Bændablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 32
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. ágúst 2014 liklegur@internet.is Hjörtur L. Jónsson Can-Am sexhjól með magnaða sjálfstæða fjöðrun á hverju hjóli Allt frá því að ég sá kynningar- myndband á YouTube af Can-Am sexhjóli fara yfir stórgrýtisurð hef ég beðið eftir að fá að prófa gripinn. Biðinni er nú lokið, þar sem mér gafst kostur á að prufuaka tækinu fyrir skömmu í boði Ellingsen. Í stuttu máli varð ég alveg heillaður af fjöðruninni við þær aðstæður sem ég prófaði hjólið. Ótrúlega kraftmikil V2 1000 cc vél Við Bláfjallaafleggjara er gömul mótorkrossbraut sem er virkilega óslétt, grýtt og með kröppum beygjum þar sem ég reynsluók hjólinu fyrir skemmstu. Það sem mótorkrossmenn kalla „vúbsa“ eru mjög stór þvottabretti sem eru allt að metra djúpar öldur hver á eftir annarri og þarna ók ég hring á hjólinu og varð hreint hissa á hversu vel fjöðrunin var að fara vel með mig. Næst var það hliðarhalli. Í slíkum halla er fjórhjólum og sexhjólum gjarnt að leita mikið undan hallanum, en þetta hjól leitaði merkilega lítið undan hallanum. Næst var það krafturinn, en upp brattan kant var magnað að finna hvernig öll sex hjólin gáfu grip til að komast upp á brúnina. Sjálfstæð fjöðrun hjólanna sex virkaði vel í grjótinu Næst var að fara yfir klappir með stórum steinum og mjög hrjúfu yfirborði. Þarna kom vel í ljós munurinn á hefðbundnum sexhjólum sem ég hef prófað, en þessi mikla fjöðrun gaf alltaf grip og var ég ekki var við nema einu sinni að hjól í öftustu röð fór á loft, en ef ég hefði tekið úr splitti sem hægt er að fjarlægja hefði ég líklega ekki séð það hjól fara á loft. Splitti þessi eru undir pallinum og með því að fjarlægja þau geta öftustu hjólin farið enn neðar við mjög torfærar aðstæður. Miðað við þessa góðu fjöðrun ætti þetta sexhjól að fara betur með gróið land þar sem að öll hjólin eru að taka jafnt á og þar af leiðandi ætti það að jafna betur út þunga hjólsins á hvern fersentimetra. Þar sem sexhjól fara yfir gróið land hafa öftustu hjólin verið að særa gróður þegar beygt er, en á Can-Am 1000 er drifið ekki eins þvingað og mun auðveldara er að beygja (sérstaklega ef miðað er við gömlu 500 Polaris-sexhjólin sem eru keðjudrifin sem eru svo klossuð að erfitt er að beygja þeim). Greinilega framleitt vestanhafs miðað við fjölda varúðarmiða Það á ekki að þurfa að minna neinn á að nota aldrei fjórhjól eða sexhjól nema klæðast viðeigandi hlífðarbúnaði. Sjálfur hef ég það fyrir reglu að fara ekki á fjórhjól, mótorhjól eða sexhjól nema með hjálm og í brynju. Brynju tel ég vera mikilvægasta öryggisbúnað sem nota ætti á fjórhjóli og sexhjóli og væri ég beðinn um að flokka öryggisbúnað fjór- og sexhjóla væri það eftirfarandi: 1. Brynja. 2. Hjálmur. 3. Góðir skór. Á Can-Am sexhjólinu sem prófað var eru um 10 varúðarmiðar sem eru skyldulesning áður en ekið er af stað, þessir miðar eru ekki til skrauts þeir eru þarna af gefnu tilefni. Hentar við erfiðar aðstæður Miðað við þennan stutta prufuakstur tel ég þetta sexhjól mikla framþróun fyrir þá sem búa við erfiðar aðstæður og þurfa að sinna vinnu eins og girðingarvinnu þar sem er jafnan mikið þýfi, grýtt landslag og blautt land. Einnig tel ég þetta sexhjól henta vel fyrir hreindýraveiðimenn sem þurfa að sækja bráð sína en vilja valda sem minnstum gróðurskemmdum, þar sem flotið í hjólinu er mjög gott. Það eina sem ég get sett út á varðandi hjólið er að það vantar sárlega á það flautu, svo mætti alveg vera spegill á hjólinu. Can- Am Outlander 1000 er torfæruskráð hjól og kostar frá 3.990.000 án nokkurra aukahluta nema hvað að öll sexhjól koma með dráttarspili. Allar nánari upplýsingar um hjólið má finna á vefsíðunni www. ellingsen.is. Allir svona miðar á hjólinu eru þar af Eigum allar síur í New Holland og JCB á lager Skeiðarás 3 Garðabær Sími 5272600 velavit@velavit.is Varahlutir - Viðgerðir sérhæfum okkur í JCB Hydrema Iveco New Holland og Case Vélavit Oftast ódýrastir! JCB Tilboð óskast í ríkis- og eyðijörðina Hofstaði í Reykhólahreppi Jörðin Hofstaðir er talin vera 387,5 ha samkvæmt ósamþykktri endurskoðaðri loftmynd Nytjalands. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands – fasteignaskrá eru skráð þrjú hús (fjárhús, geymsla og rafstöð) á jörðinni en þau munu vera ónýt. Þá eru gömul tún 10,9 ha en skv. túnakorti eru þau 3,61 ha. Innan landamerkja Hofstaða er hluti Skálanesfjalls. Undirlendið er landræma með Gufufirði sem hallar til austurs. Náttúrufegurð er þarna mikil. Samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands – fasteignaskrá er brunabótamat samtals kr. 6.120.000,- og fasteignamat fasteigna er kr. 1.279.000,-. Réttur til efnistöku umfram búsþarfir, sem og öll vatns- og jarðhitaréttindi eru undanskilin við söluna, sbr. 40. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík í síma 530 1400. Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði. Sjá einnig nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa http://www.rikiskaup.is. Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík fyrir kl. 10.00 þann 9. september 2014 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska. Vélabásinn

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.