Bændablaðið - 06.03.2014, Side 8

Bændablaðið - 06.03.2014, Side 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. mars 2014 Fréttir Félag kúabænda í Eyjafirði heiðrar Kristján Gunnarsson fyrir mjólkureftirlitsstörf: Tókst að færa hlutina til betri vegar með „hæglætisfrekju" „Kristján Gunnarsson var einn af þeim mönnum sem fórnuðu sér fyrir starfið. Eiginkona hans hefur örugglega oft fundið fyrir því. Það var alveg sama hvenær hringt var í Kristján – alltaf var hann mættur til að kippa hlutum í lag, nýársdag og jólanótt og er ég alveg viss um að einhvern tíma hefur hann stokkið af stað úr matarboði og þvíumlíku, nánustu fjölskyldumeðlimum til lítillar gleði,“ sagði Trausti Þórisson á Hofsá, formaður Félags kúabænda í Eyjafirði. Félagið heiðraði Kristján fyrir störf sín á fundi í Hlíðarbæ nýverið, en hann sinnti störfum mjólkureftirlitsmanns á svæðinu um árabil. Kristján lærði rafvirkjun og tók þátt í uppbyggingu Mjólkursamlags KEA sem formlega var tekið í notkun sumarið 1980, en það varð til þess að hann réð sig til starfa þar sem viðgerðar- og eftirlitsmaður árið 1981. Sinnti hann mjólkureftirliti á samlagssvæðinu allt þar til síðsumars 2013. Þrettán tíma ferð á Hvanneyri til að taka próf Fram kom í máli Trausta að Kristján hefði verið einkar duglegur að bæta við sig kunnáttu sem nýttist honum í starfa, en hann hefur um árin sótt yfir 40 námskeið bæði hér heima og erlendis. Samkvæmt mjólkurreglugerð sem eitt sinn var í gildi var öllum eftirlitsmönnum gert að taka próf á Hvanneyri. Daginn sem leggja átti prófið fyrir var snarvitlaust veður, en Kristján barðist engu að síður suður yfir heiðar frá Akureyri, 13 tíma ferð, tók prófið og stóðst það með glans. Var hann sá eini sem tók prófið og varð þannig eini maðurinn hér á landi sem státað getur af því að kallast löggiltur mjólkureftirlitsmaður. Bara einu sinni hótað lífláti „Það að vera mjólkureftirlitsmaður felur í sér að vera með leiðindi. Það hefur Kristjáni aldrei tekist,“ sagði Trausti í ávarpi sínu. Oft hefði hann mætt þrjósku bænda sem ekki voru með hlutina á þann veg sem þeir áttu að vera, en Kristjáni tókst oftar en ekki að færa það sem aflaga fór til betri vegar – með hæglætisfrekju, eins og Trausti nefndi það. „Fyrir vikið ávann hann sér traust bænda og vinsældir, sem endurspeglast í því að honum hefur ekki nema einu sinni verið hótað lífláti í störfum sínum.“ Trausti nefndi að Kristján hefði lyft Grettistaki í öllu því er við kemur mjólkurgæðum á svæði MS-Akureyri, sem best sæist á fjölda þeirra viðurkenninga fyrir úrvalsmjólk sem veitt væru árlega. „Fyrir það og góða viðkynningu viljum við sýna þér þakklæti fyrir vel unnin störf í okkar þágu,“ sagði Trausti. /MÞÞ Málþingið Nýsköpun og framtíðarsýn í sveitum verður haldið í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri lauguardaginn 8. mars eða degi eftir Landsýn - vísindaþing landbúnaðarins. Málþingið verður opið öllum og vonast er til þess að sem flestir bændur láti sjá sig og allir áhugamenn um afurðaframleiðslu í sveitum. Einnig þeir sem hafa áhuga á byggðamálum almennt. Framsögumenn eru einvalalið, sérfræðingar á sínu sviði. Fyrirlestrarnir verða stuttir og skorinortir, og markmiðið að frjóar umræður skapist í kjölfar þeirra. Er gestum á Landsýn föstudaginn 7. mars bent á að hægt sé að slá tvær flugur í einu höggi með því að dvelja eina nótt í Borgarfirðinum og skella sér svo á nýsköpunarþingið á laugardeginum. Dagskrá ve rður á vegum Búdrýginda í Ársal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri laugardaginn 8. mars klukkan 13 – 16. Þá verða kaffiveitingar í hléi á vegum kvenfélagsins 19. júní. Dagskrárstjóri verður Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari Menntaskólans í Borgarnesi. Framsögumenn og erindi verða eftirfarandi: • Vilhjálmur Egilsson rektor á Bifröst. Ávinningur af nýjum námskeiðum í matvælarekstrarfræði á Bifröst. • Dominique Pledel Jónsson, Slow Food Reykjavík. • Slow food - íslenskar sveitir og samfélag. • Brynhildur Pálsdóttir hönnuður, Fundur bænda og hönnuða og Vík-Prjónsdóttir • Gildi hönnunar við vöruþróun og markaðssetningu. • Gunnþórunn Einarsdóttir, Matís. • Matís - matvælaþróun og nýsköpun • Arnheiður Hjörleifsdóttir, Bjarteyjarsandi. • Sjálfbær fortíð og fókus til framríðar • Davíð Freyr Jónsson, Arctic Seafood. • Arctic Seafood og eldhússmiðja í Borgarbyggð • Guðrún Bjarnadót t i r, meistaranemi við LBHÍ eigandi Hespu • Hespuhúsið - grasnytjar, ullarhandverk og fræðsla. Á myndinni afhendir Trausti Þórissonar á Hofsá, formaður Félags kúabænda fyrir skömmu. Landstólpi, Fóðurblandan og Lífland hafa öll hafið framleiðslu á kjarnfóðurblöndum sem eiga að stuðla að auknu fitumagni í mjólk. Þá Bústólpi býður sínum viðskiptavinum upp á fóðurblöndu úr sykurrófum sem hægt er að gefa með kjarnfóðurblöndum í sama skyni. Sláturfélag Suðurlands (SS) er að skoða sín mál hvað þetta varðar. Ástæðan er síaukin eftirspurn eftir fituríkum mjólkurafurðum sem kom berlega í ljós fyrir síðustu jól þegar Mjólkursamsalan (MS) þurfti að flytja inn írskt smjör í vinnsluvörur til að anna eftirspurn. Fulltrúar MS funduðu með kjarnfóðursölum fyrir skemmstu í því skyni að kanna leiðir til að auka fitumagn í mjólk. Á fundinum fór norskur sérfræðingur yfir þær aðgerðir sem gripið hefur verið til þar ytra, sem meðal annars felast í því að auka magn sykurrófa í fóðri og einnig að auka ákveðnum tegundum af húðaðri eða sérgerðri fitu í fóðrið. Með þessu hefur tekist að auka fitumagn í mjólk í Noregi. Vonir fóðurframleiðenda og -sala standa til þess að hið sama geti orðið uppi á teningnum hér á landi. Landstólpi brást við á síðasta ári Landstólpi réðst strax í nóvember í að setja á markað fóðurblöndu sem er ætlað að auka fituinnihald mjólkur. Sú blanda inniheldur um 20 prósent sykurrófur, sem eru mjög vel til þess fallnar að auka fituinnihald. Sævar Örn Gíslason hjá Landstólpa segir að til skoðunar sé að bæta hugsanlega enn meira í blönduna. „Hjá sumum bændum hefur þetta hentað mjög vel en hjá öðrum ekki. Það er fyrst og fremst sykur sem vantar í gróffóður eftir afar lélegt heyskaparsumar hér á Suðurlandi, og strax og fór að bera á skorti á mjólkurfitu á síðasta ári brugðumst við við með þessum hætti.“ Framleiðsla hafin hjá Líflandi Lífland hóf í síðustu viku framleiðslu á fóðurblöndum sem bætt hefur verið í efnum sem auka eigi fituinnihald í mjólk. Það kjarnfóður ætti að koma á markað á næstu vikum að sögn Rannveigar Hrólfsdóttur. „Þessi breyting nær til flestra kjarnfóðurblanda hjá okkur. Við erum að auka við efni í þeim sem fer í gegnum vömbina á kúm og eykur fituupptöku sem skilar sér í fituríkari mjólk. Þá höfum við líka aukið magn sykurrófa sem fara í blöndurnar.“ Hjá Líflandi vonast fólk til þess að breytinga í fituhlutfalli verði vart mjög fljótlega eftir að byrjað verður að gefa fóðrið. Það sé hins vegar möguleiki á að auka enn frekar við umrædd efni ef ekki næst tilætlaður árangur. Rannveig segir að þrátt fyrir að breytingarnar auki kostnað hjá fyrirtækinu hyggist það ekki hækka verð á kjarnfóðri. Gagnast einkum búum þar sem fituinnihald er lágt Hjá Fóðurblöndunni er að fara af stað framleiðsla á kjarnfóðurblöndum sem innihalda talsvert magn af sykurrófum, þurrfitu og hafkalki til að koma í veg fyrir súra vömb mjólkurkúa við mikla kjarnfóðurgjöf. Erlendur Jóhannsson, fóðurfræðingur hjá Líflandi, segir að þessar fóðurblöndur henti fyrst og fremst á þeim búum þar sem fituinnihald er lágt en sé minna gagnlegt þar sem fituinnihald er í meðallagi eða hátt. Þá sé líka ljóst að þessar fóðurblöndur verði talsvert dýrari en þær sem nú eru í boði, þar eð hráefni sem notuð eru í hana séu dýr. SS skoðar sín mál Elías Hartmann Hreinsson, deildarstjóri búrekstrardeildar SS, segir að ekki sé búið að taka ákvörðun um það hjá fyrirtækinu hvort búnar verði til kjarnfóðurblöndur til að auka fituinnihald mjólkur. Fleiri leiðir séu til í þeim efnum. Ekki hafi verið eftirspurn eftir slíkum kjarnfóðurblöndum í hópi viðskiptavina SS fram til þessa en málið verði skoðað. Bústólpi býður viðskiptavinum sínum sykurrófuhrat til að gefa meðfram öðru fóðri. Sömuleiðis hyggst fyrirtækið kanna möguleika á að bæta húðaðri fitu inn í kjarnfóðurblöndur hjá sér. /fr Reyna að auka fitu í mjólk með breytingum á kjarnfóðri Landbúnaðarháskóli Íslands 8. mars: Málþing um nýsköpun og framtíðarsýn í sveitum Hvanneyri föstudaginn 7. mars: Landsýn – vísindaþing landbúnaðarins Ráðstefnan Landsýn – vísindaþing landbúnaðarins verður haldin á Hvanneyri í Borgarfirði föstudaginn 7. mars 2014. Ráðstefnan með svipuðu sniði var haldin í mars 2013. Aðstandendur ráðstefnunnar eru MAST, Veiðimálastofnun, Landgræðsla ríkisins, Skógrækt ríkisins, Hólaskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands. Skráning er á vefsíðu lbhi.is Fundarstjóri verður Hjalti Andrason en dagskrá vísindaþingsins er sem hér segir: 10:00 Inngangur. 10:10 Ný lög um dýravelferð – hvað er nýtt Þóra Jóhanna Jónasdóttir frá Matvælastofnun. 10:50 Kaffihlé. 11:10 Ástand fjárhúsa á Íslandi - Sigtryggur V. Herbertsson frá Matvælastofnun. 11:30 Hvernig mælir maður dýravelferð? Þóra Jóhanna Jónasdóttir frá Matvælastofnun. 11:50 Samantekt um rannsóknir á útigangi hrossa - Sigtryggur V. Herbertsson frá Matvælastofnun. 12:10 Hádegishlé 13:00 Áverkar í munni íslenskra keppnishesta - Sigríður Björnsdóttir frá Matvælastofnun. 13:20 Munnur hestsins við frumtamningu - Christina Mai frá Háskólanum á Hólum og Sigríður Björnsdóttir frá Matvælastofnun. 13:40 Þróun bóluefna gegn lungnapest í sauðfé - Þorbjörg Einarsdóttir, Sigríður Hjartardóttir, Ólöf Sigurðardóttir og Eggert Gunnarsson frá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði. 14:00 Áhrif Startvac bóluefnis á júgurheilbrigði mjólkurkúa - Grétar Hrafn Harðarson og Jóhannes Sveinbjörnsson frá Landbúnaðarháskóla Íslands. 14:20 Ræktun kregðubakteríu og þróun bóluefnis - Sigríður Hjartardóttir, Þorbjörg Einarsdóttir, Ólöf Sigurðardóttir og Eggert Gunnarsson frá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði. 14:40 Fyrirspurnir og umræður.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.