsvettvangi hlutaðeigandi aðila um framkvæmd refa og minkaveiða í því skyni að auka samræmingu og skilvirkni. Dekkjainnflutningur 15% afsláttur af öllum dekkjum til 30. mars 2014 Eigum á lager flestar stærðir traktora-, vagna-, vinnuvéla- og vörubíladekkja. Einnig mikið úrval fólksbíla- og jeppadekkja. Jason ehf. Hafnarstræti 88 Akureyri Vinsamlegast hafið samband við Ármann Sverrisson 896-8462 e-mail jasondekk@simnet.is Tryggva Aðalbjörnsson 896-4124 TIL SÖLU Jarðir og fyrirtæki á Suðurlandi Jarðir: Jörð Staðsetning Verð Árbær Rangárvellir Tilboð Bjarkarland Eyjafjöll Tilboð Borg Þykkvibær 67 milljónir Efri-Þverá Fljótshlíð Seld Fosshólar Holtin 80 milljónir Gerðar Landeyjar 34 miljónir Hátún Landeyjar 65 milljónir Hávarðarkot Þykkvibær Tilboð Hellatún 1 Ásahreppur 55 milljónir Húnakot Þykkvibær 59 milljónir Jaðar Þykkvibær 28 milljónir Lindartún Landeyjar 65 milljónir Pula Holtin 90 milljónir Steinar 2 og 3 Eyjafjöll 48 milljónir Stórólfsvöllur (hluti ) Við Hvolsvöll Tilboð Svínhagi Rangárvellir 39 milljónir Vorsabær 1 ( hluti) Skeiðin Tilboð Fyrirtæki: Bifreiðaverkstæðið Bílvellir á Hvolsvelli Tilboð Gistiheimilið Brenna á Hellu Tilboð Varahlutaverslun Björns, Lyngási við Hellu 44 milljónir Þvottahúsið Rauðalæk Tilboð Höfum einnig til sölu 49.85 hluti í Kartöfluverskmiðju Þykkvabæjar hf, að nafnvirði kr. 21.000. Söluverð kr. 5.000.000,- Allar nánari upplýsingar og myndir má nálgast á heimasíðu okkar www.fannberg.is og á skrifstofu. FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími-4087-5028 ÞRÚÐVANGI 18- 850 HELLU Guðmundur Einarsson lögg. fasteignasali Jón Bergþór Hrafnsson viðskiptafræðingur Leggja til umbætur á refa- og minkaveiðum

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.