Bændablaðið - 14.08.2014, Blaðsíða 26
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. ágúst 2014
Fróðleiksbásinn
Vilmundur Hansen þjóðfræðingur og garðyrkjufræðingur
Í íslensku flórunni er að finna
nokkrar fallegar trjá- og runna-
tegundir sem rækta má í görðum
og við sumarbústaðinn. Tré og
runnar sem vaxa af sjálfsdáðum
í náttúrunni þola yfirleitt illa að
vera flutt í garða og því borgar
sig sjaldnast að taka plöntur úr
náttúrunni þar sem þær vaxa.
Auk þess eru sumar plöntur
friðaðar og óheimilt að raska þeim,
skemma eða flytja úr stað. Þeir sem
vilja íslenskar tegundir í garðinn
ættu að leita til gróðrarstöðva, taka
græðlinga eða rækta þær upp af fræi.
Birki Vaxtarlag birkisins er
breytilegt, allt frá jarðlægum og
kræklóttum runnum til beinvaxinna
trjáa sem hafa náð um 15 metra
hæð. Birkið verður 70 til 80 ára og
er nægjusamt en sólelskt tré sem
nær bestum þroska í frjósömum
jarðvegi og skjóli. Blöðin eru góð
í te, gefa gulan lit og fá fallegan
haustlit. Birkivendir þóttu ágætir
til að hýða óþekk börn.
Úr birki má tappa birkisafa og
brugga úr honum birkivín. Tré sem
tappa skal safa af verða að vera um
20 sentímetrar í þvermál. Bora skal
10 til 12 sentímetra djúpa holu í
tréð, stinga trekt eða röri í gatið og
safna safanum í ílát. Til að brugga
20 lítra af birkivíni þarf til að byrja
með 18 lítra af safa, 2 kíló af sykri
og ger sem blandað er saman. Þetta
er látið standa í tæpa viku. Því
næst er 2 lítrum af birkisafa og 2
kílóum af sykri bætt út í. Blandan
er látin gerjast í þrjár vikur áður
en gerstoppari er settur út í. Eftir
um það bil viku hefur vínið fallið
og óhætt er að setja það á flöskur.
Blæösp Hægvaxta, einstofna
tré sem getur náð 10 til 15 metra
hæð. Harðgert, sólelskt tré sem
þolir samt nokkurn skugga og þrífst
best á skjólsælum stað. Blæöspin
er meðal annars skemmtileg fyrir
þær sakir að lauf hennar skrjáfar
í vindi. Fremur fágæt á landinu,
aðeins fimm vaxtarstaðir þekktir.
Á hverjum stað vex aðeins einn
einstaklingur, klónn, og af því að
blæöspin er sérbýlistré, annaðhvort
karltré eða kventré, eru litlar líkur á
að hún geti fjölgað sér með fræfalli
hérlendis nema að mannshöndin
komi þar til hjálpar. Blæösp er aftur
á móti dugleg að breiðast út með
rótarskotum, sem auðvelt er að
stinga upp og gera að sjálfstæðum
trjám.
Einir Íslenski einirinn er
eina barrtréð sem vex villt
í íslenskri náttúru. Hann er
seinvaxinn, sígrænn, jarðlægur
eða hálfuppréttur runni. Einir er
sólelskur og kann illa við sig í
skugga en er nægjusamur á jarðveg.
Hentar vel í ker. Könglarnir eða
berin dökkblá. Þurrkuð og mulin
eru berin sæt á bragðið og þykja
gott krydd með villibráð.
Fjallavíðir Jarðlægur runni, 10
til 20 sentímetrar á hæð. Algengur
um allt land og afar lífseigur. Aldin
kvenblómanna eru gráloðin og
þekkjast á því frá loðvíði sem hefur
snoðin aldin. Tilvalin þekjuplanta
innan um grjót.
Fjalldrapi Algengur um allt um
land. Hann líkist smávöxnu birki,
enda ættingi þess. Fjalldrapi er
hægvaxta, jarðlægur og lágvaxinn
runni, 10 til 60 sentímetrar á
hæð. Blöðin fá á sig fallegan
koparrauðan haustlit. Vex gjarnan
í fjallshlíðum eða samfelldum
fjalldrapamóum á láglendi og
hentar vel í steinhæðir. Harðgerð
og nægjusöm planta. Áður fyrr var
fjalldrapi notaður sem tróð undir
torf í þökum torfbæja því börkur
hans fúnar seint og hlífði viðnum
undir torfinu.
Blendingur af birki og fjalldrapa
nefnist skógarviðarbróðir.
Glitrós 50 til 150 sentímetrar
á hæð. Greinarnar bogsveigðar
eða slútandi. Blómin bleik. Aldinið
er kringlótt og rauðleitt. Glitrós
vex villt í Kvískerjum í Öræfasveit,
sú eina á landinu og er alfriðuð
samkvæmt náttúruverndarlögum.
En græðlingaplöntur af henni eru af
og til fáanlegar í garðplöntustöðvum.
Gulvíðir Breytilegur í útliti, ýmist
lágvaxinn runni eða margstofna
lítið tré. Fær gullgulan haustlit. Þarf
nokkra umhirðu til að vera falleg
garðplanta. Seyði af víðilaufi eða
víðiberki er gott verkjalyf sem þykir
styrkja ónæmiskerfið.
Strandavíðir er ræktunar afbrigði
sem komið er út frá gulvíðitré sem
óx í heimilisgarðinum í Tröllatungu
við Steingrímsfjörð um 1960. Hann
er þéttvaxinn, með glansandi, fremur
smáum og mjóslegnum laufum.
Fínlegur og mjög harðgerður.
Brekkuvíðir er blaðfallegt
afbrigði af gulvíði, kræklóttur runni
eða lítið tré. Fremur skuggþolinn
og auðveldur í ræktun. Hentar vel í
limgerði en er nokkuð maðksækinn,
einkanlega sé mikið á hann borið.
Grasvíðir/smjörlauf Smávaxinn
og jarðlægur runni, 1 til 10 sentímetrar
á hæð. Kvenreklarnir og reklahýðin
rauð og áberandi á vorin. Harðgerður
og algengur í holtum og móum um
allt land. Fallegur í steinhæðir.
Þessi lágvaxni runni hefur
gengið undir mörgum nöfnum og
eiga þau flest það sameiginlegt að
lúta að vaxtarlagi hans og því að
þetta þótti afbragðs beitarplanta.
Nöfnin dvergvíðir og grasvíðir lúta
að vaxtarlaginu en nöfn eins og
geldingalauf, sauðkvistur, smjörlauf
og kostvíðir benda á gildi plöntunnar
til beitar. Einnig eru þekkt nöfnin
kotúnslauf og kotungslauf.
Hreggstaðavíðir Blendingur
milli viðju og brekkuvíðis.
Ársprotarnir eru gulbrúnir og
laufið fagurgrænt. Harðgerður,
vindþolinn, hraðvaxta og hentar
í skjólbelti. Síðustu ár hefur mjög
borið á ásókn ryðsvepps, sem gerir
runnana fremur ljóta og leiðinlega
síðsumars.
Loðvíðir Allt frá því að vera
jarðlægur og upp í 1,5 til 2 metrar
á hæð. Blómstrar snemma á vorin,
karlreklarnir með skærgulum og
áberandi frjóhirslum. Blöðin loðin
á efra og neðra borði. Harðgerður,
vind- og seltuþolinn.
Inúítar notuðu loðvíði til að lina
tannverk, stöðva blæðingar og lina
niðurgang.
Reyniviður Ýmist einstofna
eða margstofna tré, allt að 15 metra
hátt með sléttum berki. Þrífst best
í frjóum jarðvegi og ekki of rökum
eða þéttum. Blöðin fjöðruð og fá
rauðan haustlit. Blómgast hvítum
blómum í júní og fær falleg rauð ber
á haustin. Þolir ágætlega skugga en
er viðkvæmur fyrir reyniátu. Varast
ber að gras nái að vaxa að stofni
ungra plantna vegna þess að slíkt
truflar vöxt þeirra og getur valdið
rótarhálsfúa. Verður 60 til140 ára.
Berin þóttu góð við þvagblöðrusteini
og saft af þeim er sögð þvaglosandi
og hægðadrífandi.
Þyrnirós Þyrnóttur runni,
jarðlægur en getur orðið allt að
einn metri á hæð. Sjaldgæfur
en finnst á nokkrum stöðum á
landinu. Blómin hvít, blómstrar
í júlí. Aldinið hnöttótt og dökkt.
Harðgerð og seltuþolin. Fjölgar
sér með neðanjarðarrenglum. Vex
í gras- og lyngbrekkum og grýttum
fjallshlíðum. Er alfriðuð samkvæmt
náttúruverndarlögum.
Tré og runnar í íslenskri flóru
Ber á ilmreyni.
Blæösp.
Birki með reklum.
H a u s t i ð n á l g a s t
www.velfang.is velfang@velfang.is
Fr
um
-
w
w
w
.f
ru
m
.is
Kuhn taðdreifarar Brandt haughrærur og mykjudælurKverneland plógar Thaler liðléttingar
Tanco rúlluskerar og rúllugreipar
BvL V-Mix heilfóðurblandarar
Redrock haugsugur og mykjudælur