Bændablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 23
19Bændablaðið | Fimmtudagur 14. ágúst 2014 Alþjóðleg ráðstefna – 4th North Atlantic Native Sheep and Wool Conference: Ráðstefna á Blönduósi um sauðfé og ull Dagana 4.-8. september næstkomandi verður haldin á Blönduósi fjórða ráðstefnan um norður-evrópskt sauðfé, ull og ullarvinnslu. Aðild að henni eiga, auk Íslands, Færeyjar, Grænland, Hjaltlandseyjar, Noregur, Orkneyjar og Suðureyjar. Fyrirlesarar koma víða að en flestir erlendu þátttakendurnir verða frá Norður-Evrópu. Jafnframt verður lista- og handverkssýning með munum úr ull o.fl. Þá verður farið í kynnisferðir til að skoða sauðfé og skilyrði til sauðfjárræktar hér á landi. Sameiginleg arfleifð sauðfjárkynja Íbúar í löndum og eyjum Norður- Atlantshafs eiga mjög sterka, sauðfjárkynjum sem heyra til norður- evrópsku stuttrófufé (dindilfé). Þar er einnig sterk hefð fyrir nýtingu ullar og skinna í ýmsum tilgangi og ber þar hæst nýting til klæða en síðar í handverki og list. Fyrir nokkrum árum fóru Helga Tulloch í Orkn- eyjum, Karin F. Svarstad í Noregi, og Ólafur R. Dýrmundsson á Íslandi af stað með þá hugmynd að mynda tengslanet þess fólks sem býr í þessum löndum og vinnur við sauðkindina og úr afurðum hennar. Niðurstaðan var að halda ráðstefnu til þess að skoða þessar hefðir. North Atlantic Native Sheep and Wool Conference var haldin í fyrsta skipti á Orkneyjum vorið 2011, árið 2012 var hún haldin á Hörðalandi í Noregi og Hjaltland varð fyrir valinu haustið 2013. Haustið 2014 verður ráðstefnan haldin á Íslandi, og varð Blönduós fyrir valinu. Húnavatnssýsla er þekkt fyrir hefðir í textíl, og á Blönduósi eru Kvennaskólinn á Blönduósi, Heimilisiðnaðarsafnið sem er eina sinnar tegundar hér á landi og Ullarþvottastöð Ístex. Einnig er norðvesturland fjárflesta svæði landsins og því var valið að halda ráðstefnuna á réttatíma snemma hausts. Stuttrófu sauðfé til umræðu Markmið ráðstefnunnar er að fólk sem tengist stuttrófukynjum sauðfjár á einn eða annan hátt hittist og miðli reynslu og menningu í sambandi við fjárkynin, ullina og menningar- landslagið í kringum umhirðuna. Hefur það verið gríðarlega lærdóms- ríkt. Því var ákveðið að þessi ráð stefna á rannsóknarverkefnum sem kæmi fólkinu í þessum löndum vel. Þetta er meira en bara ráðstefna. Hún er orðinn vettvangur þar sem þátttakendur frá Íslandi, Færeyjum, Grænlandi, Hjaltlandi, Orkneyjum, Suðureyjum, Mön (á Írlandshafi) og Noregi miðla reynslu sinni innan sauðfjárræktar, sögu, ullarframleiðslu, textílhandverki og menningarlandslags. Komið hefur í ljós að víðtæk þekking, bæði vísindaleg, fagleg svo og almenn þekking, leynist í þeim hópi sem hefur sótt ráðstefnuna á undanförnum árum. Markmiðið með þessari ráðstefnu er að draga þekkinguna saman og nýta upplýsingarnar til rannsókna. Einnig leita eftir hugmyndum að rannsóknarverkefnum sem nýtist fólkinu sem býr við stuttrófufé. Ráðstefnan færist á milli landa til að allir geti átt þess kost að kynnast störfum, menningu og vinnslu sauðfjárafurða hvers lands fyrir sig. Bændur og textíl handverks fólk í þessum löndum hafa sömu markmið en veðurfar og landslag þeirra er mjög ólíkt. Ekki er vafi á að ráðstefnurnar hafa verið lærdómsríkar, bæði með fyrirlestrum og heimsóknum, á hverjum stað fyrir sig. Ráðstefnan á Blönduósi saman- stendur af fyrirlestrum fyrir hádegi, kynningum á handverki og vinnuaðferðum í sauðfjárbúskap. Eftir hádegi eru m.a. heimsóknir í réttir og til bænda. Fyrirtæki svo sem Ístex, Ullarselið á Hvanneyri, Þingborg í Flóa og Gestastofa sútarans í Skagafirði verða heimsótt, sem og Þingeyrakirkja, en þar er talið að Orkneyinga saga hafi verið skrifuð. Einnig verða sýningar á handverki, þjóðbúningum og miðaldabúningum. Sauðfé skoðað í réttum Í ferðalögum verður keyrt norður um Mosfellsbæ, Hvanneyri, Þing, Vatnsdal, Svínadal, Skagafjörð og yfir Kjöl þar sem sýnd verða beitilönd og menningarlandslag þess fjár sem gestirnir sjá í ferð sinni í réttum. Allt þetta gefur gestum frábært tækifæri til að kynnast sauðfjárræktinni, úrvinnslunni, menningarlandslagi okkar og ekki síst búháttum á svæðinu. Allt uppfyllir það með sínum hætti markmið ráðstefnunnar og gefur þátttakendum ógleymanlegar minningar héðan frá Íslandi. Aldrei má vanmeta þær hefðir og menningu sem hafa þróast á þessum stöðum og er það mjög verðmætt fyrir þátttakendur að upplifa slíkt hvor hjá öðrum. Í undirbúningsnefnd eru fulltrúar frá eftirfarandi aðilum: • Textílsetur Íslands tók að sér verkefnið 2012 og hefur • Þekkingarsetrið á Blönduósi kemur að skipulagi og um sóknum um styrki. Þekkingarsetur og Textílsetur Íslands hafa nýlega undirrituð samstarfssamning um framkvæmd verkefna á sviði textíls og fellur undir- búningsstarf við ráðstefnuna undir þann samning. • Bændasamtök Íslands hafa faglega umsjón og annast leiðsögn, þýðingar, textaskrif og ritstjórn ráðstefnugagna. • Ullarselið á Hvanneyri kemur að skipulagi, faglegri umsjón og móttöku gesta. Ýmsir aðrir aðilar styðja einnig við ráðstefnuna, svo sem Ístex hf, Landssamtök sauðfjárbænda, Landbúnaðarháskóli Íslands, Gestastofa sútarans og Þingborg. Nánari upplýsingar fást á woolconference2014@gmail.com og textilsetur@simnet.is. Aðalskrifstofa - Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes Söluskrifstofa - Vesturvör 29 - 200 Kópavogur Netfang - sala@limtrevirnet.is Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 limtrevirnet.is Yleiningar fyrir íslenska veðráttu Hjá Límtré Vírnet færðu léttar stálsamlokueiningar með polyúreþan- eða steinullareinangrun á milli. Henta í útveggi og þök, milliveggi og loft, kæli- og frystiklefa, fyrir heimili og fyrirtæki. Raka- og vindþéttar, einangra vel, auðþrifnar, iIltendranlegar, gæðaprófaðar, léttar, fljótuppsettar, þaulreyndar og hagkvæmar. Kynntu þér Yleiningar á limtrevirnet.is. Amma mús – handavinnuhús Ármúla 18, 108 Reykjavík • Sími 511 3388 Opið mán - fös 9 - 18, Lokað er á laugardögum til 31. ágúst. Hannyrða- vörur í úrvali Bragaþing 2014, landsmót hagyrðinga, verður haldið á Hótel Heklu á Brjánsstöðum á Skeiðum laugardagskvöldið 20. september næstkomandi og hefst með borðhaldi kl. 19.00. Verð fyrir matinn (forrétt, aðalrétt og eftirrétt) verður um 7.000 krónur á mann. Verð fyrir gistingu með morgunverði á tvíbýli er 7.300 krónur á mann á og aukanótt 5.000 kr. en á einbýli 11.100 kr. á mann og aukanótt 5.500 kr. á mann. Þátttaka tilkynnist Guðmundi Stefánssyni á netpóstfangið gummiste@hive.is fyrir miðvikudags kvöldið 27. ágúst næstkomandi. Taka skal fram fjölda þátttakenda í mat og í gistingu ásamt fjölda gistinátta. Frekari upplýsingar eru gefnar í síma 899-9623. Bragaþing 2014: Landsmót hagyrðinga

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.