Frjáls Palestína - 01.11.2010, Síða 1
FRJÁLS PALESTÍNA 1
Í samhljóma ályktun Alþingis 18. maí 1989, sem áður hafði verið samþykkt
einróma í utanríkismálanefnd Alþingis
sagði: „Alþingi leggur áherslu á að við-
urkenna beri sjálfsákvörðunarrétt pal-
estínsku þjóðarinnar og tilverurétt Ísra-
elsríkis. Einnig ber að viðurkenna rétt
pal estínskra flóttamanna til að snúa aftur
til fyrri heimkynna sinna í samræmi við
margítrekaðar ályktanir Sameinu þjóð-
anna.“
Í sjálfsákvörðunarrétti þjóðar felst ekki
síst rétturinn til að kjósa og til að velja
sér stjórnarhætti og stjórnvöld.
Íbúar herteknu svæðanna á Gaza og
Vesturbakkanum að meðtalinni Aust ur-
Jerúsalem fengu að kjósa í sveitarstjórn-
arkosningum árið 2005 og síðan í þing-
kosningum árið 2006.
Í kosningunum 2005 kom til sögunnar
nýtt stjórnmálaafl sem fram að því hafði
starfað á trúarlegum grunni að samfé-
lagshjálp og skapað sér vinsældir. Þetta
voru Hamas-samtökin sem stofnuð voru
1987, sama ár og Félagið Ísland-Palest-
ína, og sama ár og Intifada, uppreisnin
gegn hernáminu, hófst. Hamas-samtök-
in viðurkenndu með stjórn málaþátttöku
sinni grunninn að sam félagsskipaninni
sem á rót í Osló aryfirlýsingu Frelsis-
sam taka Palestínu, PLO og Ísraelsríkis.
Þetta var stórt skref fyrir Hamas, því að
með þessu viðurkenndu þau í raun til-
Málgagn Félagsins Ísland-Palestína – 1. tbl. 22. árg. – Nóvember 2010
Eftir
Svein
Rúnar
Hauksson
PALESTÍNA
Frjáls
Virðum við sjálfsákvörðunar-
rétt palestínsku þjóðarinnar?
vist Ísraelsríkis og tveggja ríkja lausnina
svokölluðu.
Í kosningum til Palestínska löggjafar-
þingsins (PLC) árið 2006 fengu Hamas
samtökin 44% en Fatah 41%. Þetta var
erfiður biti að kyngja fyrir Fatah sam-
tökin sem borið höfðu höfuð og herðar
yfir aðra og leitt heildarsamtök Palestínu-
manna, PLO, frá stofnun þeirra og gera
enn. Með þessum kosningasigri fékk listi
Hamas samtakanna, Breytingar og um-
bætur, um 60% þingsæta.
Abbas forseti fól sigurvegaranum, Is-
mail Haniyeh, stjórnarmyndunarumboð,
Fat ah fékkst ekki til að mynda þjóðstjórn
í fyrstu, en hún kom meðal annars með
þátttöku vinar okkar dr. Mustafa Barg-
houthi. Síðan fór allt í loft upp í júní 2007
þegar kom til vopnaðra átaka á milli
Hamas og Fatah, eða öllu heldur á milli
öryggissveita stjórnvalda (Hamas) og
öryggissveita sem tengdust Abbas for-
seta og Fatah. Fyrir opnum tjöldum hafði
Bandaríkjastjórn borið fé og vopn á síð-
arnefnda aðilann og herþjálfað sveitir til
öryggis- og löggæslu.
Að mati hóps rannsóknarblaðamanna
tímaritsins Vanity Fair var hér um að ræða
býsna opinskáa ógnun við löggæslu vald
Framhald á bls. 2
Sveinn Rúnar Hauksson læknir, formaður Félagsins Ísland-Palestína, þiggur
minjagrip úr hendi Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínsku yfirvaldanna
á Gaza. Fundur þeirra fór fram sunnudaginn 10. október 2010 að viðtöddum
nokkrum ráðherrum, borgararstjóra Gaza-borgar og varaborgarstjóra, auk
Hazim Shawa, forstöðumanns Gervifótastöðvarinnar.