Frjáls Palestína - 01.11.2010, Blaðsíða 6
6 FRJÁLS PALESTÍNA FRJÁLS PALESTÍNA 7
Í byrjun árs 2005 var efnt til sniðgöng-uherferðar gegn Ísrael en um 170 fé-
lagasamtök (NGO) gáfu út sameigin-
lega yfirlýsingu um herferð þar sem ríki
og einstaklingar út um allan heim voru
hvött til að sniðganga Ísrael á menning-
ar, menntunar og viðskiptalegu sviði. Í
yfirlýsingunni voru sett fram þrjú megin
markmið fyrir þessari herferð en þau eru:
1) Að Ísrael hætti hernámi og landráni á
löndum Araba og að Ísrael rífi niður að-
skilnaðarmúrinn.
2) Að Ísrael tryggi að Arabar í Ísrael fái
full réttindi og að jafnrétti sé tryggt.
3) Ísrael skal tryggja og viðurkenna
rétt palestínskra flóttamanna til að snúa
til síns heima og fylgi því ályktun SÞ
númer 194.
Þetta ákall til friðar kom ári eftir að
Alþjóðadómstólinn í Haag úrskurðaði
að aðskilnaðarmúrinn sem Ísrael er að
byggja á palestínsku landsvæði væri
ólöglegur. Markmiðið með þessu er að
hvetja aðila hvar sem er í heiminum að
taka til friðsamlegra aðgerða gegn her-
náminu og með samstilltu átaki er von á
því að Ísrael gefi eftir þrýstingi og fari að
virða mannréttindi og alþjóðalög.
Aðferðir Ísraelsmanna hafa lengi bor-
ið keim af aðferðum sem notaðar voru
í aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku en
landnemar Ísraels hafa hertekið bestu
ræktunarlöndin, helstu vatnslindir og stór
skert ferðafrelsi Palestínumanna með
því að leggja vegi, múra og hindranir á
víð og dreif um Vesturbakkann. Ísraels-
menn hafa byggt sér vegakerfi á Vest-
urbakkanum sem Palestínumenn mega
alls ekki koma inn á og er aðeins ætlast
til þess að Ísrelsmenn noti það. Í dag hef-
ur múrinn t.d. innlimað helstu vatnslind
Palestínumanna inn í Ísrael og umlukið
margar borgir algjörlega svo það er að-
eins ein leið út úr þeim.
Þrátt fyrir að ANC & Mandela notuðu
vopnaða baráttu í Suður-Afríku virt-
ist það ekki duga til að brjóta niður her-
námið í Namibíu og aðskilnaðarstefnuna
sem var við lýði! Það var ekki fyrr en al-
þjóðlegur þrýstingur varð að veruleika
Eftir
Yousef
Tamimi
að eitthvað fór að gerast í málefninu en
skilaboðin til yfirvalda S-Afríku voru ein-
föld: Ekkert menningarsamstarf, engin
viðskipti, engir Ólympíuleikar eða íþrótt-
asamstarf – fyrr en hernámið og aðskil-
naðarstefnan heyrðu sögunni til.
Eftir áralanga baráttu í Suður-Afríku
féll aðskilnaðarstefnan og jafnrétti var
sett á laggirnar og við vonum að með
þessari baráttu verður raunin sú sama.
Við getum ekki fallist á það að lifa hér
á 21. öldinni vitandi það að ríki sem við
teljum vera með mestu ríkjum heims sé
að stunda grimman aðskilnað, ólöglegt
hernám og myrði saklausa borgara á
hverjum degi.
Félagið Ísland-Palestína svaraði ákalli
þessara hreyfingar og höfum við reynt
að kynna fyrir fólki hve mikilvægt það er
að sniðganga Ísrael og hvað það getur
leitt af sér. Á Íslandi er ágætis fjöldi af ís-
raelskum vörum og samkvæmt Hagstofu
Íslands voru fluttar inn vörur frá Ísrael árið
2009 fyrir 732,5 milljónir króna og þar af
vega grunnefni til efnaiðnaðar, grænmeti,
ávextir og ýmsar vélar og samgöngutæki
þyngst. Þær ísraelsku vörur sem standa
almenningi til boða í verslunum eru t.d.
avókadó og greipaldin. Mikilvægt er að
varast þær vörur sem merktar eru „Pa-
lestinian Produce“ eða jafnvel „Product
of Palestine“ því þær eru oftast fram-
leiddar af ísraelskum landræningjum á
herteknu svæðunum.
Meðal þeirra vara sem finnast í dag
eru fersk krydd (tímían, basilikum, kór-
íander, o.s.frv.) í kælideild Bónus undir
vörumerkinu King’s. Í Byko má finna
Kapro málbönd og hallamál. Í Krónunni
er breytilegt hvaðan ferskir ávextir og
grænmeti eru keypt inn en í Krónunni
er mjög skýrt merkt með fána og nafni
lands hvaðan vörurnar koma. Sem dæmi
um ísraelska ávexti má nefna avókadó
frá Kedem Hadarim . Í búðum The Pier
og Signature of Nature í Smáralindinni er
að finna húðkrem og aðrar snyrtivörur frá
Yes To, bæði Yes To Carrots og Yes To
Cucumbers. Einnig eru vörur frá Sea of
Spa og Sea of Life.
Á heimasíðu Félags Íslands-Palest-
ína (palestina.is) má sjá lista og myndir
yfir helstu ísraelskar vörur á Íslandi. Við
hvetjum fólk til að kynna sér listann en
listinn er þó alls ekki tæmandi og ef fólk
finnur ísraelskar vörur í verslunum á
Íslandi sem ekki eru á listanum þá viljum
við endilega að þið sendið okkur email
(palestina@palestina.is) og greinið okk-
ur frá því svo að við getum bætt þeim við
í safnið.
Lifi frjáls Palestína!
Það er kominn tími til þess að al-mannatenglar ísraelsku ríkisstjórn-
arinnar nýti hæfileika sína til fulls og leigi
út þjónustu sína. Þá gætu þeir verið til
staðar hvenær sem brjálæðingur réðist
inn í verslunarmiðstöð einhvers staðar
eins og í Wisconsin og skyti til bana hóp
vegfarenda, og tjáð heimspressunni að
„árásarmaðurinn harm[i] dauðsföllin en
hann [hafi gert] allt sem hann gat til að
koma í veg fyrir ofbeldi“. Þá gætu hinar
og þessar ríkisstjórnir gefið út yfirlýsing-
ar á þessa leið: „Við vitum einungis að
maður vopnaður AK-47 riffli gekk ber-
serksgang og við hlið hans liggur haugur
af líkum, en þar til við vitum allar stað-
reyndir málsins getum við ekki fellt dóm
um hvað átti sér stað“.
Máli sínu til stuðnings hafa Ísraelar
sent frá sér mynd af vopnunum sem
þeir fundu um borð (sem eru í hæsta
lagi nokkrir hnífar, verkfæri og prik) sem
grunnhyggnir gætu ætlað að maður gæti
búist við að finna á hvaða skipi sem er,
en hinir glöggari munu átta sig á að eru
akkúrat vopnin sem maður myndi bera
á sér ef maður hefði í hyggju að sigrast
á Ísraelsher. Vopnabúrið er minna en
maður myndi finna í dæmigerðum verk-
færaskúr í garði einhvers í Cirencester,
sem sýnir að það er eins gott að Ísraelar
rústi Cirencester sem fyrst, í nauðsyn-
legri sjálfsvörn.
Það er synd að þeir hafi ekki verið hug-
myndaríkari, þar sem þeir hefðu getað
sagt „við fundum líka banvæna loftvog
og áttavita sem er ekki einungis hægt að
kasta í höfuðið á einhverjum heldur er
meira segja með merkingar sem hjálpa
árásarmanninum að vita í hvaða átt hann
á að kasta honum og kíki sem má auð-
veldlega breyta í geislabyssu“.
Þetta væri jafn rökrétt og yfirlýsing
talsmanns ísraelska forsætisráðherr-
ans – „Við gerðum allt sem í okkar valdi
stóð til þess að koma í veg fyrir þetta at-
vik“. Því þetta smáræði sem ráðamenn
reyndu var að senda ekki vopnað land-
varnarlið á svæðið í þyrlum um miðja
nótt að skjóta fólk. Tæknin hlýtur að vera
mér meðfædd því ég kemst oft í gegnum
allan daginn án þess að klifra úr þyrlu
og skjóta fólk, og ég er ekki einu sinni
að gera allt sem í mínu valdi stendur til
þess. Stjórnmálamenn og aðrir álitsgj-
afar um heim allan endurtaka einhverja
útgáfu af þessari línu. Þeir átta sig á því
að þjóð nokkur hefur sent landvarnarliðið
sitt gegn fólki sem er að flytja vistir til ör-
væntingarfulls fólks, og að landvarnarlið-
ið skýtur í leiðinni ýmist þeirra til bana, og
samt kenna þeir reiðilega hinum dauðu
um. Ein dæmigerð fyrirsögn sem birtist
í gær var svohljóðandi „Aðgerðarsinnar
fengu það sem þeir vildu – átök.“ Þetta
viðhorf er svo brenglað að það á skilið
að vera skrásett sérstaklega sem ný-
skilgreind geðtruflun, eitthvað í líkingu
við „Öfugt slátursþolenda ringlunarheil-
kenni“.
Ísrael og stuðningmenn þeirra halda
því fram að hópurinn Viva Palestina,
sem er skipaður fólki sem safnar matar-
gjöfum, sementi og lágmarks hreinlæti-
stækjum, svo sem salernum og flytur
svo varninginn til Gaza, hafi allan tímann
viljað ofbeldi. Því hópurinn hefur eflaust
hugsað Hezbollah gat ekki sigrað Ísraela
en það er vegna þess að ólíkt okkur var
Hezbollah ekki með fyllur fyrir salerni og
nokkra kassa af plómutómötum“.
Ein blaðagrein tjáði okkur að skipaflot-
inn væri uppfullur af „föntum sem þyrst[i]
í átök“ og ásakaði svo skipverja um að
hafa síður hjálparstarf í huga en auglýs-
ingabrellu. Vera sænska rithöfundarins
Henning Mankell á skipinu rennir stoð-
um undir það“.Voru þetta þá fantar eða
snerist þetta um auglýsingabrellu? Voru
skipverjar með fantadeild og auglýsing-
abrelludeild eða rann þetta allt saman,
svo að rithöfundurinn dreifði athygli her-
mannanna með persónusköpun sinni á
meðan hermennirnir réðust á þá með
banvænum hallamæli?
En sumir verjendur Ísraels eru svo
blindir fyrir því sem gerist fyrir augum
þeirra að það er ekkert sem þeir myndu
hika við að verja. Ísrael gæti sprengt katt-
aheimili og áður en fimm mínútur væru
liðnar myndu þeir hrópa: „Hvernig vitum
við að kettirnir hafi ekki verið að smygla
semtex-sprengiefni í feldinum sínum til
Hamas?“
Ef Íranir eða einhverjir aðrir sem við
erum að reyna að útmála sem óvini
hefðu framið þetta ódæði hefði það vald-
ið þvílíku þrumuskýi að það hefði stöðv-
að flug.
En þar sem þetta er Ísrael, þá tjá ríkis-
stjórnir sig í nokkrum diplómatískum frös-
um þar sem enginn er ásakaður heldur
er fallist á að það sé „miður“ að dauðsföll
hafi orðið. Þær hefðu allt eins getað valið
sér orð af handahófi úr orðabók svo að
okkur yrði flutt eftirfarandi frétt: „William
Hague lýsir dauðsföllunum sem „sex-
hyrndum“. Og þá segði í yfirlýsingu frá
öldungadeild Bandaríkjaþings: „Þetta er
allt mjög ruglingslegt. Við skulum vona
að framvegis muni þeir gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir
að svipað atvik endurtaki sig.“
Mark Steel er breskur dálkahöfundur,
rithöfundur, sósíalisti, grínisti og aktívisti.
Hann hefur einnig verið með þætti í út-
varpi og sjónvarpi.
Einar Steinn Valgarðsson
þýddi greinina úr ensku.
Eftir
Mark Steel
Sniðgönguher-
ferð gegn Ísrael!
Ákall um frið Þetta var auðvitað
það sem þau vildu
Gervifætur
til Gaza
Söfnunarreikningur
542-26-6990
kt. 520188-1349